Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 80
Lykillinn að fallegri húð er ekki
bara fallegur og góður farði held-
ur skiptir miklu máli hvað þú set-
ur undir farðann. Það er mjög
mikilvægt að næra húðina vel og
tryggja að hún búi yfir miklum
raka áður en þú ætlar að gera
hana enn fallegri.
Ljómakremið frá Becca, Becca
Ignite, er lykillinn að því að draga
fram birtuna í húðinni. Það
skemmtilega við ljómakremið
er að það er hægt að
nota það bæði á lík-
amann og á andlit-
ið, því hann þarf
ekkert endilega
að fara undir
farða.
Hægt er að
bera það á húð-
ina beint á eftir
farðagrunni og á
undan farða. Það
skilar fallegri útkomu
án þess þó að ljóminn
sé of áberandi og að þú
glansir eins og diskókúla.
Síðan er hægt að dumpa því létt efst á kinnbeinin með svampi þegar
farði og hyljari eru komnir á sinn stað. Það skilar aðeins áberandi en mjög
hátíðlegri útkomu. Einnig er hægt að blanda saman einni pumpu af ljóma-
kreminu við farðann. Það mun óneitanlega gefa þér ljómandi flotta útkomu.
Síðast en ekki síst er hægt að bera hann á öll svæði sem þú vilt beina at-
hyglinni að. Það er til dæmis hægt að skella honum á viðbeinin ef þú vilt
draga þau fram. Kremið helst mjög vel á húðinni, þurrkar húðina ekki og
kemur í fimm fallegum litum. sonja@mbl.is
Hinn fullkomni grunn-
ur fyrir jólaförðunina
Það er hægt
að leika sér
með ljóma-
kremið frá
Becca. Þú get-
ur ljómað eins
og diskókúla eða
notað það varlega
þannig að það dragi
fram ljómann á látlausan hátt.
80 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
S unekos-meðferð er ný byltingarkennd með-ferð þar sem hreinni hýalúronsýru ásamtaminósýrum er sprautað í húðina kringumaugun. Amínósýrurnar í blöndunni eru ein-mitt þær amínósýrur sem frumur húð-
arinnar nota til að mynda kollagen og elastín þannig að
við erum í raun að gefa frumunum þær byggingarein-
ingar sem þarf til að mynda mikilvægustu byggingar-
prótein húðarinnar. Meðferðin stuðlar að því að bæði
þéttleiki húðarinnar verður betri ásamt því að fínar lín-
ur mildast. Sunekos-meðferðinni er skipt niður í þrjár
meðferðarlotur þar sem efninu er sprautað með ör-
þunnri nál á nokkra staði kringum augun á tveggja
vikna fresti,“ segir Ragna.
Eru konur ekkert hræddar við að láta sprauta í and-
litið á sér?
„Almennt er fólk sem kemur til okkar ekki sprautu-
hrætt en auðvitað eru til undantekningar. Við bjóðum
upp á deyfingu fyrir meðferðir, sérstaklega
meðferðir sem geta verið óþægilegar
eins og til dæmis varafyllingar. Þá
getum við bæði deyft með
tannlæknadeyfingu þannig
að meðferðin er að öllu
leyti án sársauka og
óþæginda eða að við not-
um deyfikrem staðbund-
ið á húðina. Auk þess
notum við gjarnan ával-
ar langar bitlausar nál-
ar (canulur) til að
sprauta inn efnum og þá
þarf ekki að stinga oft og
mörgum sinnum með
beittri nál, heldur er gert
eitt lítið gat í húðina fyrir bit-
lausu nálina og unnið út frá því,“
segir hún.
Fær fólk frískleika með þessari meðferð án
þess að fá svona lýtalæknaútlit?
„Algjörlega. Þar sem Sunekos samanstendur af
þunnri hyalúronsýru og amínósýrum dreifist hún jafnt
um augnsvæðið og er því ekki eins og hefðbundin fylli-
efni sem byggja upp tap á fitu- og stoðvefjum undir
húðinni. Meðferðin gefur náttúrulegt útlit og mildar
öldrunareinkenni á augnsvæði.“
Á hvaða aldri eru þær konur sem sækja í þessa með-
ferð?
„Þar sem hægt er að nota meðferðina á mjög breið-
an hóp fólks með ólík vandamál erum við að meðhöndla
konur á öllum aldri. Yngri konur leita mest til okkar
vegna áberandi bauga og þá gæti ein meðferð gert
heilmikið. Ef húðin er aftur á móti orðin slöpp og vant-
ar teygjanleika þarf fleiri
meðferðir til að byggja upp
húðina aftur,“ segir Ragna.
Eru karlar að nýta sér slík-
ar aðferðir?
„Að sjálfsögðu! Karlmenn eru
sífellt að sækja í sig veðrið hvað
varðar lýtahúðlækningar og við
sjáum aukinn fjölda þeirra á Húð-
læknastöðinni. Þeir glíma við sömu
vandamál og við konurnar og nútíma-
karlmaðurinn er orðinn meira meðvitaður um
hversu miklu máli skiptir að hugsa vel um húðina til að
viðhalda henni sem lengst,“ segir hún.
Hver myndir þú segja að væri húðmeðferð ársins
2020?
„Ég myndi segja að húðþétting með Ultraformer sé
húðmeðferð ársins 2020. Þessi meðferð hefur slegið í
gegn hjá okkur á Húðlæknastöðinni enda erum við að
sjá frábæran árangur eftir meðferðina. Meðferðin er
einnig kölluð andlitslyfting án skurðaðgerðar og notar
hljóðbylgjur til að styrkja og þétta húðina. Þetta er
eina tækið sinnar tegundar á Íslandi en Ultraformer er
byggt á HIFU (High Intensity Focused Ultrasound)
og MMFU (Micro Macro Focused Ultrasound) tækni.
Flest sambærileg tæki eru einungis byggð á HIFU.“
Hér sést augnsvæði á konu. Á efri myndinni er fyrir Sunekos og á neðri myndinni er eftir.
Húðmeðferðin sem
sléttir úr hrukkunum
Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni, segir að
Sunekos-meðferðin njóti mikilla vinsælda um þessar mundir. Meðferðin
snýst um að sprauta hreinni hýalúronsýru í húðina í kringum augun og
þannig næst frísklegra útlit. Hún segir að meðferðin sé fyrir öll kyn.
Marta María | mm@mbl.is
Sunekos meðferðin hressir
töluvert upp á húðina í andlit-
inu án þess að manneskjan fá
„lýtalæknaútlit.“
Ragna Hlín
Þorleifsdóttir
húðlæknir á
Húðlækna-
stöðinni.
Nýi ilmurinn frá Valentno, Voce Vita,
er samstarfsverkefni tónlistar-
konunnar Lady Gaga og Pierpaolos
Picciolis. Ilmurinn er ein-
staklega töff og upp-
fullur af litum. Manda-
rínur, bergamot og
engifer einkenna ilminn
en einnig má finna
vanillu, musk,
sandalvið og eik-
armosa. Hann er
óður til kvenleika
Valentinos og
endurspeglar
hversu svöl Lady
Gaga er.
Ilmaðu
eins og
Lady Gaga