Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 99
svo þetta var ekki spurning fyrir mig
að fara út í þessar framkvæmdir. Ég
veit nú kannski ekki hvort ég sé mjög
rík en ég kemst vel af með það sem
ég á og ég get ekki annað sagt en ég
sé lukkunnar panfíll.“
Hvernig lýsirðu nýja heimilinu
þínu?
„Það er mjög fallegt en ég myndi
segja það samt frekar hefðbundið
með glæsilegum nýjum innréttingum
og miklum þægindum. Íbúðin er stór
og það er mikið útsýni. Einnig er hún
björt og hér er nóg pláss.“
Hvernig skreytirðu fyrir jólin?
„Ég er mjög hefðbundin þegar
kemur að skreytingum fyrir jólin.
Mér finnst jólarauður klassískur og
fallegur og þannig skreyti ég með
rauðum kertum, ljósum og kúlum og
dúkum. Það á mjög vel við mig og það
finnst mér fallegt og færir mér vellíð-
an.“
Jólahlaðborðin skipta miklu máli
Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin með
fjölskyldunni?
„Það er nú ekkert svona fast held-
ur meira það sem til fellur. Það sem
hefur verið fast hjá okkur síðustu að-
ventur er jólahlaðborð þar sem allir
velja það sem þeim finnst gott og við
borðum saman. Ég held að það sé
meira samveran sem við sækjum í og
það að vera saman því við erum upp-
tekin og út og suður og þá er gott að
ná öllum saman. Eitt sem við gerum
alltaf á aðfangadag sem hefur verið
siður síðan krakkarnir voru litlir er
að horfa á jólaævintýri Mikka og
Home Alone. Þótt krakkarnir mínir
séu orðnir fullorðnir höfum við haldið
í þennan sið.“
Hver er besta jólagjöfin sem þú
hefur fengið?
„Það er rauð kasmírullarkápa sem
ég fékk frá foreldum mínum fyrir
margt löngu. Ég var svo ánægð með
hana að ég var í henni inni á að-
fangadagskvöld. Þessi kápa hefur
fylgt mér allar götur síðan og enn er
hún hér inni í skáp nýkomin úr
hreinsun.“
Áttu góð ráð fyrir fólk með ung
börn sem langar að gera eitthvað
skemmtilegt um jólin?
„Það er mjög gott að foreldrar
plani svolítið hvað þeir ætla að gera
með börnunum sínum um jólin og
mikilvægast er að eiga næga sam-
veru og gera eitthvað saman og það
er ýmislegt sem hægt er að gera bæði
úti við og inni. Bakstur, skreytingar,
matargerð og margt annað. Ef ég
ætti litla krakka í dag myndi ég búa
til með þeim jólaskraut úr einhverju
endurunnu og fara svo út og hengja í
tré jafnvel í nágrenninu eða úti í
garði. Láta hugmyndaflugið ráða.
Það er svo margt hægt að gera og ef
maður er hugmyndasnauður er hægt
að fá góðar hugmyndir á netinu.“
Söngkona sem mun
finna sínar leiðir um jólin
Jenný er mikið fyrir að syngja og
stundaði söngnám við Söngskólann í
Reykjavík, FÍH og svo í Berklee Col-
lege-tónlistarskólanum í Boston.
„Ég syng alltaf um jólin. Ég er í
kór Kópavogskirkju og það eru ekki
jól nema ég syngi með kórnum mín-
um um jólin. Reyndar verður það
með öðru sniði í ár. Líklega verða
engar hátíðarmessur eða þær verða
með öðru sniði. Ég hef mjög gaman
af því að syngja og söngurinn er alltaf
í bakhöndinni og er ég þakklát fyrir
að hafa tækifæri til þess að geta nýtt
þessa hæfileika mína, allavega svona
á sparidögum.“
Jenný segir að lokum að hún sé
mjög sæl og glöð með að hafa tekið
þessa ákvörðun fyrir jólin. Að gera
allt fallegt í kringum sig og standa
með sér. „Það er heilmikið að standa í
svona framkvæmdum þegar maður
þarf auðvitað að sinna vinnunni á
sama tíma. Núna þarf ég ekki að
hugsa um neitt næstu árin nema lifa
og njóta. Allavega ekki íbúðina.“
Innréttingarnar eru
úr HTH innréttingum.
Jenný Dagbjört
Gunnarsdóttir ákvað
að gera íbúðina sína
upp fyrir jólin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 99
Kringlan - jens.is - Smáralind
!"#$ #$
%$ &' () *#$
+ * ** *#$ ",,$ -
!"#$* . /$ 0 #$ &'
() 1 * 2 %$$
.34 $ 56, 7- " #*5*# *#
- #$* # !"#$* " 80$ 9 *11$
(:1$, 1 ",* # :$
;
!"#$
%$ &' ()
;
#$
%$ &' ()
; !"#$
%$ &' ()
; #$
%$ <. )=
;
#$
%$ &' ()
;
#$
%$ &' ()
;
#$
%$ &' ()
; #$
%$ &' ()
.4
%$ <. )=
/
%$ <. )=
.*#$
%$ <. )=
.4
%$ &' ()
/
%$ <. )=
.*#$
%$ <. )=
.*#$
%$ &' ()
.4
%$ &' ()