Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 102
102 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Verður blandari í
jólapakkanum
þínum?
Rauðagerði 25
108 Reykjavík
Sími 440 1800
www.kaelitaekni.is
„Þetta er nú bara einfaldlega karamellusósa
sem er skemmtilega einföld gjöf og geggjuð
út á jólaísinn og svo notum við líka alltaf
karamellusósuna á ris a la mande.“
Þú ert sérfræðingur í að pakka fallega inn.
Segðu mér betur frá því.
„Sérfræðingur er nú dálítið stórt orð en ég
hef bara svo gaman af því að pakka inn og í
mínum huga er lykilatriði að eiga nóg af
pappírspokum, gjafapappír, fallegum borðum
og böndum heima fyrir og alls konar merki-
miða eins og þessir frá okkur hjá Reykjavík
Letterpress, sem eru sérstaklega hugsaðir
svo passi við sem flest tilefni. Oft smelli ég
miðunum líka á án þess að skrifa nokkuð á
þá og þá er tilvalið að þeir nýtist síðar. Ég
elska að nýta áfram poka, fallegar krukkur,
merkimiða og borða og hendi helst engu!“
Hvers vegna skiptir máli að pakka fallega
inn?
„Ef ég á smá lager af svona innpökkunar-
dóti eins og ég tel upp hér að ofan þá er svo
lítið mál að gera einföldustu gjöf fallega og
það er eins og með að laga góðan mat – ef
hann er ekki borinn fallega fram á borðið
nær hann ekki eins til hjartans. Það á að
gefa með hjartanu.“
Hver er galdurinn á
bak við súkkulaðið sem
þú útbýrð á þinn ein-
staka hátt?
„Þetta er gott dæmi
um einfalda en svo góm-
sæta lausn á gjöf eða
bara til að bera fram
með kaffinu fyrir gesti.
Þarna bræddi ég yfir
vatnsbaði venjulegt suðu-
súkkulaði, setti smjörpappír á form og
smurði súkkulaðinu þar á. Gott að vera tilbú-
inn með það sem á að dreifa yfir svo það
festist ofan í súkkulaðinu og í þetta skiptið
notaði ég trönuber og pistasíukjarna, gróft
saxað, og að síðustu stráði ég saltflögum yfir.
Svo jólalegt og nammigott! Ég hef líka notað
brjóstykur, þennan hvíta og rauða, og mulið
gróft og dreift yfir. Þetta er alveg hrikalega
gott!“
Finnst þér fólk leggja meira í það að búa
til stemningu með gjöfum núna en áður?
„Já, mér finnst það, sérstaklega þegar við
erum að gefa þeim sem eiga allt og vantar
alls ekki fleiri hluti á heimilið, þá er gaman
að gleðja með einhverju matarkyns sem nýt-
ist strax. Eða jafnvel útbúa heimalagað gjafa-
bréf með loforði um samveru eða eitthvað
skemmtilegt. Bara muna að hafa það fallega
skreytt – frá hjartanu.“
Hvað langar þig sjálfa í í jólagjöf?
„Ég er hrikalega erfið þegar kemur að
jólagjöfum handa sjálfri
mér! Er svo léleg að muna
hvað mig vantar þegar ég
er spurð og mætti alveg
vera aðeins praktískari.
Kannski verður auðveldara
að setja upp óskalista núna
þar sem nýtilkomna áhuga-
málið er fluguveiði og hún
kallar á alls konar búnað.
Svo elska ég auðvitað að fá
eitthvað matarkyns. Æi, maður á eiginlega
allt og langar bara mest að allir nái að njóta
sín og vera saman.“
Hvað ætlar þú að elda um jólin?
„Síðan við fórum að halda okkar eigin jól
ákváðum við að skapa okkar eigin hefðir í
mat og fyrir valinu varð hreindýr. Ég ólst
upp við strangheiðarlegan lambahrygg og
maðurinn minn hamborgarhrygg. Ég geri allt
sem ég get til að laga rauðkálið heima þó ég
sé jafnvel að láta það malla meðfram öðru á
aðfangadag! Svo er það waldorfsalatið og
villibráðarsósan sem er dekrað við í marga
klukkutíma. Trönuberjasultan er líka ómiss-
andi á borðið. Ris a la mande er svo lagað í
stóra skál og borðað á öllum tímum þar til
klárast – með karamellusósunni góðu.“
Fallegir borðar og merkimiðar lyfta
innpökkuninni upp á hærra plan.
Ef ég á smá lag-
er af svona inn-
pökkunardóti
eins og ég tel upp hér að
ofan þá er svo lítið mál að
gera einföldustu gjöf fal-
lega og það er eins og með
að laga góðan mat
❄
Það er auðvelt að búa til sitt
eigið súkkulaði með því að
bræða súkkulaði, setja á bök-
unarpappír og skreyta fallega.