Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 117
magnaðir. Tímabil sem mér finnst einstaklega
heillandi er til dæmis upphaf súrrealismans,
dada-hreyfingarinnar og abstrakt-
expressjónismans í Evrópu.“
Nú eru jólin að koma. Hvernig upp-
lifir þú þennan tíma?
„Þegar ég var barn elskaði ég jól-
in og ævintýrin sem þeim fylgdu.
Að fá frí í skólanum, pakkana,
góða matinn og að vera heima í
huggulegheitum. Þennan jóla-
heim sem kemur á ári hverju og
gleypir mann. Þegar ég varð ung-
lingur þá fór ég í mikla uppreisn
gegn þessum tíma og fannst jólin
innantóm og snúast að mestu um
neyslumenningu. Ég fór gjarnan til
útlanda yfir hátíðirnar og reyndi að
finna taktinn minn í jólunum. Ég hef
reynt á fullorðinsárum að líta á þau sem há-
tíð kærleikans. Mér finnst það skipta mig
miklu máli. Eins konar uppskerutími þar sem
maður fer yfir liðið ár, skoðar hvað má gera bet-
ur og sýnir sínum nánustu ást, virðingu og
þakklæti. Í dag finnst mér jólin mikilvægur
hluti af árinu. Vegna merkingar þeirra fyrir
mig.“
Fyrirmyndin listræn hjón í samvinnu
Ertu mikil jólakona?
„Mér finnst voða gott að taka mér frí frá
vinnu og daglegu amstri og hafa það huggulegt
og borða góðan mat.“
Áttu fyrirmyndir í þínum geira sem þú lítur
upp til?
„Ég á svo margar fyrirmyndir, enda er svo
mikið til af flottu fólki og hæfileikum. Fólk veitir
mér innblástur á ólíkum sviðum sem persónur og
listamenn. Á Íslandi lít ég mikið til vinkonu
minnar Ilmar Stefánsdóttur, myndlistarkonu og
leikmyndahönnuðar. Varðandi kvikmyndamið-
ilinn þá lít ég upp til Catherine Martin, leik-
mynda- og búningahönnuðar, sem gerði til dæm-
is leikmynd og búninga fyrir Rómeó og Júlíu í
speglar alltaf innra ástand og allt sem ég sé
og túlka speglar sjálfa mig. Mér finnst það
skemmtilegasta verkefnið í lífinu að tak-
ast á við sjálfan sig.“
Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 20
ár?
„Ég stefni á að hafa einhvers
konar áhrif á samtímann með list-
sköpun og vona að ég get verið
innblástur fyrir komandi kyn-
slóðir. Mig langar til að hjálpa
ungum listamönnum og veita
sérstaklega konum hugrekki og
styrk að standa með sér og hug-
myndum sínum. Ég sé fyrir mér
að búa einhvers staðar úti í sveit
eða í löndum með stóra fjölskyldu,
umvafin dýrum, ást, sköpun og nátt-
úru.“
Sunnevu dreymir um að halda stóra
myndlistarsýningu með fullt af málverkum
og skúlptúrum.
Ætlar að setja sérstakan
metnað í jólafötin á þessu ári
Jólin á þessu ári verða þannig að hún er að
vinna út Þorláksmessu og eru jólin því aðeins
óráðin ennþá.
„Ég verð með ástvinum og fjölskyldu í frið-
sæld og þakklæti. Það er það eina sem skiptir
mig máli á jólunum.“
Eldarðu eitthvað alveg sérstakt á jólunum
sem þú ert til í að deila með okkur?
„Mamma og pabbi veiða alltaf rjúpur fyrir
jólin. Ég hef borðað þann jólamat síðan í barn-
æsku. Núggatísinn hennar mömmu er mér
samt mikilvægasti hluti jólakræsinganna. Hún
hefur gert hann síðan ég man eftir mér og við
borðum hann alltaf einu sinni á ári; á aðfanga-
dagskvöldi. Ég hef haldið jólin í mörgum lönd-
um, í ólíkum aðstæðum, en alltaf hefur mér tek-
ist að útbúa þennan ís og hann er órjúfanlegur
partur af jólunum fyrir mér.“
Hvað með að skreyta heimilið?
„Ég hef ekki mikið verið í að ofgera þegar
kemur að jólaskreytingum. Kerti, góð tónlist,
jólasería og blágreni er nóg fyrir mig eins og
er.“
Áttu skemmtilega sögu af þér sem barni á jól-
unum?
„Það var einu sinni á aðfangadag að mamma
og pabbi höfðu sett pakka undir jólatréð rétt
fyrir jólamatinn. Við litla systir mín Inga Magn-
es vorum mjög spenntar því það fór ekki á milli
mála að það var eitthvað lifandi í pakkanum; í
banastuði. Með eftirvæntingu að opna pakkann
borðuðum við jólamatinn. Hávaðinn undir trénu
ágerðist yfir matnum og þegar við loksins feng-
um að opna pakkan þá var inn í honum búr með
tveimur hvítum músum. Það var mikil gleði og
tilhlökkun, en hún varði aðeins í í smá stund.
Önnur músin var aðeins stærri en hin og hún
réðst á þá minni og hóf að tæta hana í sig. Ég
man ennþá hljóðin frá litlu sætu músinni og
stóra músin breyttist í skrímsli, það var grátur
og sjokk og við rifum þá stærri frá þeirri litlu.
Síðan fórum við öll fjölskyldan saman út í bíl,
með vondu músina í kassa og keyrðum upp í
Öskuhlíð í myrkrinu. Það var kalt úti, snjór og
stjörnubjartur himinn. Ég man hvað ég var full
sektarkenndar að láta „kannibal“ músina eina
út frostið og snjóinn. Því ég vissi að þar beið
hennar eflaust ekkert nema dauðinn. Við skil-
uðum músinni þetta aðfangadagskvöld í Öskju-
hlíðina og kvöldið var sveipað niðarsorta og mel-
ankólíu. Þetta jólakvöld man ég alltaf mjög vel
og mamma og pabbi gáfu okkur aldrei aftur dýr
í jólapakkann.“
Hvað með jólakjólinn?
„Ég er einhvern veginn alltaf að klúðra jóla-
dressinu. Er of sein eða gleymi að hugsa um það
og kaupi mér eitthvað í flippi í Kringlunni og lít
út eins og jólakúla. Ég er voðalega dugleg að
hanna á aðra en gleymi stundum sjálfri mér. Ég
held að ég þurfi bara að prufa nýtt núna og
hanna á sjálfa mig fyrir þessi jól. Ég byrja bara
strax og fæ Elmu klæðskera til að sauma dress-
ið á mig. Takk fyrir að minna mig á þetta!“
Systurnar voru spenntar fyrir lif-
andi jólagjöf sem endaði þó meira
eins og hryllingssaga en jólasaga.
leikstjórn Baz Luhrmanns sem er einnig eigin-
maður hennar. Það er mikið afrek.
Síðan eru myndlistarkonurnar Frida Kahlo,
Helena Frankenthaler og Louise Bourgeuis
miklar fyrirmyndir í mínu lífi.“
Sunneva hefur róast mikið með aldrinum að
eigin sögn og er orðin mjög heimakær.
„Ævintýraþráin mín átti það til að koma mér
í vandræði en mér líður eins og með árunum séu
svo mörg ævintýri í hversdagleikanum sem ég
hef skapað mér. Þau koma til mín og ég þarf
ekki sækja þau eins mikið og þegar ég var
yngri. Ég trúi því að lífið og mistökin sem við
gerum séu til þess að bæta fyrir þau. Að verða
betri í dag en í gær við sjálfa mig og umhverfið
mitt og það skiptir mig miklu máli. Með því að
stækka sem manneskja þá stækkar líkar listin
mín. Ég tel að listin sé órjúfanlegur partur af
listamanninum og með því að vaxa í persónu-
lega lífinu þá vex listin sem ég skapa því hún
JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 117
ÍSLENSKA MATARKISTAN
UM JÓLIN
Við bjóðum sannan íslenskan jólamat
Flatahraun 27
Hafnarfjörður,
sími 788 3000
Opið
mán-fös 11-18
lau 11-15
www.gottogblessad.is
KEYRUM HEIM SAMDÆGURS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Á VIRKUM DÖGUM EF PANTAÐ ER FYRIR KL. 14.00.
SENDUM HVERT Á LAND SEM ER MEÐ LANDPÓSTI.