Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 118

Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 118
118 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 Einstakar gjafavörur 30% afsláttur til jóla Litla Gjafabúðin Laugaveg 8 | 101 Reykjavík | Sími 552 2413 Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-17 í miklu úrvali K veldúlfur fæddist í Baghdad í Írak en fluttimeð foreldrum sínum til Parísar í Frakk-landi þegar hann var tveggja ára. Á ung-lingsárunum bjó hann í New York íBandaríkjunum. Þegar hann var tvítugur flutti hann til Íslands og vill hvergi annars staðar vera. „Ég fann jólin aftur þegar ég flutti til Íslands en í þetta sinn gat ég haldið upp á þau heima þar sem ég kom án fjöl- skyldu minnar. Ég kynntist íslensku jólunum og þá kvikn- aði strax ást í brjósti mér. Ég taldi mig hafa fundið „vetr- arundralandið“, jólalandið, jólaævintýralandið, heimkynni jólasveinanna og himnaríki jólabarnsins. Fyrir mér var og er íslenska jólahefðin hin rétta og fullkomna. Ég var kom- inn á heimavöll,“ segir Kveldúlfur. Kveldúlfur hefur unnið meira og minna á leikskóla frá árinu 2001 og gerir það enn í dag. Hann er einnig í hluta- starfi á skammtímavistun fyrir börn og leggur stund á menntunarfræði leikskóla við Háskóla Íslands. „Jólin voru því miður ekki haldin í minni fjölskyldu. Þrátt fyrir það hef ég alltaf verið mjög mikið jólabarn. Ég man eftir jólahaldi og jólaskemmtun í leikskólanum, skólanum og í blokkinni í París. Mér fannst allt á þeim tíma undurfag- urt og töfrandi. Jólaljósin, jólaskrautið, jólalögin og snjór- inn á veturna. París ljómaði. Gleðin sem fyllti hjarta mitt var ólýsanleg, en einnig sorgin sem fylgdi þegar ég þurfti að fylgja foreldrum mínum aftur heim að loknu námi föður míns. „Heim“ þar sem jólin voru ekki til,“ segir Kveldúlfur. Byrjar á jólunum í október Hinn 16. október ár hvert er merkilegur dagur í huga Kveldúlfs en þá heldur hann upp á nafna- og ríkisfangs- afmælið sitt. Hann öðlaðist nafnið sitt og sömuleiðis ís- lenska ríkisborgararéttinn þann dag árið 2007. Þegar hann er búinn að halda upp á þann dag þá byrjar hann að undirbúa jólin. Þegar ég spyr Kveldúlf hvenær hann byrji að skreyta verður hann að viðurkenna eitt. Hann er hættur að taka niður jólaskrautið. „Ég þori varla að tjá mig um þetta en það er saga bak við þetta sem á sér langan aðdraganda. Öll mín ár á Íslandi hef ég verið kvíðinn fyrir þeim degi sem við tökum jólaskrautið niður, þ.e.a.s. á þrettándanum. Mér hefur alltaf þótt hann sorglegasti dagur ársins og harma að brenna út jólin. Eftir 21 ár af pínu og kvöl á þrettándanum ákvað ég þann 6. jan- úar 2020 að leyfa jólaskrautinu að vera en tók þó ljósin úr sambandi. Sú ákvörðun hefur verið mín besta hingað til, ásamt þeirri að tileinka mér íslenska menningu. Já, ég er hættur að taka niður jólaskrautið. Jafnvel bíllinn minn er jólaskreyttur allt árið um kring,“ segir Kveldúlfur. Kveldúlfi hefur aldrei þótt mjög gaman af eldamennsku og því eldar hann lítið fyrir jólin. Hann fær þó hangikjöt og hefðbundinn jólamat hjá nánum vinum sínum í desember. Spurður út í jólahefðirnar telur Kveldúlfur upp langan lista af hefðum. Hann borðar eins kæsta skötu og hægt er á Þorláksmessu, helst bæði í hádegis- og kvöldmat. Hann fer í kirkjugarðinn á aðfangadag. Föndrar og skrifar jóla- kort. Býr til jólaglögg. Kaupir nýja jólaflík. Bakar og skreytir piparkökur. Fer á jólatónleika eða í jólamessu. Fer á jólaball. Er með jóladagatal. Les eina jólasögu og fer á skauta á Ingólfstorgi. Hann reynir líka eins og hann getur að komast til Ak- ureyrar fyrir jólin, heimsækja vini sína og kíkja í jólahúsið. Hann velur líka einhverja sem fá dularfulla jólakortið. „Fyrir utan þá sem fá alltaf jólakort vel ég nokkra ein- staklinga og sendi þeim jólakort með fallegum orðum án þess að geta hver er sendandi. Manneskjan fær óvænt jólakort, veit ekki frá hverjum og inniheldur persónuleg og falleg orð um hana,“ segir Kveldúlfur. Boðberi jólanna Það má eiginlega með sanni segja að Kveldúlfur sé boð- beri jólanna. Hann segir mér litla jólasögu frá því þegar hann sendi manneskju sem var ekki mikið jólabarn jóla- glaðning á hverjum degi í heila viku. „Ég man vel eftir einni manneskju sem ég þekkti fyrir mörgum árum síðan og var neikvæð í garð jólanna og sýndi mikinn biturleika í desem- ber. Mér þótti vænt um hana og ákvað eitt sinn að gefa henni einn lítinn jólaglaðning ásamt fallegum orðum dag- lega í heila viku. Ég gat komið gjöfunum til hennar án þess að hvorki hún né neinn annar vissi hver sendandinn væri. Tilgangurinn var ekki að breyta manneskjunni á neinn hátt en ég fann til mikillar jólagleði með því að geta glatt hana. Ég hef aldrei játað þetta á mig og tel að hún viti ekki enn hver þessi „leynijólasveinn“ var,“ segir Kveldúlfur. Þótt Kveldúlfur byrji snemma að undirbúa jólin er alltaf eitthvað sem hann nær ekki að gera fyrir jólin og honum finnst það allt í lagi, þau koma hvort sem er alltaf. Eftir að hann hætti að taka niður jólaskrautið í janúar þarf hann líka ekki að hafa áhyggjur af því að vera búinn að skreyta fyrir 1. desember. Það sem skiptir hann mestu máli er að skrifa jólakortin, fara í kirkjugarðinn og borða kæsta skötu. „Saga lífs míns er eins og ævintýraleg jólasaga sem end- aði vel. Sögupersónan fékk að upplifa jól í París í stuttan tíma þar til örlögin slökktu þau ljós. Síðan tók myrkrið við en persónan bar áfram von í brjósti um að fá að faðma jólin aftur. Hún var síðan bænheyrð á aðfangadag 1998 og fékk bestu jólagjöf sem hægt er að óska sér. Jólagjöfin sú eru íslensku jólin og íslenska menningin. Hún er fólkið sem ég hef kynnst á Íslandi. Hún er tungumálið sem það fólk notar. Hún er lögin sem Íslendingar syngja. Hún er þjóðarréttur og matarvenjur þeirra. Hún er íslenski snjórinn. Hún er jólalandið sjálft sem heitir öðru nafni Ísland.“ Flutti til Íslands á aðfangadag Jafn mikil jólabörn og Kveldúlf Hasan er erfitt að finna þótt víða væri leitað. Jólin skipta Kveldúlf miklu mál en ekki var haldið upp á jólin í æsku hans. Hann kom hingað til Íslands í fyrsta skipti á aðfangadag árið 1998 og hér hefur hann verið síðan þá. Sonja Sif Þórólfsdótir | sonja@mbl.is Jólin skipta Kveldúlf miklu mál en ekki var haldið upp á jólin í æsku hans. Morgunblaðið/Eggert
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.