Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 124
124 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
É g geri jólin alltaf eins hátíðleg og hægt er og ermikil jólakona. Mínar bestu minningar úr æskueru jólaminningarnar. Hefðin var sterk og for-eldrar mínir lögðu mikið á sig til að gera jólin eft-irminnleg. Í raun svo eftirminnileg að ég breytist í
barn þegar ég hugsa til þeirra.“
Jónína hefur alltaf verið einstaklega sjálfstæð og fór ung að
aldri að heiman. Hún eignaðist börnin sín með Stefáni Einari
Matthíassyni lækni og bjuggu þau lengst af í Svíþjóð saman. Jón-
ína segir það góðan og lærdómsríkan tíma.
„Við héldum flest jólin okkar í Svíþjóð og við Stefán nutum
þess að gera þessa hátíð ógleymanlega fyrir börnin okkar og
fylgdum að mestu íslenskum siðum en nágrannar okkar í
Helsingborg tóku okkur öllum svo vel og kenndu okkur margt,
meðal annars að horfa á teiknimyndir á aðfangadag.
Mín helsta jólahefð er á Þorláksmessu þegar húsið lyktar af
hangikjöti. Þá er ég búin að gera allt hreint og fallegt hjá mér.
Skipta á rúmum og gefa börnunum mínum náttföt. Þá máttu all-
ir opna einn sérvalinn pakka. Sá pakki gleymdist ekki í pakka-
flóðinu á aðfangadagskvöld. Það var alltaf þvílík gleði að fara í
háttinn eftir að hafa horft á börnin sín sofna með bros á vör.“
Sonurinn besta jólagjöfin
Hver er besta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
„Sonur minn Matthías fæddist 22. desember og þvílík gjöf
sem drengurinn var og er enn þá. Við dönsuðum um húsið eftir
að hann fæddist og reyndar öll jól þar á eftir. Annars gerði dótt-
ir mín, Jóhanna, handa mér myndaalbúm af fjölskyldunni okkar
þar sem hún skrifaði undir hverja mynd. Hún gerir alltaf allt svo
fallega og þessi gjöf er ógleymanleg.
Jólin sem ég fæddi Matthías voru uppáhaldsjólin mín. Ég var
frekar stikkfrí í veisluhöldum. Við hjónin fórum með einkadótt-
ur okkar út um allan bæ í veislu en ljósmæðurnar pössuðu Matt-
hías uppi á fæðingardeild. Amma Jóhanna hafði saumað skær-
gular eins kápur á okkur mæðgur og við slógum í gegn, eins
klæddar. Ég fór upp á spítala og gaf brjóst inn á milli þess sem
við vorum að heimsækja fólk. Gilda afsökunin fyrir að vera ekki
með svuntuna var að ég átti tveggja daga gamlan heilbrigðan
dreng.
Í þá daga voru börn og mæður um viku á spítalanum, ég var
svo ánægð með þetta að ég fékk að vera 10 daga í algjöru dekri.
Orðið ljósmóðir er eitt fallegasta orð sem til er á íslensku. Ég
átti tengdamóður sem setti okkur fjölskylduna alltaf í forgang
og á jólum sló hún alltaf allar keilurnar, þvílík húsmóðir. Hún
minnti mig á mömmu sem var af sama skólanum þar sem öllu
var flaggað til á jólum og allt gert fyrir börnin en einnig fyrir þá
sem áttu minna. Þær eru í minningunni ekki bara húsmæður
heldur fyrirmyndir og útivinnandi konur af kynslóð þegar allt
var nýtt, saumað, bætt, bakað og gefið.“
Jónína viðurkennir að ekki hafi öll jól í hennar lífi verið auð-
veld.
„Öll jól eftir að ég skildi við barnsföður minn og þegar börnin
voru hjá honum, þá voru jólin hreint víti. Ég hafði vit á því við
skilnaðinn að semja um sameiginlega forsjá og þrátt fyrir sökn-
uð vissi ég að feður eiga jafnan rétt og við mæður í að umgang-
ast börnin. Þetta var gæfuspor fyrir börnin mín sem öll hafa
fengið að njóta góðs af okkur báðum. Hann hefur verið þeirra
stoð og stytta þegar ég hef verið
veik og Guð einn veit hvað ég er
honum þakklát fyrir það.
Í æsku þeirra var það hins vegar
mitt að hvetja þau til dáða, kenna
þeim og þroska þau sem sjálfstæða
einstaklinga sem þau eru öll þrjú í
dag. Þau hafa náð langt þrátt fyrir
að lífið hafi ekki alltaf verið leikur
vegna umræðunnar um mig og
vegna þess að ég bugaðist undan
álaginu. Þau sjá vonandi einn dag-
inn að ég gerði allt til þess að þau
ættu gott líf. Sumt mistókst en flest
ekki. Þau eru svo frábær, heiðarleg
og harðdugleg. Mistök mín voru að
drekkja söknuði mínum í áfengi, nú lifi ég fínu lífi án þess og
með þau í fanginu alltaf þegar þau hafa tíma fyrir mömmu sína.“
Hvernig hugarðu að heilsunni um jólin?
„Ég hugsa ekki mikið um heilsuna á jólunum. Heldur fer í
jólafrí og leyfi mér þá að borða góðgæti. Ég er reyndar lítið fyrir
svínakjöt, sem er gott.
Ég elda humarsúpu og baka svani sem synda á súpunni. Ég
vil hafa heimilið hreint og fallegt með jólaljósum. Ég gef öllum
sem ég elska pakka og var mjög óhress þegar bannað var að
gefa systkinabörnum pakka eftir fermingu. Slík röskun fór illa í
mig. En við fengum alltaf jólagjafir frá öllum systkinum pabba
og mömmu og það tengdi fjölskyldurnar. Gjafir þurfa ekki að
vera stórar en alla langar í jólapakka sama hvað þeir þykjast
ekki þurfa neitt.“
Notar sama gamla jólaskrautið
Skreytir þú heima hjá þér?
„Já, ég elska að skreyta þótt í seinni tíð hafi það minnkað.
Sama gamla jólaskrautið gleður mig mest. Dóttir mín er snill-
ingur í jólahaldi og nú lauma ég mér til hennar, þar eru börnin
og jólin eru mest hátíð barna finnst mér. Stundum finnst mér
gott að finna litlu stelpuna frá Húsavík í mér líka og ég leyfi mér
það.“
Áttu góða uppskrift fyrir jólin?
„Já humarsúpuna mína sem ég fékk frá Alfreð Gíslasyni
landsliðsþjálfara. Súpuuppskriftin hans hefur komið í Gestgjaf-
anum og hjá ykkur á Mogganum. Hún er byggð á spænskri upp-
skrift.“
Er eitthvað sem þér finnst að allir Íslendingar eigi að gera
gagnvart náunganum á jólunum?
„Það er sælla að gefa en að þiggja.“
Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur segir
jólin eiga vel við hana. Hún segir jólin hennar
hafa verið alls konar í gegnum tíðina. Oftast tími
gleði og samveru en stundum tími áskorana.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Colourbox
Ljósmynd/Colourbox
Jónína hefur
gaman að því
að gefa pakka
á jólunum.
Jónína Benediktsdóttir segir
jólin með börnunum hennar
litlum hafa verið einstakur tími.
Jónína segir jólin
vera fyrir börnin og
fjölskylduna.
E G I L S S T A Ð I R
Í S L E N S K T · A U S T F I R S K T · E I N S TA K T
HREINDÝR BY PÁLL GARÐARSSON
VERÐ 6.900.-
BLÁKLUKKUBOLLAR BY AUÐUR INGA
VERÐ 6.100.-
JÓLATRÉ GAMLA TÍMANS
BY EIK MIÐHÚSUM
VERÐ 13.200.-
JÓLAKVEÐJA HH
FISLÉTT Í PAKKA & FALLEG Á VEGG
VERÐ 3.900.-
3.500 pr. stk (2 stk)
3000 pr. stk (3 stk og. fl.)
Sími 471 2433 / Miðvangur 1-3 / 700 Egilsstaðir / facebook.com/hushandanna
www.hushandanna.is
ER KOMIN Í LOFTIÐ
O P N U N A R T Í M I
Desember – virka daga 12 - 18
Laugardagar í aðventu – hefðbundinn jólaopnunartími verslana
Lokað alla sunnudaga í desember · Þorláksmessa 13 - 22
Lokað aðfangadag jóla
„Jólin hafa ekki
alltaf verið auðveld“