Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020 Faraldurinn og fásinnið hefurgert það að verkum að bók-lestur bókaþjóðarinnar hefur vaxið, en eyjarskeggjar hafa lesið 2,5 bækur á mánuði í ár, en þær voru 2,3 í fyrra. Útgefendur vona að það veiti fyrirheit um góð bókajól í ár. Verkfall flugvirkja Landhelgisgæsl- unnar stendur enn yfir, en þó vakti vonir að flugvirkjar virðast vera til í að ræða um að flugvirkjar ferðuðust ekki ófrávíkjanlega á Saga Class á ferðum sínum til útlanda. Víða hefur verið sovéskt yfirbragð á verslun í landinu að undanförnu, en langar biðraðir hafa víða myndast utan við þær vegna fjarlægðar- og fjöldatakmarkana. Verslunareig- endur hafa ekki allir verið ánægðir með það, sér í lagi þegar reglurnar eru mismunandi. Umræða um hópsmitsskýrslu Landakots, sem dreift hafði verið um kaffileytið á föstudagseftir- miðdag, kraumaði um helgina. Ýms- um þótti hratt skautað í skýrslunni yfir vinnubrögð og viðbrögð stjórn- enda spítalans, en þar var skuldinni skellt á húsakost þar innan dyra, sem þó er varla nýtilkominn. Kjartan Jóhannsson, fyrrverandi ráðherra, formaður Alþýðuflokks- ins, sendiherra og framkvæmda- stjóri EFTA, lést ríflega áttræður að aldri.    Um 30 manns eru í endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19, en talsvert fleiri hafa óskað hennar. Reykjalundur var lokaður um hríð vegna faraldursins en hefur nú verið opnaður á ný. Þrátt fyrir að ferðamenn láti vart sjá sig á landinu hefur umsóknum um alþjóðlega vernd hér á landi fjölgað talsvert að undanförnu, ekki síst fólks sem þegar hefur fengið vernd í öðrum löndum. Palestínuarabar hafa verið áberandi í þeim hópi. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn lögðu fram tillögu um viðspyrnu- aðgerðir fyrir bæði fólk og fyrirtæki, sem áttu það flestar sameiginlegt að geta komið til framkvæmda þegar í stað. Meirihlutinn felldi þær allar, en Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri fullvisaði fólk um að í fyllingu tímans kæmu fram ýmsar aðgerðir sem borgin hefði unnið að um nokkra hríð. Af vettvangi borgarinnar er það einnig að frétta að endurnýjun Laugardalslaugar er komin í far- vatnið, en endurbyggja þarf hana að mestu leyti. Þar verður sjálfsagt helsta álitaefnið hvað verði um stúk- una, ónotaðasta mannvirki á Íslandi, sem hins vegar setur mikinn svip á svæðið. Breytingar eru yfirvofandi hjá Ríkisútvarpinu hvað varðar þuli þess, en gríðarleg fastheldni mun vera hjá tryggum hlustendum um hvernig þeim málum er skipað. Þá er í ráði að taka upp fréttatengda dagskrá í kringum hádegisfréttir. Norlandair fór í sínar fyrstu reglu- legu ferðir vestur á firði, samkvæmt samningi við Vegagerðina. Flogið verður milli höfuðborgarinnar og Bíldudals sex sinnum í viku og tvisv- ar í viku á Gjögur.    Talið er að bólusetning við kórónu- veirunni geti hafist hér á landi í jan- úar eða febrúar, en fyrsta kastið verður áhersla lögð á sérstaka áhættuhópa og lykilstarfsfólk, svo sem aldraða og sjúklinga, heilbrigð- isstarfsfólk og annað framlínufólk. Kópavogsbær áformar endurgerð Hamraborgar þar í bæ, en þar er um að ræða tugmilljarða verkefni, þar sem allt að þúsund íbúðir eru í bígerð. Nokkrar byggingar þar verða jafn- aðar við jörðu, en í staðinn munu rísa nokkrar nýbyggingar, allt að 12 hæða háar. Sem kunnugt er hefur netverslun aukist mikið í heimsfaraldrinum og af þeim sökum hefur álag á Póstinn aukist mikið. Þannig voru pakka- sendingar innanlands meira en helmingi meiri nú í október en var í sama mánuði í fyrra. Tafir á póst- sendingum til og frá landinu hafa einnig sett strik í reikninginn. Ókyrrðar gætti á stjórnarheimilinu í vikunni, sem birtist til dæmis í hnútusendingum milli Lilju Alfreðs- dóttur menntamálaráðherra og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra. Þá hefur ákvörðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, um að vera meðflutningsmaður á þingmanna- frumvarpi forsætisráðherra um stjórnarskrárbreytingar, ekki orðið til þess að kæta sjálfstæðismenn í stjórnarsamstarfinu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra lagði til við for- seta Íslands að þær Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen yrðu skip- aðar dómarar við Hæstarétt. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur ákveðið að skimun við komuna til landsins verði gjald- frjáls frá 1. desember til 31. janúar. Netárás var gerð á Arion banka, sem hafði víðtæk áhrif á fjarskipta- innviði landsins. Árásin á bankann heppnaðist ekki en olli meiri usla en ella vegna bilunar hjá erlendri net- varnarþjónustu.    Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,25% sem kom ýmsum á óvart, en þeir standa nú í 0,75%. Fróðlegt verður að sjá að hvaða leyti við- skiptabankarnir munu láta Jón og Gunnu njóta þess. Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) gáfu aftur út flughæfnisvottorð á Boeing 737-MAX farþegaflugvél- arnar, sem mun hafa áhrif um allan heim. Vélarnar hafa verið kyrrsettar frá því í mars 2019. Icelandair gerir ráð fyrir að vélarnar verði komnar í áætlunarflug næsta vor, ekki sé þörf fyrir þær í augnablikinu. Rakarastofur voru opnaðar á ný við mikinn fögnuð loðinna landsmanna. Hárskerar reikna með að 3-4 vikur taki að klippa af kúfinn sem safnast hefur, en á betri hárgreiðslustofum er allt upppantað fram að jólum og biðlistar. Samráð stjórnvalda við þegnana hef- ur tekið stakkaskiptum með sam- ráðsgáttinni svonefndu, sem tekin var í notkun snemma árs 2018, en þangað hafa frá upphafi borist 7.100 umsagnir. Kvarnir hins opinbera mala hins vegar hægt og fínt, svo samráðið getur tekið mörg ár. Þar bíður þannig 251 mál úrvinnslu ráðuneyta. Mjög hefur dregið úr drykkju og annarri vímuefnaneyslu íslenskra unglinga ef marka má niðurstöður rannsókna EPSAD, sem er samevr- ópskt verkefni um slíka upplýsinga- öflun. Samkvæmt henni fara íslensk- ir unglingar mun sjaldnar á fyllerí en í öðrum ríkjum Evrópu. Hins vegar er notkun tauga- og geðlyfja þeirra með því mesta sem gerist. Reykjavíkurborg líst ekkert á mála- leitan malaíska auðjöfursins Vin- cent Tan, sem reisa vill veglegt hót- el á miðbakka Reykjavíkurhafnar. Bendir borgin þess í stað á Effersey og finnst rakið að tugmilljarða lúxushótel rísi við olíutankana. Íslenskir minkar taka tilmælum sóttvarnayfirvalda ljóslega mun al- varlegar en danskir kollegar þeirra, en í skimun Matvælastofnunar fannst ekkert kórónuveirusmit í sýn- um sem tekin voru úr öllum minka- búum landsins. Í Danmörku var síð- asta minknum slátrað í sóttvarna- skyni á fimmtudag. Þess var minnst að 250 ár voru frá fæðingardegi myndhöggvarans Ber- tels Thorvaldsens, einhvers mesta listamanns sem til Íslands á ættir að rekja. Ófarir landsliðs Íslands í fótbolta karla í þjóðadeild UEFA héldu áfram þegar liðið tapaði fyrir Eng- lendingum á Wembley, 4:0, og féll niður í B-deild deildarinnar.    Ísland er í hópi þeirra ríkja Evrópu, þar sem fæst dauðsföll eru af völd- um kórónuveirunnar. Miðað við höfðatölu, auðvitað. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra leggur ýmsar skattbreyt- ingar til í frumvarpi. Þar á meðal að frítekjumarkið hækki í 300 þúsund krónur, sem mun einnig ná til arðs og söluhagnaðar hluta með skráð fé- lög á markaði. Öldurhús borgarinnar eru enn lok- uð. Drykkur vikunnar er því Molo- tov-kokteill. Beðið eftir bóluefni Minkar í Danmörku biðu einskis nema dauða síns í vikunni. Raunar án lagaheimildar, svo landbúnaðarráðherrann mátti segja af sér. Sýnataka á íslenskum minkabúum benti hins vegar til þess að þar væri ekkert kórónuveirusmit. AFP 15.11.-20.11. Andrés Magnússon andres@mbl.is Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. DLUX 4000 NÝTT Sterkasta D-vítamín sem völ er á frá Better You 4000 AE í hverjum úða • Sykurlaus munnúði • Sama góða piparmyntubragðið • 3ja mánaða skammtur • Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur Vítamín í munnúðaformi skila hámarksupptöku í gegnum slímhúð í munni sem gerir þau afar hentug í notkun.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.