Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Page 6
Ef allir eiga í samkeppni við alla á opnum mark-aði þá mun hulin hönd sjá til þess að heildinhagnist, ekki allir, en samanlagt. Þetta er grunnhugsun kapítalismans. Svo fundu menn það út að þótt samanreiknaður ávinningur af samkeppninni kynni að vera mikill þá skiptist hann ekki sem skyldi. Það vantar réttlætið sögðu kommúnistar og vildu skipuleggja svo ávinningur framfara gagnaðist okkur sem samfélagi. Og svo fóru menn að skiptast í fylk- ingar sem rifust um samkeppni og skipulag, hvort ætti að vega þyngra. Eitthvað rjátlaði af mönnum eftir því sem á leið og sáu menn annars vegar ókosti þess að láta hina huldu hönd um hituna, reynslan sýndi að sennilega væri hún ekki til, og hins vegar óaði mönnum við ofurskipulagi, sérstaklega þegar það var án lýðræðis, bara sálarlaus reglustikan. Í togstreitu samkeppni og skipulags hefur pendúllinn færst til í tímans rás. Síðustu áratugina hefur hann verið samkeppninni í hag; hún eigi að tryggja eilífan vöxt – hagvöxt sem sé allra meina bót. Ein er sú sem kveinkar sér undan þessari stefnu og það er sú sem við eigum allt okkar undir, sjálf Móðir jörð. Hún seg- ir að þenslustefna kapítalismans gangi ekki upp.Og hvað er þá til bragðs að taka? Snúast þarf til varnar fyrir Móður jörð. Verja þarf náttúruna fyrir ágengni mannsins. Boðað er til ráðstefna á heimsvísu, í Kyoto og París, þar sem ákveðið er að draga úr mengun jarðar. Stórkostlegt segir Móðir jörð eða þar til það rennur upp fyrir henni að meðalið sem á að gefa henni til heilsubótar sé gamla mixtúran sem er að ganga af henni dauðri. Það á nefnilega að gera nátt- úruvernd að bisniss. Og nú er hafist handa, öllum stærðum er snúið upp í mælanlegar einingar svo þær megi ganga kaupum og sölum. Til verða loftslags- kvótar og alls konar kvótar sem má kaupa og selja. Þannig kom það til að Íslendingar urðu kjarn- orkuþjóð. Við seljum nefnilega orkuna úr Þjórsá og Kapítalismi sem knúningsvél Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is „Snúast þarf til varnar fyrir Móður jörð,“ segir Ögmundur í grein sinni. „Verja þarf náttúr- una fyrir ágengni mannsins.“ VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020 Nú er að renna upp sá árstími þegar égfer venjulega að láta mig dreyma um aðflytja til útlanda. Komast frá íslensku haustlægðunum, hljóðinu af trjám að berja rúð- urnar og sköfunni á frosinni bílrúðu. Losna við kuldann og láréttu slydduna, klakann og myrkr- ið. Veturinn er farinn að sýna tennurnar og sama hversu léttur maður er verður aldrei sérstaklega spennandi að fara í vinnu og koma úr vinnu í sama myrkrinu og kuldanum. Ég sé mig fyrir mér að vakna á suðrænum slóðum og setjast út með kaffibollann á stutt- buxum. Finna notalega sólargeisla verma mig þar sem ég sit og velti því fyrir mér hvað ég eigi að gera restina af deginum. Loka augunum og sjá fyrir sér fólk heima að berjast gegn vindinum og hríðinni (því veður verður alltaf aðeins betra í útlöndum þegar maður veit af vondu veðri á Ís- landi). Vippa mér kannski aðeins út í laug til að kæla mig niður. Ég held að ég verði betri í vetur. Ég hef nefni- lega gert mér grein fyrir því að veður er ekki allt og kemur ekki í staðinn fyrir það sem skiptir mestu máli: Fjölskyldu og vini. Þetta rann upp fyrir mér í haust. Við fé- lagarnir í golfhópnum mínum áttum sem sagt að vera í Barcelona í byrjun september í ryder- keppni gegn erkióvinum okkar (sem eru reyndar miklir vinir okkar). Þetta höfum við gert árum saman og er alltaf hápunktur ársins hjá okkur félögunum. Og svo spillir ekki fyrir að við vinnum yfirleitt. (Fyrir þá sem ekki þekkja þá er Ryder keppni Bandaríkjanna og Evrópu í golfi. Við erum samt allir Íslendingar.) Við áttum að vera á geggjuðum golfvelli í brakandi sólskini, logni og almennum næsheit- um. Með ískaldri og ódýrri hressingu eftir leik. Niðurstaðan varð þrjár nætur í Borgarnesi. Og með fullri virðingu fyrir Borgarnesi þá er það frekar langt frá Barcelona. Lognið varð að átta til tíu metrum á sekúndu og sólin lét ekki sjá sig fyrr en á þriðja degi. Og svo voru náttúrlega tuttugu gráður í hitamun. En samt var þetta algjörlega stórkostlegt. Hópur af miðaldra körlum að upplifa sig sem al- vöru íþróttamenn í keppni sem öllu skipti. Al- gjörlega á taugum yfir því að klúðra einhverju og bregðast félögum sínum. Hvert einasta högg skipti máli og sigurgleðin svo einlæg og verð- skulduð. Sitja svo eftir hringinn og fara yfir þetta. Segja sögur sem allir hafa heyrt áður en eru svo skemmtilegar að þær bera vel nokkur skipti í viðbót. Jafnvel henda í eft- irhermur og fúla brandara. Þetta finnst mér nefnilega svo skemmtilegt – að vera með vin- um mínum og njóta þess að vera í góðum félagsskap. Þegar það tekst þá eru hlutir eins og sól og logn bara hugarástand. Vissulega væri hægt að vera í betra veðri. Og ég viðurkenni fúslega að ég öfunda aðeins þá sem hafa látið sig hafa það og skellt sér til sólar- landa í vetur. Mér verður hugsað til flugfélagsins sem auglýsti að það væri ekki áfangastaðurinn heldur ferðalagið sem öllu skipti, en niðurstaða mín er sú að það er hvorki ferðalagið né áfanga- staðurinn sem gerir útslagið. Það tapar smám saman sjarmanum að rölta um í útlöndum með grímu án þeirra sem standa þér næst. Og þá, þrátt fyrir alla sólina, strendurnar, pí- nakólöðurnar og grænu golfvellina, er kannski betra að bíta á jaxlinn, bíða aðeins og fara með vinum sínum og fjölskyldu. ’Ég sé mig fyrir mér að vakna ásuðrænum slóðum og setjastút með kaffibollann á stuttbuxum.Finna notalega sólargeisla verma mig þar sem ég sit og velti því fyrir mér hvað ég eigi að gera restina af deginum. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Staðir eru fólk GRUNNUR AÐ GÓÐRI HEILSU Vissir þú að um 80% af ónæmiskerfinu eru í meltingarveginum? KEFIR er auðugur af lifandi góðgerlum sem fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að bæta meltinguna og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru. Hann inniheldur einnig mikið af próteini, kalki og nauðsynlegum vítamínum eins og B12. KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.