Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 7
Blöndu til Evrópu þar sem framleitt er með kola-
brennslu og kjarnorku. Við fáum pening en sóðas-
timpil í kladdann. En Evrópusambandið gengur
lengra í umhverfisstefnu í þessum anda. Fyrst var
raforkukerfið markaðsvætt. Ís-
lensk stjórnvöld vildu náttúrulega
vera með á þeim vagni. Hver hefur
ekki fylgst með átakanlegri augýs-
ingaherferð nú í haust um að við
eigum öll að vera „í stuði“, vakin
kvölds og morgna til að velja ódýr-
asta rafmagnið þann daginn!
Nokkuð sem enginn maður hefur
áhuga á að verja dögum sínum til.
En ekki nóg með þetta. Að sjálf-
sögðu þarf að gera markaðskerfi
orkunnar umhverfisvænt. Nú er
það þannig að vilji menn tengja
virkjun miðlægu dreifikerfi verður
að gera það á markaðslega sjálf-
bærum forsendum, sem getur
reynst smávirkjunum erfiður hjalli.
En í því skyni að búa til umhverf-
isvænt raforkuumhverfi er unnið
að gerð styrkjakerfis fyrir slíkar
smávirkjanir að ógleymdum græn-
um vindmyllugörðum svo eigend-
urnir geti komið „vöru“ sinni
óhindrað á framfæri. Þarna ná samkeppni og skipu-
lagning saman en vel að merkja á forsendum hinnar
eilífu þenslu. Enn eitt atriði sem mætti nefna áður en
niðurstaða þessa pistils er lögð fram.Til að vega upp
á móti eitt þúsund og tvö hundruð milljörðum sem
ríkisstjórnin boðar í vegaframkvæmdir og aðrar sam-
göngufjárfestingar á næstu fimmtán árum með til-
heyrandi margföldun koltvísýr-
ings í andrúmsloftinu þegar öll
kurl verða komin til grafar, þá
þarf vitaskuld að gróðursetja
sem mest af trjám sem eyði
þessari nýju mengun loftsins. En
hvernig trjám? Okkur er sagt að
okkar gamla góða birki dugi illa,
það sé of seinvaxta, langbest sé
öspin, hún sé það tré sem veiti
þenslustefnu kapítalismans
mestu aflausnina. Niðurstaðan er
þá sú að við getum bætt þjóðar-
haginn mest með því að gera
okkur sem best samkeppnishæf á
markaðstorgi umhverfisvernd-
arinnar, virkjað hvern læk og
hverja lind og fengið til þess
styrki, reist sem flesta vind-
myllugarða og flutt út „af-
urðina“, gert landið að aspar-
skógi og selt loftslagskvótana
sem þannig fást og síðan koll af
kolli. Allt þetta fáum við með því
að gera kapítalismann að knúningsvél í lífróðri jarð-
arinnar. En gleymum því ekki sem við lærðum: Það
er engin hulin hönd.
’Til að vega upp ámóti eitt þúsund ogtvö hundruð milljörðumsem ríkisstjórnin boðar í
vegaframkvæmdir og
aðrar samgöngu-
fjárfestingar á næstu
fimmtán árum með til-
heyrandi margföldun
koltvísýrings í and-
rúmsloftinu þegar öll
kurl verða komin til
grafar, þá þarf vitaskuld
að gróðursetja sem mest
af trjám sem eyði þess-
ari nýju mengun lofts-
ins.
Morgunblaðið/RAX
22.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7
Eggert
Jóhannesson
mjolka.is
Fylgdu okkur á