Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020 LÍFSSTÍLL Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin, Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes Frækex Keto, vegan, gluteinlaust og að sjálfsögðu lífrænt í umhverfisvænum umbúðum þegar ég var tvítug. Mér leið eins og ég væri heima. Og þegar ég kom í annað skipti leið mér eins og ég væri að koma heim. En þá var ég á fullu í námi og fór aftur heim og fetaði þá braut,“ segir hún og fór aftur heim að klára námið. Hún gat þó ekki gleymt Íslandi og kom aftur árið 2012, þá til þess að ganga um öræfi landsins, en hún er mikill göngugarpur. „Ég gekk þá um landið, ein með tjald. Ég fór oft bara ein í fimm daga göngur sem var yndislegt. Það er svo gott að hverfa út í náttúruna. Ár- ið 2013 tók ég mér svo hálfs árs leyfi og kom hingað og gekk um landið í þrjá mánuði. Þá ákvað ég að fara í fyrsta sinn til Akureyrar en mig vantaði félagsskap og langaði að læra íslensku.“ Ákvað að flytja til Íslands Rebekka er frá Windich í Sviss en bjó rúman áratug í Zürich áður en hún kom hingað. Þar lagði hún stund á myndlist og kennslu og var þar myndlistarkennari í menntaskóla í tólf ár. Ísland togaði hana til sín og Rebekka ákvað að flytja til landsins árið 2015. Hún var komin í áhuga- vert og vellaunað starf í Sviss sem myndlistarkennari og þurfti að hugsa sig vel um áður en hún yf- irgæfi alveg líf sitt í Zürich. „En ég ákvað samt að koma hing- að og setjast að árið 2015, en ég byrjaði á að fá hálfs árs leyfi frá Það er farið að skyggja þegarblaðamaður bankar upp á hjásvissnesku listakonunni Re- bekku Kühnis í litla, skrítna og háa húsinu sem stendur í hlíðum Sval- barðsstrandar, gegnt Akureyri. Þar ríkir friður og ró og útsýnið yfir fjörðinn er dásamlegt. Rebekka býð- ur í bæinn og inn í afar litla en vist- lega stofu. Við setjumst við eldhús- borðið og gestgjafinn hitar ljúffengt sítrónute og býður upp á heimabak- aða súkkulaðimúffu sem erfitt er að standast. Húsið er hannað og smíðað að mestu af henni sjálfri, með góðri hjálp. Rebekka kennir nú norð- lenskum börnum smíði, sinnir mynd- list og nýtur náttúrunnar. En hvað er það sem dregur sviss- neskt borgarbarn til Íslands, og það í einangraða sveit? Alein í óbyggðum Það er um aldarfjórðungur síðan Re- bekka kom fyrst til Íslands. Hún segist hafa heillast af Íslandi alveg frá fyrstu heimsókninni. „Ég kom hingað fyrst til að vinna, vinnu. En eftir hálft ár var ég viss um að ég vildi búa hér. Ég hafði ver- ið aðeins byrjuð að læra íslensku úti, horfði á íslenskt sjónvarp og lærði dálítið. Fyrst þegar ég kom hingað norður vann ég á Backpackers og hélt námskeið en fór svo að kenna myndlist í menntaskóla. Nú er ég að vinna í Hrafnagilsskóla og kenni smíði og sinni útikennslu,“ segir hún og segir starfið mjög skemmtilegt. Byggði draumahúsið Rebekka býr ein í afar sérstöku húsi, en eins og margt annað í lífinu, var það tilviljun ein að hún endaði þar. „Ég var að hugsa um að kaupa mér íbúð á Akureyri en frétti af lóð hér, en arkitektinn Árni Árnason hafði teiknað hér nokkur hús sem stundum eru kölluð „mjólkur- umbúðahúsin“. Hann var með hug- mynd að húsi fyrir mig, að byggja hátt hús. Það er svo prívat hér og gott skjól. Það vildi samt enginn þessa lóð af því að fólki fannst ekki nógu gott útsýni héðan, en þá byggði ég bara uppi í brekkunni og hærra,“ segir hún og er alls ekki hægt að kvarta yfir útsýninu. Rebekka hannaði því sjálf draumahúsið sitt, með hjálp frá Árna. „Það var byrjað að byggja það haustið 2017 og var ég með yndis- legan smið, hann Kristján Örn Helgason. Við byggðum það saman. Ég er auðvitað ekki húsasmiður og hann sá um það grófa en ég sá um flest inni í húsinu. Ég sá um alla ein- angrun, gips, gólf og fleira. Hann kenndi mér að nota vélarnar og ég lærði þetta bara,“ segir hún og seg- ist hafa flutt inn í febrúar 2018, þó ekki hafi allt verið klárað þá. Húsið er aðeins 30 fermetrar í gólfflöt og stendur hátt, á tveimur og hálfri hæð. Niðri er stofa, eldhús og gestabað, á efri hæð er vinnustofa og stórt bað og mjög hátt til lofts. Loft- ið er svo tekið inn til helminga, og þar má finna nánast þriðju hæðina sem rúmar tvö lítil svefnherbergi. „Svo er ég með hæsnakofa og á nokkrar hænur. Hér er líka stór garður og þar rækta ég sjálf allt grænmeti. Ég hef verið mikið náttúrubarn allt frá barnsaldri Á efri hæðinni er vinnustofa Rebekku og frábært útsýni. Morgunblaðið/Ásdís Ljósmyndir/Rebekka „Ég er komin heim“ Svissneska listakonan Rebekka Kühnis hefur búið á Íslandi í fimm ár, en féll fyrir landinu löngu fyrr. Hún byggði sér afar sérstakt hús í Eyjafirði en gólf- flöturinn er aðeins 30 fermetrar. Þar unir hún sér vel í náttúrunni, teiknar, ræktar grænmeti og hugsar um hænur. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is  Rebekka hannaði og smíðaði sjálf þetta einstaka hús, með hjálp frá arkitekt og smiði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.