Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.11.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.11. 2020
LÍFSSTÍLL
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin,
Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes
Frækex
Keto, vegan,
gluteinlaust og að
sjálfsögðu lífrænt
í umhverfisvænum
umbúðum
þegar ég var tvítug. Mér leið eins og
ég væri heima. Og þegar ég kom í
annað skipti leið mér eins og ég væri
að koma heim. En þá var ég á fullu í
námi og fór aftur heim og fetaði þá
braut,“ segir hún og fór aftur heim
að klára námið.
Hún gat þó ekki gleymt Íslandi og
kom aftur árið 2012, þá til þess að
ganga um öræfi landsins, en hún er
mikill göngugarpur.
„Ég gekk þá um landið, ein með
tjald. Ég fór oft bara ein í fimm daga
göngur sem var yndislegt. Það er
svo gott að hverfa út í náttúruna. Ár-
ið 2013 tók ég mér svo hálfs árs leyfi
og kom hingað og gekk um landið í
þrjá mánuði. Þá ákvað ég að fara í
fyrsta sinn til Akureyrar en mig
vantaði félagsskap og langaði að
læra íslensku.“
Ákvað að flytja til Íslands
Rebekka er frá Windich í Sviss en
bjó rúman áratug í Zürich áður en
hún kom hingað. Þar lagði hún stund
á myndlist og kennslu og var þar
myndlistarkennari í menntaskóla í
tólf ár. Ísland togaði hana til sín og
Rebekka ákvað að flytja til landsins
árið 2015. Hún var komin í áhuga-
vert og vellaunað starf í Sviss sem
myndlistarkennari og þurfti að
hugsa sig vel um áður en hún yf-
irgæfi alveg líf sitt í Zürich.
„En ég ákvað samt að koma hing-
að og setjast að árið 2015, en ég
byrjaði á að fá hálfs árs leyfi frá
Það er farið að skyggja þegarblaðamaður bankar upp á hjásvissnesku listakonunni Re-
bekku Kühnis í litla, skrítna og háa
húsinu sem stendur í hlíðum Sval-
barðsstrandar, gegnt Akureyri. Þar
ríkir friður og ró og útsýnið yfir
fjörðinn er dásamlegt. Rebekka býð-
ur í bæinn og inn í afar litla en vist-
lega stofu. Við setjumst við eldhús-
borðið og gestgjafinn hitar ljúffengt
sítrónute og býður upp á heimabak-
aða súkkulaðimúffu sem erfitt er að
standast. Húsið er hannað og smíðað
að mestu af henni sjálfri, með góðri
hjálp. Rebekka kennir nú norð-
lenskum börnum smíði, sinnir mynd-
list og nýtur náttúrunnar.
En hvað er það sem dregur sviss-
neskt borgarbarn til Íslands, og það
í einangraða sveit?
Alein í óbyggðum
Það er um aldarfjórðungur síðan Re-
bekka kom fyrst til Íslands. Hún
segist hafa heillast af Íslandi alveg
frá fyrstu heimsókninni.
„Ég kom hingað fyrst til að vinna,
vinnu. En eftir hálft ár var ég viss
um að ég vildi búa hér. Ég hafði ver-
ið aðeins byrjuð að læra íslensku úti,
horfði á íslenskt sjónvarp og lærði
dálítið. Fyrst þegar ég kom hingað
norður vann ég á Backpackers og
hélt námskeið en fór svo að kenna
myndlist í menntaskóla. Nú er ég að
vinna í Hrafnagilsskóla og kenni
smíði og sinni útikennslu,“ segir hún
og segir starfið mjög skemmtilegt.
Byggði draumahúsið
Rebekka býr ein í afar sérstöku
húsi, en eins og margt annað í lífinu,
var það tilviljun ein að hún endaði
þar.
„Ég var að hugsa um að kaupa
mér íbúð á Akureyri en frétti af lóð
hér, en arkitektinn Árni Árnason
hafði teiknað hér nokkur hús sem
stundum eru kölluð „mjólkur-
umbúðahúsin“. Hann var með hug-
mynd að húsi fyrir mig, að byggja
hátt hús. Það er svo prívat hér og
gott skjól. Það vildi samt enginn
þessa lóð af því að fólki fannst ekki
nógu gott útsýni héðan, en þá byggði
ég bara uppi í brekkunni og hærra,“
segir hún og er alls ekki hægt að
kvarta yfir útsýninu.
Rebekka hannaði því sjálf
draumahúsið sitt, með hjálp frá
Árna.
„Það var byrjað að byggja það
haustið 2017 og var ég með yndis-
legan smið, hann Kristján Örn
Helgason. Við byggðum það saman.
Ég er auðvitað ekki húsasmiður og
hann sá um það grófa en ég sá um
flest inni í húsinu. Ég sá um alla ein-
angrun, gips, gólf og fleira. Hann
kenndi mér að nota vélarnar og ég
lærði þetta bara,“ segir hún og seg-
ist hafa flutt inn í febrúar 2018, þó
ekki hafi allt verið klárað þá.
Húsið er aðeins 30 fermetrar í
gólfflöt og stendur hátt, á tveimur og
hálfri hæð. Niðri er stofa, eldhús og
gestabað, á efri hæð er vinnustofa og
stórt bað og mjög hátt til lofts. Loft-
ið er svo tekið inn til helminga, og
þar má finna nánast þriðju hæðina
sem rúmar tvö lítil svefnherbergi.
„Svo er ég með hæsnakofa og á
nokkrar hænur. Hér er líka stór
garður og þar rækta ég sjálf allt
grænmeti. Ég hef verið mikið
náttúrubarn allt frá barnsaldri
Á efri hæðinni er
vinnustofa Rebekku
og frábært útsýni.
Morgunblaðið/Ásdís
Ljósmyndir/Rebekka
„Ég er komin heim“
Svissneska listakonan
Rebekka Kühnis hefur
búið á Íslandi í fimm ár,
en féll fyrir landinu
löngu fyrr. Hún byggði
sér afar sérstakt hús í
Eyjafirði en gólf-
flöturinn er aðeins 30
fermetrar. Þar unir hún
sér vel í náttúrunni,
teiknar, ræktar
grænmeti og hugsar
um hænur.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Rebekka hannaði og smíðaði
sjálf þetta einstaka hús, með
hjálp frá arkitekt og smiði.