Bæjarins besta - 21.03.1990, Blaðsíða 13
BÆJARINS BESTA
13
BOLUNGARVÍKURHÖFN
Almennurfundur
Hafnarstjórn Bolungarvíkur boðartil almenns fundar um málefni
Bolungarvíkurhafnar sunnudaginn 25. mars kl. 16 í Ráðhúsinu í
Bolungarvík.
Vita- og Hafnamálastjóri Hermann Guðjónsson mætir á fundinn.
Fundurinn er öllum opinn, og eru viðskiptaaðilar hafnarinnar sér-
staklega hvattir til að mæta.
Hafnarstjórn.
Umferðarráð:
HálfurmiUjarður
í súginn
- hættum aftanákeyrslum
IFREIÐATRYGG-
ingafélögin og Umferð-
arráð hafa ákveðið að standa
fyrir herferð gegn aftaná-
keyrslum í umferðinni.
Kynningarstarfið fer m.a.
fram í kvikmyndahúsum,
sjónvarpi og útvarpi og auk
þess verða auglýsingar á
strætisvögnum til áréttingar.
Stefnt er að því að fylgjast
með og mæla árangur af
starfinu. Rúmlega 20% allra
umferðaróhappa hér á landi
eru aftanákeyrslur. Áætlað
er að kostnaður við þau sé
um hálfur milljarður króna á
ári. Yfir 20% allra meiðsla í
umferðarslysum má rekja til
aftanákeyrslna. Par er svo-
kallaður „hálshnykkur"
mjög algengur. Oft leiða
þessi slys til örorku og al-
gengt er að fólk sé frá vinnu
svo mánuðum skipti vegna
þeirra.
Algengasta orsök óhappa
af þessu tagi er að ekki er
haft nóg bil á milli bíla. Sá
ökumaður sem gætir þess að
hafa nægilegt bil í næsta bíl á
síður á hættu að aka á hann -
svo einfalt er það nú. Pá
skiptir einnig miklu máli að
vera með hugann við akstur-
inn. Pað er nefnilega fullt
starf að aka bíl - ekki auka-
vinna. Hættum aftanákeyrsl-
um.
ARCTIC CAT *
w /
TIL SÝNIS OG SÖLU HJÁ
VIÐARI KONRÁÐSSYNI
LYNGHOLTI 11, ÍSAFIRÐI
l IHll mUHH
Our ivniarkahlc ncw Prowler ha
Iront susjxrnsion similar to that of tl
gœssivc rate rear suspension féáfure
more than any other snowmobile. Th
liglttweight. liquid-eoolal 440cc eng
fairmgartd wandscreen. It’s thenew
A ISAFIRÐI
PROWLER® NÝ KYNSLÓÐ
ARCTIC CAT VÉLSLEÐA
Spees
■"':spÍMxn 140 ce
Prowkr”
fe'úfSnsp
Senstng),
il.St
•í'i'.sing)
«ive Rate.
Shi.xk
R »1 •
a nc r\J
S 4650