Bæjarins besta - 21.03.1990, Blaðsíða 20
Veljum íslenskt!
Styðjum íslenskan iðnað
Álpönnurnar og pottarnir
frá Alpan fást hjá okkur.
straumur
SILFURGÖTV 5 - ÍSAFIfíOI
Flateyri:
Aldrei eins mikill
jafnfallinn snjór
Snjómoksturskostnaður
kominn á þriðju milljón
SAMGÖNGUR innan-
bæjar á Flateyri hafa ver-
ið að komast í eðlilegt horf á
undanförnum vikum. Ekki
hefur jafnmiklum jafnfölln-
um snjó kyngt niður á svo
stuttum tíma eins og gerst
hefur í vetur. Þó hefur tekist
að opna flest allar götur Flat-
eyrar.
Að sögn Kristjáns Jóhann-
essonar sveitarstjóra cr þetta
i fyrsta skipti sem notast er
við skúffumokstur á Flat-
eyri. Mest öllum snjónum
hefur verið mokað upp á
vörubíla og keyrt í sjóinn en
það hafa Flateyringar ekki
þurft að gera áður. Flateyr-
arhreppur á tvö tæki til snjó-
moksturs þ.e. stóra gröfu og
dráttarvéi. Þá hefur Vega-
gerðin verið með blásara
sem hreppurinn hefur fengið
Snjómoksturskostnaður á Flateyri er kominn vel á þriðju milljón króna.
afnot af auk þess sem
Payloder hefur verið tekinn
á leigu af einkaaðila. Kostn-
aður við snjómokstur á Flat-
eyri er kominn vel á þriðju
milljón króna sem er svipuð
upphæð og var allan síðast-
liðinn vetur.
ísafjörður:
Þingeyri:
Alkaliskemmdir
víðaíHlífl
Öldrunarráð vill láta athuga kostnað við viðgerðir
Kaupfélagið eykur
hlutafé í Barða h.f.
um 20 milljónir
OLDRUNARRÁÐ
lagði til á fundi fyrir
skömmu að tæknideild bæj-
arins verði falið að gera
framkvæmda- og kostnaðar-
áætlun vegna alkali-
skemmda á Hlíf I. Bæjar-
stjórn tók enga afstöðu til
þessarrar tillögu á fundi sín-
um þann 8. mars og óvíst
hvenær það verður gert.
Alkalískemmdirnar komu
fyrst í ljós árið 1985 en þá lét
stjórn Bsvf. Hlífar senda
borkjarna til Rannsóknar-
stofnunar byggingariðnaðar-
ins og þar fékkst úr því skor-
ið að um alkalivirkni væri
um að ræða í steypunni.
Húsið var steypt fyrir 1978
og steypan var framleidd hjá
steypustöðinni á ísafirði. Að
sögn Snorra Hermannsson-
ar, formanns öldrunarráðs,
Alkaliskemmdir eru farnar að sjást víða í Hlíf I.
komu skemmdirnar fyrst
fram á láréttum og hallandi
flötum og hafa aukist tölu-
vert á þessum fimm árum
sem liðin eru frá því að þær
sáust fyrst. ,,Pað þarf nátt-
úrulega að bregðast við
þessu til að fyrirbyggja að
þetta haldi áfram og
skemmdirnar verði ekki það
miklar að viðgerðir verði ill-
viðráðanlegar" sagði Snorri.
Eyjólfur Bjarnason bæjar-
tæknifræðingur sagði í sam-
tali við blaðið að tæknideild-
inni hefði ekki enn a.nt.k.
borist neitt erindi um að
kanna þessar skemmdir og
hann gæti ekki slegið á hve
mikið það gæti kostað að
gera við þær.
STJÓRN Kaupfélags Dýr-
firðinga á Þingeyri hefur
samþykkt að auka hlutafé sitt
í Sláturfélaginu Barða h.f.
um allt að 20 milljónir
króna. Aðaleigendur slátur-
félagsins eru kaupfélögin á
Þingeyri og Flateyri en sem
kunnugt er hefur Kaupfélag
Önfirðinga verið tekið til
gjaldþrotaskipta.
í fréttabréfi sem Kaupfé-
lag Dýrfirðinga hefur gefið
út fyrir félagsmenn segir að
allt bendi til þess að hlutafé í
sláturfélaginu verði aukið
stórlega og hafa flest sveitar-
félög í Vestur-ísafjarðasýslu
gefið vilyrði fyrir hlutafé að
upphæð samtals 2 milljónir
króna. Félag sláturleyfishafa
innan S.Í.S. mun væntanlega
leggja fram 3 milljónir í
hlutafé og auk þess mun inn-
leggjendum væntanlega
verða gefinn kostur á hluta-
fjáreign.
Lengi hefur staðið til að
halda fund með innleggjend-
um hjá félaginu um þessi mál
en vegna þeirrar óvissu sem
ríkt hefur um málefni fclags-
ins að undanförnu hefur það
farist fyrir. Viðræður voru
fyrirhugaðar við undirbún-
ingsstjórn að Félagi kjöt-
framleiðenda nýlega en
vegna ófærðar varð að fresta
þeim.