Bæjarins besta - 21.03.1990, Blaðsíða 12
12
BÆJARINS BESTA
Sjónvarpið:
Gerir þáttaröð
um hernámið
Yill ná tali af sjómönnum af skipum
sem urðu fyrir árásum Þjóðverja
það oft einhverjum voðaleg-
um atburðum sem hafa ein-
hvern tímann átt sér stað
þar, aftökum á fyrri öldum
eða slysum.
Þegar ég kem frá útlönd-
um til íslands finn ég oft þá
tilfinningu að landið hafi yfir
sér einhvers konar verndar-
hjúp, frá því stafa góðir
straumar. Ég held að það sé
vegna þess að íslendingar
hafa alltaf reynt að feta götu
hins góða og hér hafa aldrei
verið háð stríð. ísland hefur
verið milliliður á milli ann-
arra þjóða og við höfum
alltaf reynt að leysa deilur
friðsamlega og með rökum
frekar en með ofbeldi.
Vísindi skýra
aldrei allt
Það hefur oft verið erfitt
að hafa þessa hæfileika og
næmni og vita hluti sem aðrir
vita ekki. Viðhorf fólks
gagnvart þessu hafa hins
vegar breyst mikið í gegnum
árin. Hér í gamla daga voru
völvur grafnar í óvígðri mold
eins og kom fram í útvarps-
viðtali við prestinn í Bolung-
arvík um daginn. Fólk leit á
dulræna skynjun sem eitt-
hvað óguðlegt. Núna hefur
þetta breyst mikið sem betur
fer og þó sumt fólk líti enn á
okkur sem „svolítið skrítin“
þá eru miklu fleiri sem vita
að það er ekki hægt að út-
skýra allt í þessu lífi með vís-
indalegum rökum. Sumt er
okkur ekki ætlað að skilja
fyrr en síðar ef þá nokkurn
tíma.“
Við höfum setið í stofunni
hennar Siggu nær hálfan dag
en einhvers staðar verður að
láta staðar numið. Við látum
þetta gott heita núna og í
lokin, áhugasömum lesend-
um til upplýsingar látum við
símanúmerið hennar Siggu
fylgja hér með í lokin, það er
4672.
Það er ráðlegt fyrir vænt-
anlega kúnna að hafa með
sér blað og blýant og punkta
hjá sér spádómana, undirrit-
uð mælir ekki með notkun
segulbands nálægt svo magn-
aðri manneskju sem Sigríði.
A tveimur heilum spólum
sem voru teknar upp þennan
eftirmiðdag heyrðist ekkcrt
nema undarlegar truflanir og
skruðningar og stundum
langar þagnir. Viðtalið er
því skrifað eftir minni og yf-
irfarið vandlega af Sigríði
sjálfri. Sama segulband tók
upp á sömu spólur daginn
eftir. Kannski bilaði það
bara þennan eftirmiðdag,
kannski...
ANN 10. maí nk. verður
liðin hálf öld frá land-
göngu Breta á íslandi. Af
þessu tilefni hyggst Sjónvarp-
ið gera þáttasyrpu þar sem
rakin verður saga hernáms-
ins og stríðsáranna hérlendis
í máli og myndum, stiklað á
helstu stórviðburðum og Ijósi
brugðið á áhrif hersetunnar
á daglegt líf Islendinga.
Umsjónarmenn þáttanna
eru þau Helgi H. Jónsson
fréttamaður og Anna Heiður
Oddsdóttir dagskrárgerðar-
maður. í fréttatilkynningu
frá Sjónvarpinu segir að þeg-
ar hafi verið auglýst eftir frá-
sögum þeirra er vitni urðu að
landgöngu Breta og margir
hafa brugðist vel við. Enn
eru þó ótaldir nokkrir hópar
fólks er umsjónarfólki vænt-
anlegra . þátta þætti mikill
fengur að að ná tali af og má
þar fyrst nefna sjómenn af ís-
lenskum skipum sem urðu
fyrir árásum Þjóðverja.
Söinuleiðis leikur Helga og
hans fólki hugur á að heyra
frá einhverjum þeirra ís-
lendinga sem heim komu á
stríðsárunum fyrir tilstuðlan
íslenskra yfirvalda. Þessu til
viðbótar væri æskilegt að fá
frásagnir þeirra kvenna sem
drýgðu tekjur sínar með svo-
nefndum ,,Bretaþvotti“ er
mörgu heimili reyndist bú-
bót.
Loks er þeim tilmælum
beint til allra þeirra er luma
kunna á Ijósmyndum eða
kvikmyndum frá þessum
árum, sem og til þeirra er
kunna frá markverðum at-
burðum að segja, er tengjast
hersetunni með einhverjum
hætti, að hafa samband við
Helga eða Önnu hjá Sjón-
varpinu í síma 693900. Öll
vitneskja um hvers kyns
muni og minjar frá stríðsár-
unum væri sömuleiðis vel-
þegin. Þættirnir verða
a.m.k. þrír talsins og þeir
verða teknir til sýningar er
hálfrar aldar afmælið nálg-
ast.
NYKOMIÐ
☆ ☆☆
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF FRÖNSKUM OG ÞÝSKUM
BARNAFATNAÐIÁ MJÖG GÓÐU VERÐI.
☆ ☆☆
BÓMULLARPEYSUR Á BÖRN. MARGAR GERÐIR.
FRÁBÆRTVERÐ.
☆ ☆☆
ÍTALSKAR MUNSTRAÐAR SOKKABUXUR.
☆ ☆☆
GLÆSILEGT ÚRVAL GARDÍNUEFNA
í ÖLL HERBERGIHÚSSINS.
Sinar ffuéfénnsson. h. (f.
VEFNAÐARVÖRUBEILD I
Nemendur á námskeiði í málmsuðu hlýða á leiðbeinanda sinn
í Skipasmíðastöð Marsellíusar.
Farskóli Yestfjarða:
Námskeið
hafín
FARSKÓLI Yestfjarða er
tekinn til starfa og fyrir
skömmu hófust tvö nám-
skeið á vegum hans. Annað
er námskeið í málmsuðu sem
stendur yfir í eitt kvöld og
tvo daga á smíðaverkstæði
skipasmíðastöðvar Marsellí-
usar og hitt er námskeið í ís-
lensku fyrir útlendinga sem
haldið er tvisvar í viku í
Menntaskólanum á Isafirði í
tíu vikur.
Á íslenskunámskeiðinu
eru fimmtán manns og þegar
er fullskipað á annað nám-
skeið í málmsuðu sem fyrir-
hugað er að halda í maí.
Leiðbeinandi þar er kennari
frá Iðnskólanum í Reykja-
vík. Þá hafa þrír farið á veg-
um skólans á námskeið í
kælitækni sem haldið er í
Vélskóla íslands í Reykjavík
fyrir þátttakendur af lands-
byggðinni.
Guðmundur Einarsson
umsjónarmaður skólans
sagði í samtali við BB að
undirtektir við Farskóla
Vestfjarða væru góðar og_á
Patreksfirði er t.d. mikill
áhugi á námskeiði í stofnun
og rekstri fyrirtækja. Tíu
manns höfðu skráð sig til
þátttöku en fyrirlesari for-
fallaðist og verið er að finna
annan í hans stað. Þá hefur
fólk haft samband við skól-
ann og lýst áhuga á nám-
skeið af ýmsum toga, t.d.
námskeiði um steypu-
skemmdir, um útboðs- og
samningsskilmála, um
smíðamálma og fleiri.
Stefnt er að því að halda
námskeið í haust um vökva-
kerfi I (um þrýstiolíukerfi).
Enn vantar þó nokkra þátt-
takendur til viðbótar til að
hægt sé að halda þessi nám-
skeið. Miðað er við átta
manns. Þeir sem áhuga hafa
á því sem skólinn býður upp
á geta innritað sig og fengið
frekari upplýsingar í símum
94-3815/4215 og í heimasíma
umsjónarmanns 94-3697.