Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 4. D E S E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 286. tölublað 108. árgangur
20 dagartil jóla
Jólasveinalitabókin er á
jolamjolk.is
ÞAÐ ER ALLTAF
HÆGT AÐ BÚA
TIL HEIMA
KRISTÍN MEÐ
TVÆR TIL-
NEFNINGAR
ÞUNGT HLJÓÐ
Í ÍÞRÓTTAFÓLKI
Á ÍSLANDI
FJÖRUVERÐLAUNIN 37 KURR VEGNA KEPPNISBANNS 34ÞRÍLEIKUR SIGRÚNAR 36
Fyrir ári fengu 195 einstaklingar
fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ til
framfærslu en þeim hefur fjölgað
um 64% og eru nú 319. „Það er því
nauðsynlegt að bregðast við þessari
miklu aukningu og sporna gegn
henni með einhverjum hætti,“ segir
í bókun bæjarfulltrúa Reykjanes-
bæjar. Vakin er athygli á því að
fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er
mun lægri en grunnatvinnuleysis-
bætur. Skora bæjarfulltrúarnir á
ríkisstjórnina að lengja tímabundið
tímabil atvinnuleysisbóta. »2
64% fleiri fá nú
fjárhagsaðstoð
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gengisstyrking krónunnar gæti leitt
til þess að verð nýrra bíla sem kosta
nokkrar milljónir króna lækki um
hundruð þúsunda.
Þetta er mat Egils Jóhannssonar,
forstjóra Brimborgar, sem telur það
munu örva sölu. Gengið hafi haft
meiri áhrif á söluna en nokkur annar
þáttur síðustu áratugi.
Evran kostar nú um 153 krónur
en kostaði 165 krónur í lok október.
Benedikt Eyjólfsson, forstjóri
Bílabúðar Benna, segir umboðið þeg-
ar hafa lækkað verð á Porsche-bílum.
Til dæmis kosti jeppinn Porsche Ca-
yenne, sem er tengiltvinnbíll, nú frá
14,9 milljónum sem sé lækkun um
rúmlega milljón.
Kemur fram í byrjun ársins
Erna Gísladóttir, forstjóri BL,
segir gengisstyrkinguna munu hafa
áhrif á söluverð nýrra bíla.
„Ég myndi halda að við færum að
sjá lækkun í byrjun næsta árs. Það
er alltaf mikil samkeppni á bílamark-
aðnum. Ég held því að menn fari að
lækka verð fyrr en seinna, ef krónan
helst á þessu bili. Það er miklu betra
að bjóða hagstæðara verð, enda eru
menn þá líklegri til að finna fleiri
kaupendur,“ segir Erna um áhrif
verðlækkana.
Haldist gengið á þessu bili gæti
verð innfluttra vara lækkað og það
haft áhrif á þróun verðbólgu, sam-
tímis því sem áhrifa launahækkana
um áramótin fer að gæta í verðlagi.
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Elko, segir netsölu hafa allt að
sexfaldast í sumum flokkum milli
ára í nóvember. »6
Verð á bílum hefur þegar lækkað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Sundahöfn Verð nýrra bíla gæti
lækkað í byrjun næsta árs.
Gengisstyrking lækkar verð nýrra bíla Porsche kostar nú milljón minna
Vetrarlegt er um að litast á Akureyri eins og sjá
má. Mikið vindaveður gekk yfir landið í gær og
fóru hviður upp í allt að 60 m/s í Hamarsfirði á
Austurlandi í fyrrinótt. Það tekur að lægja í
fyrramálið en þá stígur kaldur loftmassi niður til
jarðar með tilheyrandi kulda: 10 til 12 gráðu
frosti er spáð á laugardag suðvestan til. Hita-
veitur hafa vart undan og biðla til almennings að
fara sparlega með heita vatnið. »2
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vonskuveðrið er aðeins stormurinn á undan frostinu
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Það hefur verið lögð á það mikil
áhersla í núverandi ástandi að ríkis-
valdið og sveitarfélögin haldi aftur af
sér í gjaldskrárhækkunum til að
leggja ekki of miklar byrðar á fyrir-
tækin og heimilin í landinu. Þarna fer
Sorpa algjörlega gegn því,“ segir
Lárus M.K. Ólafsson, viðskiptastjóri
á framleiðslusviði SI. Vísar hann þar
til boðaðra verðhækkana á þjónustu
Sorpu sem taka eiga gildi 1. janúar
næstkomandi.
Séu núverandi verðskrá og sú boð-
aða bornar saman kemur í ljós að í
sumum tilvikum nemur hækkun á
móttökugjaldi endurvinnslustöðva
fyrirtækisins hátt í 300%. Það á t.d.
við um steinefni frá byggingariðnað-
inum og glerumbúðir og glerílát. Hef-
ur verðskráin hingað til miðað við að
1,86 kr. væru greiddar fyrir hvert
innlagt kíló en frá áramótum hækkar
gjaldið í 6,82 kr.
„Þetta virkar ekki mikið en hækk-
unin getur leitt til kostnaðarauka upp
á allt að 30 milljónir króna hjá stærri
byggingarverktökum á einu ári. Það
gefur augaleið að þetta verður til þess
að hækka byggingarkostnað, ekki síst
á þéttingarreitum þar sem rýma þarf
til fyrir nýju húsnæði á kostnað gam-
als,“ segir Lárus.
Hann segist ekki trúa því fyrr en á
því verður tekið að þessar hækkanir
verði að veruleika og að þarna virðist
sem fyrirtækið sé að sækja tekjur til
atvinnugreina sem það telji aflögu-
færar. „Það hafa engar málefnalegar
skýringar komið fram í tengslum við
þessar hækkanir, t.d. að verið sé að
breyta aðferðum við meðhöndlun úr-
gangsins,“ segir Lárus.
Í ákveðnum tilvikum boðar Sorpa
lækkandi álögur á viðskiptavini sína.
T.d. þá sem hyggjast leggja inn hrossa-
tað. Lækkar gjaldið fyrir þann úrgang
úr 8,56 kr. á kíló í 2,59 kr. Hænsnaskít-
ur lækkar úr 18,14 kr. í 12,15 kr. Þá
lækkar einnig verðskráin fyrir meng-
aðan uppgröft úr 16,54 kr. í 8,43 kr.
Athygli vekur að skil á uppsópi
vegna götuhreinsunar hækka um
140%, úr 2,59 kr. á kíló í 6,20 kr. á kíló.
Sorpa hefur átt í verulegum fjár-
hagserfiðleikum sem m.a. eru raktir
til framúrkeyrslu við uppbyggingu
gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
Sorpa sprengir upp verðskrána
Miklar verðhækkanir á ákveðnum liðum verðskrár Samtök iðnaðarins segja hækkanirnar koma
illa við byggingargeirann Nemur hækkunin í sumum tilvikum nærri 300% Þröng fjárhagsstaða
Maður sem féll ofan í vök á Suð-
urlandi í gærkvöldi var úrskurð-
aður látinn við komu á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands.
Endurlífgunartilraunir báru ekki
árangur. Ekki er vitað um dánar-
orsök en lögreglan er með málið til
rannsóknar. Lögreglu barst til-
kynning um mann er hafði setið
fastur í vatni úti í mýri og hafði
hann kallað eftir aðstoð. Mikið var
dregið af honum þegar björgunar-
menn komu á vettvang.
Maður lést eftir að
hafa fallið í vök