Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 MERCEDES-BENZ ML 500 Árgerð 2005 Ekinn 140 þ.km. Skoðun 2021 Bensín 303 hö. 2.270 kg. Sjálfskipting Fjórhjóladrif Verð kr. 1.690.000 Bíllinn er staðsettur á Bílasölu Íslands. Nánari uppl. í s. 510 4900 / bilasalaislands.is | Raðnr. 201175 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tillaga að fjárhagsáætlun Reykja- nesbæjar gerir ráð fyrir því að gjöld umfram tekjur hjá bæjarsjóði verði á næsta ári 2,4 milljarðar króna. Hall- inn verður minni hjá samstæðu Reykjanesbæjar, þegar hlutur bæj- arins í HS veitum er tekinn með, en verður samt 1,8 milljarðar, sam- kvæmt áætlun- inni. Gríðarlegur viðsnúningur hef- ur orðið frá fyrri áætlunum bæjar- ins. Mikið atvinnuleysi er helsta ástæðan. Þegar fjárhagsáætlun Reykjanes- bæjar fyrir árið 2020 var lögð fram fyrir ári var jafnframt sett fram áætl- un um tekjur og gjöld á árinu 2021. Aðstæður hafa breyst mikið síðan. Samkvæmt þeirri fjárhagsáætlun sem lögð var fram til fyrri umræðu fyrr í vikunni eru tekjur 1,7 milljörð- um minni en reiknað var með fyrir ári og gjöldin 1,2 milljörðum meiri en áætlað var. Yfir 22% atvinnuleysi „Ástæðan fyrir þessu er fyrst og fremst mjög mikið atvinnuleysi, það er yfir 22% núna. Það skýrist aðal- lega af því að Keflavíkurflugvöllur er stopp vegna kórónuveirunnar. Í kjöl- farið hafa útgjöld til velferðarmála aukist. Svo erum við að bæta í rekst- urinn, meðal annars að taka í notkun nýjan skóla. Í sumar vorum við með átak í atvinnumálum, réðum til okkar fólk til að flýta tímabundið verkefn- um og reyna að leggja okkar af mörk- um til að búa til störf og draga úr at- vinnuleysi í samvinnu við atvinnu- lífið, félagsmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun. Við höldum þessu áfram á næsta ári,“ segir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri. Hann bætir því við að kórónu- veirufaraldurinn hafi einnig leitt til aukinna útgjalda í rekstri bæjarins. Þurft hafi að fjölga vöktum og fleira vegna sóttvarna. Betra að gefa í Nú er útlit fyrir eins milljarðs króna halla af rekstri bæjarsjóðs Reykjanesbæjar í ár en liðlega 700 milljóna króna halla af samstæðu bæjarins. Spurður hvort ekki hafi komið til greina að draga saman segl- in í rekstri við þessar aðstæður og í ljósi mikils halla á næsta ári segir Kjartan að ríkið hafi tekið þá stefnu að bæta í og hvatt sveitarfélögin til að gera slíkt hið sama. „Við erum sam- mála því. Við teljum að sá kostnaðar- auki sem kemur fram í hærri launum og launakostnaði á næsta ári myndi annars koma fram sem kostnaður annars staðar í kerfinu, sem aukin fjárhagsaðstoð og annað slíkt. Sveitarfélagið stendur miklu betur núna en það gerði árið 2014. Við bár- um gæfu til að lækka skuldir þegar uppgangur var og ferðaþjónustan í blóma og búum að því núna. Við erum ágætlega í stakk búin til að taka á okkur auknar skuldbindingar og skuldir, þolum það í nokkurn tíma,“ segir Kjartan. Bæjarsjóður með 2,4 milljarða halla  Aðstæður í rekstri Reykjanesbæjar hafa gjörbreyst á einu ári vegna mikils at- vinnuleysis  Ekki slakað á í fjárhagsáætlun enda segir bæjarstjóri að staðan sé góð Flugstöð Uppgangur var í Reykjanesbæ þegar erlendir ferðamenn flykkt- ust til landsins. Á sama hátt er mikið atvinnuleysi þegar umsvifin eru lítil. Kjartan Már Kjartansson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrir ári fengu 195 einstaklingar fjárhagsaðstoð frá Reykjanes- bæ til framfærslu en þeim hefur fjölgað mikið og eru nú 319. „Það er því nauðsynlegt að bregðast við þessari miklu aukningu og sporna gegn henni með einhverjum hætti. Upphæð fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga er í öllum tilfellum lægri en grunnatvinnuleysisbætur og því erfitt fyrir fólk að þurfa að treysta á þær sér til fram- færslu,“ segir í bókun bæjarfull- trúa í Reykjanesbæ. Benda þeir á að atvinnuleysis hafi verið farið að gæta á Suð- urnesjum áður en kórónuveiru- faraldurinn skall á og staðan sé nú grafalvarleg. Er þar verið að vísa til falls Wow air. Bæjar- stjórn skorar á ríkisstjórnina að lengja tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum kórónuveirufaraldursins. 319 fá nú framfærslu AUKIN ÚTGJÖLD „Það var frábært að sjá að áhorf- endur voru mjög virkir á samfélags- miðlum undir #mblbingó. Þeim tókst meira að segja að láta mig fá heiftar- legt hláturskast í beinni útsend- ingu,“ segir Sigurður Þorri Gunn- arsson, útvarpsmaður og bingóstjóri á K100. Sjötti bingóþáttur K100 með Sigga og Evu Ruzu var sendur út í gær á mbl.is og á rás 9 í sjónvarpi Símans. Mikil þátttaka var eins og síðustu fimmtudaga og hundruð vinninga gengu út. Aðalvinningar voru meðal annars Samsung-snjallúr og gjafa- bréf í þyrluflug. Tónlistarmaðurinn Auður tróð upp að þessu sinni. „Við höldum ótrauð áfram fram að jólum og vonum að fólk verði áfram með okkur,“ segir Siggi. Morgunblaðið/Eggert Stemning Tónlistarmaðurinn Auður tróð upp með Sigga Gunnars í gær. Fékk hláturskast í beinni  Mikil þátttaka í bingói á mbl.is Gular veðurviðvaranir voru í gildi í öllum landshlutum í gær nema suð- austan til þar sem appelsínugular viðvaranir voru í gildi. Hæst fór vindur í 32,5 metra á sekúndu í Hamarsfirði á Austurlandi og fóru hviður í rúmlega 60 metra í fyrrinótt samkvæmt upplýsingum frá Veður- stofunni. Á laugardagsmorgun á svo að lægja en þá brýtur ískaldur loft- massi sér leið til landsins niður úr háloftunum og búast má við 10 til 12 stiga frosti í höfuðborginni. Vegna alls þessa frostaveðurs hafa landsmenn verið hvattir til að stilla heitavatnsnotkun sinni í hóf. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp- lýsingafulltrúi Veitna, sagði að Veit- ur hefðu hækkað hitastig vatns í leiðslum sínum til að hvetja lands- menn til að nota minna af heitu vatni. En hvernig má það vera að hita- veitur hafi ekki undan þrátt fyrir að samfélagið sé í hægagangi vegna kórónuveirufaraldursins og hér á landi margfalt færri ferðamenn en í eðlilegu árferði? Breyttri hegðun notenda í heimsfaraldrinum er víst um að kenna. „Það virðast vera ein- hver sterk tengsl við Covid og breytta hegðun fólks,“ sagði Gauti Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, í samtali við mbl.is í gær. „Ímyndum okkur að við séum komin fram í tímann og heimavinnan er al- geng – þá er komin ný breyta inn.“ Máli sínu til stuðnings vísar hann til rannsóknar á 350 kínverskum heim- ilum í fyrstu bylgju faraldursins þar í landi. Sýni rannsóknin 60% aukn- ingu á orkunotkun heimila vegna hitunar og kælingar og 40% aukn- ingu vegna lýsingar. Breytt hegðun veldur vatnsskorti  Vetrarveður um allt land  Fólk hvatt til að nota minna heitt vatn Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Vetrarveður Svona var umhorfs á Húsavík í gær. Veðurviðvaranir voru um allt land en veður á að skána í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.