Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
591124
BMW X5 Xdrive ‘11, sjálfskiptur,
ekinn 187 þús. km. Verð: 3.490.000 kr.
112900
Opel Astra Innovation ‘18, beinskiptur,
ekinn 80 þús. km. Verð: 2.190.000 kr.
446452
Toyota Avensis Active ‘16, sjálfskiptur,
ekinn 69 þús. km. Verð: 2.490.000 kr.
JEEP Grand Cherooke Laredo ‘09, sjálfsk.
ekinn 139 þús. km. Verð: 1.690.000 kr.
446471
SsangYong Korando Hlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 46 þús. km. Verð: 3.990.000 kr.
446560
591120 591123 446498
Land Rover Evoque Pure ‘13, sjálfskiptur,
ekinn 153 þús.km. Verð: 3.490.000 kr.
591057 446531
Notaðir bílar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Bílasala suðurnesja
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Suzuki Vitara gl+ ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 64 þ. km. Verð: 2.990.000 kr.
Opel Mokka X Innovation ‘18. sjálfskiptur,
ekinn 72 þús. km. Verð: 3.390.000 kr.
Nissan X-trail Tekna ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 64 þús. km. Verð: 4.990.000 kr.
SsangYong Rexton Dlx ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 87 þús. km. Verð: 3.990.000 kr.
Tilbúin í ævintýri vetrarins?
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, segir verð nýrra bíla geta
lækkað um hundruð þúsunda vegna
gengisstyrkingar.
„Það er öruggt að gengisstyrk-
ingin mun leiða til verðlækkunar.
Verð nýrra bíla hreyfist mjög línu-
lega eftir gengi krónunnar. Hátt
hlutfall af kostnaðarverðinu er enda
af erlendum uppruna. Spurningin er
því hvað umboðin eiga stóran lager af
bílum sem hafa verið greiddir á
gamla genginu.“
Egill bendir á að gengi krónu
gagnvart evru hafi styrkst um 6-7%
síðan hún fór í 165 krónur í október.
Yfirfært á verð nýrra bíla geti
þetta skilað 300 þúsund króna verð-
lækkun á 5 milljóna króna bíl og 600
þúsund króna lækkun á 10 milljóna
króna bíl. Meðalverð nýrra seldra
bíla hjá Brimborg sé nú 4-5 milljónir
króna og hafi hækkað dálítið í
niðursveiflunni. Skýringin sé minni
sala á ódýrari nýjum bílum.
Næmur fyrir genginu
Spurður hversu langan tíma það
muni taka Brimborg að ganga á lag-
er óseldra bíla segir Egill að fyrir-
tækið hafi tekið þá ákvörðun fyrir ári
að hafa lítinn lager og leggja heldur
áherslu á forsölu.
„Það þýðir að svona verðlækkun
skilar sér miklu hraðar út í verðlag-
ið,“ segir Egill.
Gengisstyrkingin muni hafa mikil
áhrif á markaðinn.
„Markaðurinn er gríðarlega næm-
ur fyrir verðbreytingum. Gengið hef-
ur alla tíð verið sá þáttur sem hefur
mest áhrif á bílasölu á Íslandi. Bíla-
sala minnkar um leið og gengið fer að
veikjast og hún eykst þegar krónan
styrkist. Það er af því að samkeppnin
er svo mikil að allar gengisbreyt-
ingar fara beint út í verðlagið.“
Metsala á notuðum bílum
Egill segir gengisáhrifin koma síð-
ar fram í verði notaðra bíla.
„Þetta ár hefur verið stærsta árið
hjá okkur í sölu notaðra bíla. Það
varð sprenging í sölunni eftir að Ís-
lendingar fóru að ferðast innanlands.
Breyttar ferðavenjur ásamt pen-
ingum sem áttu að fara í ferðalög er-
lendis og auknar ráðstöfunartekjur
vegna vaxtalækkana hafa líka haft
áhrif. Sala nýrra bíla hefði líka aukist
mikið ef ekki hefði verið fyrir mikla
veikingu á krónunni. Vaxtalækk-
anirnar hafa virkilega örvað mark-
aðinn og skilað sér beint út í bílalán-
in.“
Keyptir inn á öðru gengi
Erna Gísladóttir, forstjóri BL,
segir gengisstyrkinguna munu hafa
áhrif á söluverð nýrra bíla.
„Ef styrkingin helst áfram mun
hún lækka verðið en birgðirnar okk-
ar eru allar í öðrum gengistölum. Það
er svolítið mismunandi milli fram-
leiðenda hvað við erum lengi að velta
birgðunum. Það getur verið frá
þremur og upp í átta mánuði.
Ég myndi halda að við færum að
sjá lækkun í byrjun næsta árs. Það
er alltaf mikil samkeppni á bílamark-
aðnum. Ég held því að menn fari að
lækka verð fyrr en seinna, ef krónan
helst á þessu bili. Það er miklu betra
að bjóða hagstæðara verð, enda eru
menn þá líklegri til að finna fleiri
kaupendur.“
Erna segir aðspurð að gengisveik-
ingin síðustu mánuði, og verðhækk-
unin í kjölfarið, hafi haft minni áhrif
en ætlað var. „Áhrifin af veikingu
krónunnar á einstaklingsmarkaðinn
voru ekki jafn mikil og við bjuggumst
við. Hann hefur enda haldist stöð-
ugur þrátt fyrir kórónuveiru-
faraldurinn,“ segir Erna.
Munu kjósa bílaleigubíla
Salan á einstaklingsmarkaði hafi
verið ágæt. Hins vegar sé yfir 20%
samdráttur í sölu til fyrirtækja og al-
gjör samdráttur í sölu til bílaleiga.
„Hluti af ástæðunni fyrir góðri
sölu á notuðum bílum er að bílaleigur
hafa ekki dælt þeim inn á markaðinn.
Þvert á móti hefur framboðið skilað
sér hægt og rólega í takt við eftir-
spurnina,“ segir Erna.
Hún segir markað með bílaleigu-
bíla munu glæðast þegar faraldurinn
gengur niður.
„Vonandi fjölgar ferðamönnum
með dreifingu á bóluefni. Við gerum
ráð fyrir að ferðamennirnir velji
frekar að ferðast með bílaleigubíl en
að ferðast í hópum. Að þeir sem hafi
aðeins meira milli handanna verði
fyrstir til að ferðast eftir samdrátt-
inn erlendis. Það fólk hefur yfirleitt
efni á bílaleigubíl.“
Norska krónan lítið hreyfst
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Elko, segir gengisstyrkinguna
ekki munu hafa mikil áhrif í bili.
Krónan hafi enda ekki styrkst mikið
gagnvart norsku krónunni.
„Við flytjum inn megnið af okkar
vörum í norskum krónum nema það
sem við kaupum af innlendum birgj-
um. Krónan var að veikjast allt
haustið. Stóru innkaupin okkar eru
því á hækkandi gengi. Við birgjum
okkur upp snemma fyrir jólatörnina
sem byrjar orðið snemma með svört-
um fössara og þessum netdögum.
Það má því segja að það sé inn-
kaupahlé þegar líður að nóvember og
út desember,“ segir Gestur en verð-
merkingar í verslunum Elko breyt-
ast í takt við gengið. „Verð okkar er á
gengi dagsins. Það hækkar eða lækk-
ar eftir því sem vörurnar berast inn.
Ef það eru litlar breytingar á geng-
inu hækkar verðið hvorki né lækk-
ar,“ segir Gestur.
Hafa mismikinn veltuhraða
Hann segir aðspurður að Elko
velti lagernum fjórum sinnum á ári.
„Sumar vörur hafa mikinn veltu-
hraða. Til dæmis snjallsímar. Þar
koma verðbreytingar nokkuð hratt
inn. Það er hins vegar minna um
hraðar verðbreytingar í stærri heim-
ilistækjum.“
Gestur segir verslanir Elko reknar
með hálfum afköstum vegna fjölda-
takmarkana. Elko finni sérstaklega
fyrir því í stórversluninni í Lindum.
Þar sé samdrátturinn að jafnaði 40%
í hverjum mánuði.
„Á móti kemur að veltan í vefversl-
un okkar er fjórfalt til sexfalt meiri
en á sama tíma í fyrra. Fyrir vikið er
nettóaukning hjá okkur í sölu,“ segir
Gestur. Netsala hafi þannig verið
17% af veltunni í nóvember í fyrra en
hafi nú verið um 60%. Fyrirtækið
áætli að 80-85% kaupenda hafi ýmist
skoðað vörurnar á netinu, eða keypt
á netinu.
„Það hefur sínar afleiðingar. Því
fylgir talsverður kostnaður að vinna
allan sólarhringinn við að koma
vörum frá okkur. Við erum ekki með
ásættanlega þjónustu við viðskipta-
vini okkar sem kaupa á vefnum, því
það tekur marga daga að vinna úr
pöntunum og koma þeim heim til við-
skiptavina. Ástæðan er meðal annars
sú að Pósturinn ber við annríki og er
lengi að afgreiða pantanir. Það er út
af fyrir sig hamlandi. Svo erum við
með samkomutakmarkanir á lag-
ernum og megum ekki vera nema tíu
að pakka.
Vefurinn er orðinn langstærsta
búðin okkar ef út í það er farið. Hann
verður það ekki á næsta ári, ef allt
verður eðlilegt, en það kæmi ekki á
óvart ef hlutur vefjarins verður um
25% af veltunni. Síðan, í framtíðinni,
held ég að búðir muni minnka og
Elko-búðirnar verða ekki mikið
fleiri. Við erum að opna búð á Akur-
eyri vonandi í næstu viku, en ég
hugsa að vefurinn taki að öðru leyti
við aukningunni,“ segir Gestur.
Gengisstyrking mun lækka verðið
Forstjórar Brimborgar og BL vænta verðlækkana í kjölfar gengisstyrkingar krónu undanfarið
Framkvæmdastjóri Elko segir netsölu hafa allt að sexfaldast í sumum vöruflokkum milli ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gengisáhrif Veiking krónu hefur átt þátt í minni sölu nýrra bifreiða.
Benedikt
Eyjólfsson,
forstjóri og
stofnandi
Bílabúðar
Benna, segir
sjálfgefið að
verð nýrra
bíla lækki
með styrk-
ingu krón-
unnar. Fyrir
um hálfu ári hafi evran kostað
um 149 kr. en síðan hafi gengið
gefið eftir og það bitnað á sölu
nýrra bíla til einstaklinga.
Með sterkara gengi, lægra
verði og auknum umsvifum í at-
vinnulífinu sé að vænta meiri
sölu nýrra bíla. Bílabúð Benna
skili til dæmis um leið gengis-
breytingum í verði Porsche-
bifreiða.
Þá hafi sögulega lágir vexti af
bílalánum örvað sölu. Nú kosti
innan við 4.000 krónur á mán-
uði að taka lán fyrir hverri millj-
ón og innan við 50 þúsund
krónur samtals á ári.
BÍLABÚÐ BENNA
Benedikt
Eyjólfsson
Meðalgengi evru
frá byrjun október
170
165
160
155
150
Heimild: Landsbankinn.is
2. október 3. desember
EUR/ISK
162,2
165,2
153,2
Væntir meiri
sölu 2021