Morgunblaðið - 04.12.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.12.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 INXX II Glæsilegasta lína okkar til þessa. INXX II BLÖNDUNARTÆKI Brushed brass Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is Það er þess virði að skoða pist-il Björns Bjarnasonar um efni og innihald Pírata, enda fæst þar sem sýnist. Og Björn vitnar einnig beint í þeirra eigin orð:    Fulltrúanefndíslenskra Pírata hefur áhyggjur af starfsumhverfi innan evrópska samstarfsvettvangsins PPEU – evrópskir Píratar. Þrátt fyrir að hafa sett á lagg- irnar trúnaðarráð innan PPEU hefur fulltrúanefndin áhyggjur af áreiti, áreitni og ofbeldis- menningu innan evrópskra Pí- rata og telur hana skaðlega fyrir pólitískt samstarf.    Ef PPIS nær kosningu til setuí stjórn PPEU á nýjan leik munu íslensku fulltrúarnir beita sér fyrir því að innleitt verði verklag þar sem lögð verður áhersla á bann við mismunun, einelti, áreitni, þar á meðal kyn- ferðislegri og kynbundinni áreitni, og ofbeldi.“ Þá kemur fram í yfirlýsingu frá Oktavíu Hrund á vefsíðunni að hún treysti sér ekki til þátt- töku í fjarfundi fulltrúanefndar evrópskra Pírata af því að hún sætti sig ekki við áreitið sem mæti henni þar, hún líti ekki á nefndina sem safe place – öruggt svæði.    Það er þessi pólitíska ofbeldis-menning sem einkennir framgöngu sumra kjörinna full- trúa Pírata hér. Þennan þátt í stjórnmálastarfi Pírata ber að ræða á opinberum vettvang.    Það auðveldar skilning á inn-antómum skömmum og sví- virðingum Þórhildar Sunnu Æv- arsdóttur.“ Píratar áleitnir STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ást- hildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, hafa undirritað samning um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 á Akureyri, en þar stendur Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð. Áætlað er að framkvæmdin kosti alls þrjá millj- arða króna. Ríkissjóður mun greiða 85% en Ak- ureyrarbær 15%. Stefnt er að því að heimilið verði tilbúið til notkunar í lok ársins 2023. Með þessari viðbót fjölgar hjúkrunarrýmum á Akur- eyri úr 170 í 230. Að sögn heilbrigðisráðuneytisins er skortur á hjúkrunarrýmum á Akureyri og ljóst að þörf fyrir fleiri rými muni aukast hratt á næstu árum. Framkvæmdin verður boðin út sem alútboð og segir heilbrigðisráðuneytið að reynslan sýni að sú leið geti stytt framkvæmdatíma og leitt til allt að 10% lægri stofnkostnaðar en ef farin væri hefð- bundin leið opinberra framkvæmda. Þeir sem vilja vinna verkið bjóða í skilgreinda heildarupphæð. Jafnframt liggur fyrir ítarleg þarfalýsing sem þarf að uppfylla. Teymi bjóð- enda, sem valin eru á grundvelli forvals, leggja síðan fram tillögur sem metnar verða út frá gæð- um. Byggja nýtt hjúkrunarheimili  60 rýma heimili við Lögmannshlíð á Akureyri Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Með viðbót við Hjúkrunarheimilið Lög- mannshlíð verða 230 hjúkrunarrrými í bænum. Salmann Tamimi, tölv- unarfræðingur og for- stöðumaður Félags múslima á Íslandi, er látinn, 65 ára að aldri. Salmann fæddist 1. mars árið 1955 í Jerú- salem. Foreldrar hans voru Salim Abu Khaled al Tamimi og Nazima abu Rajabb al Tamimi. Hann kom til Íslands á árinu 1971, þá 16 ára gamall. Hann var á sjó og í byggingarvinnu í fyrstu en á seinni ár- um menntaði hann sig sem tölv- unarfræðingur og vann lengst af hjá Borgarspítalanum, síðar Land- spítalanum. Salmann stofnaði Félag múslima á Íslandi árið 1997 og var formaður þess til margra ára. Hann var einnig stofnfélagi í Fé- laginu Ísland-Palest- ína og var ötull tals- maður réttinda Palestínumanna ásamt því að láta sig varða mannréttindi víða um heim. Eftirlifandi eigin- kona Salmanns er Ingibjörg Tamimi Sig- urjónsdóttir. Hann lætur eftir sig 5 upp- komin börn, fósturson og 12 barnabörn ásamt stórri fjöl- skyldu í Palestínu og á Íslandi. Salman var mikill fjölskyldumaður og vinmargur. Hann lést á frið- sælan hátt í faðmi fjölskyldu sinnar. Andlát Salmann Tamimi Árlegt verkefni Landhelgisgæsl- unnar er snýr að landamæraeftirliti í Miðjarðarhafi frestast fram í jan- úar á nýju ári. Gæslan tekur þátt í samstarfi Frontex um landamæra- eftirlit á ytri landamærum Evrópu, en vegna verkfalls flugvirkja Gæsl- unnar í síðasta mánuði tefst þetta samstarf. „Eins og við má búast í kjölfar svona aðstæðna verður að endurskipuleggja margt í starfsemi okkar. Þar á meðal eru verkefni flugvélar okkar,“ segir Ásgeir Er- lendsson, upplýsingafulltrúi Land- helgisgæslunnar. „Viðhald á loft- förum Gæslunnar stendur nú yfir á Reykjavíkurflugvelli og sú vinna hefur gengið vel. TF-GRO er nú starfhæf og um miðjan mánuðinn verður TF-EIR starfhæf.“ Eftirlit Gæslunnar frestast fram í janúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.