Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Unnið var að því á Hafrannsóknastofn-
un í gær að skipuleggja loðnuleiðangur
fjögurra veiðiskipa, en farið verður af
stað um helgina og er ráðgert að verða
við mælingar í allt að sex daga. Birkir
Bárðarson, leiðangursstjóri, sagði að
endanlegt skipulag væri á teikniborð-
inu með tilliti til skipakosts, veðurs,
hafíss og dreifingar loðnunnar sam-
kvæmt upplýsingum úr yfirferð Polar
Amaroq úti fyrir Norðurlandi í síðustu
viku. Þrír starfsmenn Hafró verða um
borð í hverju skipi og manna þeir berg-
málsvakt og sýnavinnslu.
Birkir segir að með fjórum skipum
sé vonast til að góð heildarmynd náist
af göngum loðnunnar fyrir Norður-
landi og því magni sem er á ferðinni.
Hann segir að leiðangurinn nú sé sam-
bærilegur við hefðbundinn leiðangur í
janúar og febrúar og reynt verði að ná
utan um svæðið á sem stystum tíma.
Hugsanlega verði byrjað að leita og
mæla á báðum endum, þ.e. úti fyrir
Vestfjörðum og norður af Langanesi,
en hvert skip fær úthlutaðar leiðar-
línur.
Fyrsta verkefnið í leiðangrinum er
þó að kvarða bergmálsmæla þannig að
tæki um borð í skipunum verði eins
stillt. Farið verður af stað á laugardag
eða sunnudag og að lokinni kvörðun
verður siglt norður fyrir land.
Mælingarnar á loðnunni nú eru
samstarfsverkefni Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi, Hafrannsóknastofnunar
og loðnuútgerða og kostaðar af þeim
síðastnefndu því mælingar í desember
voru ekki á rannsóknaáætlun Hafrann-
sóknastofnunar, segir í frétt frá stofn-
uninni.
Jóna, Ásgrímur, Kap og Iivid
Skipin sem taka þátt í mælingunum
eru Kap VE í eigu Vinnslustöðvarinn-
ar í Vestmannaeyjum, Jóna Eðvalds
SF og Ásgrímur Halldórsson SF frá
Skinney-Þinganesi á Höfn og græn-
lenska skipið Iivid. Kap hefur ekki
verið á kolmunnaveiðum í haust eins
og stærsti hluti uppsjávarflotans og
því var skipið tiltækt í þetta verkefni.
Sömu sögu er að segja um skip Skinn-
eyjar-Þinganess, sem ekki eru með
aflaheimildir í kolmunna, en íslenskri
sumargotssíld var síðast landað á
Hornafirði 24. nóvember.
Grænlenska fyrirtækið Arctic
Prime Fisheries keypti Iivid nýlega
frá Noregi, en Brim hf. er hluthafi í
grænlenska fyrirtækinu. Skipið hét
upphaflega Strand Senior, smíðað
1999, og síðasta árið var nafnið Skips-
holmen. Það er systurskip Bjarna
Ólafssonar AK 70.
Fram kemur í frétt Hafró að niður-
stöður loðnukönnunar á Polar Amaroq
í síðustu viku hafi sýnt austlægari út-
breiðslu loðnu en síðustu ár á þessum
árstíma. „Það gæti mögulega þýtt að
loðnan gangi fyrr suður fyrir land til
hrygningar en undanfarin ár. Það,
ásamt þeirri staðreynd að óvissa ríkir
enn um hvort loðnuveiðar verði leyfð-
ar í vetur, gefur tilefni til að reyna að
ná mælingu á stærð stofnsins á þess-
um tímapunkti,“ segir í fréttinni. Í
yfirferð Polar var hrygningarloðna á
eystri hluta svæðisins og mest af henni
við Kolbeinseyjarhrygg, eins og sést á
kortinu. Blönduð hrygningar- og ung-
loðna var vestan til á svæðinu.
Minna en í september
Spurður um heildarmagnið í leið-
angri Polar segir Birkir að það liggi
ekki fyrir. Um könnun hafi verið að
ræða en ekki nákvæma mælingu eða
stofnmat. Vissulega hafi verið talsvert
magn á ferðinni, en þó sennilega
minna en í mælingu Hafrannsókna-
stofnunar í september.
Þá var stærð veiðistofns vertíðar-
innar í vetur metin um 344 þúsund
tonn. Hins vegar kann að hafa verið
um vanmat að ræða í þeim leiðangri,
þar sem tafir vegna veðurs ollu minni
yfirferð á jaðarsvæðum og hafís á
norðanverðu rannsóknarsvæðinu
hindraði að hluta áætlaða yfirferð þar.
Leiðangurinn nú breytir ekki áður
kynntum áformum Hafrannsókna-
stofnunar um stofnmælingar á loðnu í
vetur. Í þeim er gert ráð fyrir að rann-
sóknarskipið Árni Friðriksson fari í
könnun í byrjun janúar. Í framhaldi af
því er ráðgert að fara í tvær mælingar
á stærð stofnsins á tímabilinu frá 15.
janúar til loka febrúar.
Í gangi er útboð um leigu á fjórum
veiðiskipum fyrir Hafrannsóknastofn-
un í þessar mælingar, í samvinnu við
Ríkiskaup. Gert er ráð fyrir samtals
um 50 sjódögum ásamt 38 dögum á
Árna Friðrikssyni.
Vilja ná heildarmynd af göngunni
Fjögur veiðiskip til loðnuleitar um helgina Þrír frá Hafrannsóknastofnun um borð í hverju skipi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mæling á loðnu Grænlenska skipið Ilvid hefur legið við bryggju í Reykjavík
síðustu vikur, en heldur um helgina til loðnuleitar fyrir norðan land.
Útbreiðsla loðnu 20.-25. nóvember
Samkvæmt könnun á Polar Amoroq
69º
68º68º
67º
66º
67º
Blönduð hrygningar-
og ungloðna
Hrygningar-
loðna
Kolbeinsey
Horn
Melrakkaslétta