Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 14

Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ífrumvarpi aðfjárhags-áætlun Reykjavíkur- borgar fyrir árið 2021 má sjá að skatttekjur borg- arinnar í fyrra, ár- ið 2019, námu 98,6 milljörðum króna, að í ár nema skatt- tekjur 99,8 milljörðum króna og að á næsta ári verða þær komnar í 103,4 milljarða króna. Þegar aðrar tekjur sam- stæðu borgarinnar hafa verið lagðar við, en þær hækka einnig, bæði á þessu ári og því næsta, má sjá að heildartekjur borgarinnar munu hækka um 14,5 milljarða króna á árunum 2019 til 2021. Reykjavíkurborg hefur með öðrum orðum ekki orðið fyrir neinum tekjumissi vegna kór- ónukreppunnar, en þar sem laun eru talin munu hækka um 18 milljarða króna þessi tvö ár, eða 23%, er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða fyrir af- skriftir, EBITDA, lækki tölu- vert. Á meðan fyrirtækin í land- inu upplifa kreppuástand með minnkandi tekjum og miklum rekstrarerfiðleikum nýtur Reykjavíkurborg góðs af ört hækkandi launum og þar með útsvarsgreiðslum. Það munar um minna en fimm milljarða hækkun skatttekna á tveimur árum. Þrátt fyrir þessar vaxandi tekjur og þá staðreynd að nú kreppir víða að ákvað meiri- hlutinn í borgarstjórn að hafna hóflegri tillögu Sjálf- stæðisflokksins um lækkun útsvars. Tillagan gerði ráð fyrir að arðgreiðslum Orku- veitunnar, 2,8 milljörðum króna, yrði ráðstafað til út- svarslækkunarinnar og að með því færi álagningarhlut- fallið úr 14,52% í 14,07%. Með þessu hefði skattheimtu verið létt lítillega af Reykvíkingum á næsta ári, þegar fyrir- sjáanlegt er að margir munu glíma við þrengingar þó að borgin sjái fram á vaxandi tekjur. Það vekur líka athygli að meirihlutinn í borgarstjórn ætlar að halda áfram á leið skuldasöfnunar. Borgin hefur í gegnum góðæri síðustu ára safnað skuldum í stórum stíl, meira en milljarði króna á mánuði. Nú þegar kreppir að hjá fyrirtækjum í landinu og borgin gæti reynt að sýna ábyrgð í rekstri, hyggst hún halda skuldasöfnuninni ótrauð áfram. Skuldir og skuldbind- ingar samstæðu borgarinnar verða samkvæmt fjárhagsáætl- uninni orðnar 412 milljarðar króna árið 2021 og hafa þá hækkað um 67 milljarða króna á tveimur árum, eða um hátt í þrjá milljarða á mán- uði. Þessi áform ásamt meintri sóknaráætlun kynnti borg- arstjóri undir yfirskriftinni Græna planið en hefði betur notað réttnefnið Skuldaplanið. Önnur ástæða þess að Græna planið er ekki viðeig- andi nafn í samhengi við áform borgarinnar er að áformin eru alls ekki græn. Þvert á móti er ætlunin að færa borgina enn fjær þeirri stefnu sem rekin var á árum áður og fólst í því að verja græn svæði og tryggja að af þeim hefðu borgarbúar nóg. Nú er sagt að ætlunin sé að gera allar götur blómlegar, þær eigi að fá „grænna yfir- bragð og meiri gróður“ og græn svæði og almennings- garðar verði fegraðir. Stað- reyndin er þó sú að meirihlut- inn í borginni ætlar meðal annars að byggja í Laugar- dalnum til að þjóna Borgarlín- unni svokölluðu, nýja átrúnaði vinstri manna, sem á lítið skylt við græn sjónarmið eða umhverfisvernd yfirleitt. Þá er ætlunin að byggja atvinnu- húsnæði í Elliðaárdalnum og verður sú aðgerð seint talin græn. Hið sama á við um þétt- ingarstefnu borgarinnar, sem miðar að því að útrýma opnum og grænum svæðum til að þjóna Borgarlínukreddunni. Ætlunin er að kóróna Gráa skuldaplan borgarstjórnar- meirihlutans með því að halda áfram að fjölga borgarstarfs- mönnum, en meirihlutinn virðist telja að leiðin til verð- mætasköpunar og uppbygg- ingar á næstu árum sé að halda sköttum í hæstu leyfi- legu hæðum og fjölga opin- berum starfsmönnum. Bent hefur verið á að í lok næsta árs verði um það bil fimmti hver vinnandi maður í borg- inni á launaskrá Reykjavík- urborgar og að ætlunin sé að fjölga starfsfólki borgarinnar um 622 á fyrrnefndu tveggja ára tímabili. Allt er þetta með miklum ólíkindum og sérstaklega um- hugsunarvert fyrir þá sem hafa hallað sér að Viðreisn en telja sig ekki mjög langt til vinstri í stjórnmálum, að sá flokkur ber einna mesta ábyrgð á Skuldaplaninu og því hvernig komið er fyrir Reykjavíkurborg. Borgin kynnir skuldasöfnun og eyðingu grænna svæða undir heitinu „Græna planið“} Skuldaplan Reykjavíkurborgar E inu sinni spurði Happdrætti Há- skólans fólk í auglýsingu hvað það myndi gera við stóra vinn- inginn. Einn sagðist vilja kaupa lítið sjávarþorp á Vestfjörðum. Svarið ýfði upp reiði hjá sumum sem töldu að þarna væru happdrættið og auglýsingastofan að gera lítið úr Vestfirðingum og þeirra heima- byggð. Aðrir tóku auglýsinguna sem græsku- laust grín. Veltum þessu andartak fyrir okkur. Hve mikið ætli sjávarþorp á Vestfjörðum gæti kost- að? Við getum nálgast markaðsvirði allra íbúð- arhúsa á Vestfjörðum í opinberum gögnum. Með smávægilegum útreikningum finnum við út að það er nálægt 80 milljörðum króna. Ef við bætum við öllu atvinnuhúsnæði, vélum, bíl- um, vegum, virkjunum, höfnum og öðrum eignum má tvöfalda þessa tölu fyrir Vestfirði í heild. Til hvers er allur þessi talnaleikur sem skilar svo háum tölum að fæstir skilja þær vel? Jú, setjum þær í samband við gróða útgerðarmanna undanfarinn áratug. Sam- kvæmt tölum sem kynntar voru á sjávarútvegsdeginum í haust nam núvirtur hagnaður þeirra rúmlega 480 millj- örðum, eða um 50 milljörðum króna á ári. Á sama tíma hafa útgerðarmenn borgað sér liðlega 100 milljarða króna í arð. Hvað segja þessar tölur okkur? Þær gefa til kynna að á þremur árum nægði afgangur útgerðanna til þess að kaupa alla Vestfirði, hús, vegi og virkjanir. Þetta eru miklir peningar því að þarna búa 2% þjóðarinnar. Með svipuðum útreikningum má sjá að útgerðarmenn gætu keypt öll íbúðarhús á Akureyri fyrir hagnað átta ára. Þeir græða nefnilega um 130 milljónir króna á dag. Hvern einasta dag. Í tíu ár. Munum líka að hér erum við að tala um af- komuna eftir að tekið hefur verið tillit til þess að flestar útgerðir hafa endurnýjað skipastól sinn og verksmiðjur á sama tíma. Nú er ég ekki í hópi þeirra sem telja að gróði sé slæmur. Þvert á móti er gott þegar fólk auðgast á hugviti sínu og dugnaði. Mér finnst kvótakerfið gott, því að það hefur leitt til hagræðingar og skynsamlegri nýtingar fiskistofna. Því fer fjarri að ég hafi horn í síðu starfsmanna útgerðanna eða telji að útgerðar- menn séu óalandi og óferjandi. Nei, vandinn felst í því að útgerðarmenn eru í einokunaraðstöðu í lokuðu kerfi. Enginn fær að nýta fiskimiðin, sameign þjóðarinnar að lögum, nema tiltekin útgerðarfélög. Enginn unnandi frjálsrar samkeppni ver einokunarhagnað. Eigandi auðlindar- innar, þjóðin sjálf, á að njóta síns eðlilega hlutar af arð- inum. Markaðstengt gjald sér um það. Eftir að greinar mínar um þetta mikla óréttlæti birtast fæ ég stundum símtöl, pósta eða orðsendingar með ónot- um í minn garð. Ég ali á öfund og illvilja í garð greinar- innar. Ekkert er fjær sanni. Ég vil einfaldlega að þjóðin fái sinn sanngjarna skerf. Sátt skapast fyrst þegar auð- lindagjald ræðst á markaði. Allt sem við viljum er sanngirni. Benedikt Jóhannesson Pistill Lítið sjávarþorp, Akureyri og svo Ísland? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rannsóknir á ævafornusjávarseti suðvestan viðBjarnarey, suður af Sval-barða, hafa gefið nýjar upplýsingar um rennsli Golf- straumsins í Norðurhöfum. Frá þessu var nýlega greint á vefnum forskersonen.no. Hlýr Golfstraumurinn streymir sunnan úr höfum og hefur m.a. þau áhrif að Ísland er byggilegt. Svo flæðir hann áfram langt norður í höf, en það hefur ekki alltaf verið svo. Golfstraumurinn ber með sér ógrynni af leir, sandi og öðrum fín- gerðum ögnum. Efnið fellur til botns, hleðst upp í hlíðum land- grunnsins niður í hafdjúpin og myndar þar setlög. Hægt er að lesa heilmikla og eldgamla sögu úr botn- lögum, sem nú eru grafin undir kíló- metraþykku lagi af sandi og leir frá ísaldartímum. Grænlands-Skotlandshryggur- inn myndaðist vegna eldvirkni og var miklu grynnra niður á hann í upphafi. Þannig var hann þrösk- uldur fyrir Golfstrauminn og aðra hafstrauma sem komust illa norður í höf fyrir um 20 milljónum ára. Grænland og Svalbarði skildust að fyrir um 17 milljónum ára og opnaðist sundið sem Norðmenn kalla Framsund. Grænlands- Skotlandshryggurinn sökk svo niður í jarðskorpuna undan eigin þunga fyrir um 12 milljónum ára. Þar með lækkaði þröskuldurinn og leið opn- aðist fyrir Golfstrauminn norður í höf og fyrir kalda sjávarstrauma að streyma úr norðri og suður á bóg- inn. Hlýsjór Golfstraumsins hefur haft mikil áhrif á veðurfar og ástand sjávar, t.d. við Jan Mayen og Sval- barða og víðar. Botninn ræður straumunum „Þessir neðansjávarhryggir eru undirstaða lífsins við landið,“ sagði Héðinn Valdimarsson haffræðingur. „Hafstraumarnir liggja eins og þeir gera vegna þess að þessir hryggir eru til staðar. Stefna straumanna ræðst mikið af lögun botnsins.“ Hann sagði að eftir því sem þekkingu og rannsóknum á haf- straumum við landið fleygði fram hafi mönnum orðið betur ljóst að botnlögunin hafði meira að segja fyrir hafstraumana en fram að því hafi verið talið. Þekking á lögun hafsbotnsins jókst mjög vegna kaf- bátasiglinga í kalda stríðinu. „Þá urðu menn mjög uppteknir af þessum neðansjávarhryggjum, ekki síst í tengslum við kafbátahern- aðinn. Það var hægt að skýla sér fyrir hljóðsjám við þessa hryggi.“ Hryggirnir rísa hátt frá hafs- botninum. Héðinn sagði að dýpið á milli Íslands og Grænlands fari úr 640 metrum á sjálfum hryggnum og niður í 2.500 metra. Hæðarmun- urinn upp undir 1.900 metrar. Yfirfall af köldum sjó norðan úr höfum er suður yfir hryggina, beggja vegna Íslands. Kaldi botn- straumurinn sem fellur yfir hrygg- inn milli Íslands og Grænlands hef- ur oft verið kallaður „stærsti foss í heimi“ en þar falla um þrjár millj- ónir rúmmetra af sjó fram af brún- inni á sekúndu. Neðansjávarhryggirnir hafa mikil áhrif á lífríkið. „Hermann Einarsson dýra- fræðingur sagði á sínum tíma að þessi straumamót við neðansjávar- hryggina væru undirstaðan að lífi við Ísland. Straumamótin sem við erum á gera þetta svæði að fram- leiðslusvæði. Lífið fær stöðuga nær- ingu þegar næringarefnin þyrlast upp á hryggjunum og svif safnast í þessi straumamót. Það veldur því að stærri dýr safnast þangað til að nærast,“ sagði Héðinn. Neðansjávarhryggir – undirstaða lífsins Neðansjávarhryggir við Ísland GRÆNLAND JAN MAYEN FÆREYJAR SKOTLAND NOREGUR ÍSLAND Íslands-Skotlandshryggur Grænlands- Íslandshryggur Re yk ja ne s- hr yg gu r M ið -A tla nt sh af s- hr yg gu r Grænlands- sund Norður- Atlantshaf Norður- Atlantshaf Barents- haf Rockall Norðursjór Neðansjávarhryggir og lands- lag á hafsbotni hafa gríðar- lega mikil áhrif á stefnu haf- strauma. Ísland er þar sem tveir miklir neðansjávar- hryggir í Norður-Atlantshafi skerast. Grænlands-Skotlandshrygg- urinn liggur þvert yfir Norð- ur-Atlantshafið, frá Skotlandi í suðaustri og til Grænlands í norðvestri. Ísland og Fær- eyjar eru hluti af honum og standa upp úr hafinu. Mið-Atlantshafshryggurinn teygir sig á milli heimskaut- anna. Hann nær upp fyrir sjávarmál á Íslandi, Asoreyj- um og Jan Mayen. Reykjanes- hryggurinn suðvestur af land- inu og Kolbeinseyjarhryggur og Íslands-Jan Mayen- hryggurinn fyrir norðan eru hlutar hans. Norðan við Ís- land er mikil háslétta, Ís- landssléttan, á hafsbotni. Þar fer dýpið úr um 1.700 metr- um niður í 3.500 metra aust- an við Jan Mayen-hrygginn. Á mótum hryggjanna ÍSLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.