Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
✝ Helga Ingólfs-dóttir fæddist
14. ágúst 1970.
Helga lést á heimili
sínu 14. nóvember
2020.
Foreldrar Helgu
eru Guðlaug Birna
Hafsteinsdóttir og
Ingólfur Helgi
Matthíasson. Eig-
inmaður Guð-
laugar er Steinn
Halldórsson. Börn þeirra eru
Jóhanna, Halldór, Hafsteinn og
Heiða Rún.
Eiginkona Ingólfs er Sóley
Birgisdóttir. Börn þeirra eru
Rut, Máni og Hrói.
hennar í Iðnskólann í Reykja-
vík. Þaðan útskrifaðist hún sem
tækniteiknari. Starfaði hún sem
tækniteiknari í nokkur ár. 1997
flutti fjölskyldan til Kaup-
mannahafnar og vann Helga
þar við sitt fag. Þau komu heim
eftir tvö ár. Árin 2007 til 2011
bjó fjölskyldan í Lundi, Svíþjóð,
þar sem Helga lauk prófi í
byggingariðnfræði. Hún vann
við sitt fag og nýtti sína mennt-
un.
Helga og Arnar áttu heimili
sitt alla tíð í Reykjavík.
Helga verður jarðsungin frá
Árbæjarkirkju 4. desember
2020 kl. 13.
Vegna aðstæðna verða að-
eins nánustu aðstandendur við-
staddir en streymt verður frá
athöfninni á:
https://youtu.be/5jqQfhftzMY
Virkan hlekk á streymi má
einning finna á
https://www.mbl.is/andlat
Eiginmaður
Helgu er Arnar
Guðmundsson. For-
eldrar hans eru
Guðmundur Jó-
hannesson og
Bergljót Helga Jós-
epsdóttir.
Helga og Arnar
eignuðust tvo syni,
þá Þorra og Óðin.
Unnusta Þorra er
Marín Líf Gauta-
dóttir og unnusta Óðins er
Hildur Helgadóttir.
Helga ólst upp í Árbæjar-
hverfi og gekk í Árbæjarskóla.
Fór svo í Fjölbrautaskólann í
Ármúla og eftir það lá leið
Takk fyrir okkur, elsku Helga
systir.
Það er erfitt að hugsa til þess
að við fáum ekki að hitta þig aftur
elsku systir enda fáir með jafn
góða nærveru og þú. Við duttum
heldur betur í lukkupottinn að fá
að eiga þig sem systur, því betri
verða þær ekki. Þrátt fyrir
hversu breitt aldursbil systkina-
hópsins er þá náðum við alltaf öll
vel saman. Þar gegndir þú lyk-
ilhlutverki enda varst það yfirleitt
alltaf þú elsku systir sem dróst
okkur hvað mest saman. Þú varst
stoð okkar og stytta, sáluhjálpari,
ráðgjafi og hreinlega sú sem batt
allt saman.
Það var mikið líf á heimilinu
þegar við vorum að alast upp, öll
vorum við félagslega sterk og
eignuðumst góða vini og var því
lítið um rólegheit.
Oftar en ekki fékkstu þá
ábyrgð að líta eftir okkur sem
yngri vorum þegar foreldrarnir
þurftu að komast í burtu og fylgja
því nokkrar góðar minningar sem
ekki eru birtingarhæfar hér en
stundum þurfti að halda partý og
fleira skemmtilegt. Alltaf hjálp-
aðirðu okkur svo að ekki kæmist
upp um hvað við hefðum verið að
gera af okkur. Við leituðum til þín
þegar eitthvað bjátaði á hjá okk-
ur. Alltaf áttirðu lausa stund til
þess að aðstoða bæði okkur systk-
ini þín og allra aðra.
Þegar þú greindist með
krabbamein þá varð þungt yfir
okkur öllum, það varð dimmt um
tíma en hugarfar þitt hjálpaði
okkur öllum. Þér tókst að gera
ömurlega stöðu skárri. Sem betur
fer höfum við undanfarið ár notað
tímann vel öll saman, hist eins
mikið og hægt var, talað mikið
saman og reynt eftir bestu getu
að njóta líðandi stundar.
Þrátt fyrir trú okkar allra á
kraftaverk fór því miður að halla
undan fæti og veikindin sóttu hart
að þér. Þegar við sáum fram á erf-
iða baráttu varð þyngra yfir okk-
ur öllum enda ömurlegt að horfa
upp á manneskju sem maður
elskar ganga í gegnum svona bar-
áttu. Við hefðum öll viljað taka á
okkur sársauka til að létta undir
en þannig er ekki lífið, það er
stundum ósanngjarnt. Engum
viljum við það illt að kveljast og
trú okkar er sú að þú sért farin á
betri stað, farin að skipta þér af
og ráðleggja fólki, og þau skulu
telja sig heppin, því þú ert þarna
með þeim.
Við erum þakklát fyrir að hafa
verið með þér á lokastundum
veikinda, fylgja þér þótt erfitt
væri.
Eftir að við misstum þig frá
okkur höfum við gert okkar besta
í að halda hópinn, bera uppi minn-
ingar um yndislega systur og
reyna að styrkja hvert annað, það
hefðir þú viljað.
Þú varst heppin með eigin-
mann, hann Adda, þvílíkt sem
hann var duglegur að takast á við
þetta verkefni með þér og synirn-
ir Þorri og Óðinn eru engum líkir,
svo sannarlega vel upp aldir af
foreldrum sínum.
Við systkinin viljum senda
ykkur Adda, Þorra, Óðni, foreldr-
um og vinum innilegar samúðar-
kveðjur og treystum á að við öll
höldum fallegri minningu um
Helgu á lofti.
Takk fyrir okkur elsku Helga.
Jóhanna, Halldór,
Hafsteinn og Heiða Rún.
Yndislega frænka mín hún
Helga er farin. Fjölskyldulífið
okkar er breytt. Helga skilur eftir
sig stórt skarð sem verður ekki
fyllt. Helga var opin persóna,
skemmtileg, forvitin og alltaf
brosandi eða hlæjandi og pínu há-
vær, það fór einhvern veginn ekki
fram hjá neinum að hún var á
staðnum. Fjölskyldan okkar er
samrýnd og við systkinabörnin
höfum verið góðir vinir frá fyrstu
tíð. Æskuárin okkar, öll jól, öll af-
mæli, allar verslunarmannahelg-
ar, fermingar, brúðkaup og alla
viðburði sem skipta máli í lífinu
höfum við átt saman. Við vorum
fjórar frænkurnar sem vorum
elstar í hópnum og við vorum góð-
ar vinkonur. Mér þótti svo vænt
um vinskapinn og það var alltaf
jafn gaman að hitta þær. Þegar
við urðum fullorðnar áttu þær
kærasta, þær giftu sig og áttu
börn rúmlega tvítugar en ég var
lengi ein og elskaði að fylgjast
með þeim og taka þátt í þeirra lífi.
Allar reynslusögurnar þeirra
hjálpuðu mér mikið þegar ég mun
seinna eignaðist mín börn.
Helga var flott týpa, átti svo
falleg heimili og var skemmtilega
öðruvísi, allt var smart sem hún
kom nálægt. Heimili hennar og
Adda á Vesturgötunni var í uppá-
haldi hjá mér. Helga var svo opin
fyrir umhverfi sínu, bæði fyrir fal-
legri hönnun og líka fyrir fólki,
hún sagði skemmtilega frá og tal-
aði alltaf hreint út og henni var
líka umhugað um aðra. Þau Addi
bjuggu erlendis um tíma með
strákana sína. Það þarf dugnað
og kjark til að rífa sig upp og selja
fallegu eignirnar sínar til að upp-
fylla draumana sína. Það gerði
hún fyrir þau og strákana sína.
Þessi reynsla hefur alveg örugg-
lega átt sinn þátt í því hvað þau
voru samrýnd og hugrökk á þeim
erfiða tíma sem þau áttu saman
síðasta eina og hálfa árið.
Þegar Helga greindist með
krabbamein var hún nýbyrjuð að
vinna hjá HTH. Þá var Sigrún
Gróa systir mín að endurnýja
heimilið sitt og áttum við yndis-
legar stundir þar með Helgu í
teiknivinnu og spjalli. Hetjan hún
Helga barðist eins og ljón og við
dáðumst að hennar jákvæða og
yfirvegaða viðhorfi með húmor-
inn að vopni. Alltaf var hún fín og
flott og endalaust jákvæð og
kvartaði ekki. Pabbi okkar hafði
barist við krabbamein í eitt og
hálft ár þegar Helga greindist.
Þau tvö áttu spjall í síðasta jóla-
boði fjölskyldunnar um þessa
sameiginlegu reynslu þeirra og
það helsta var að þau fundu til
með fólkinu sem stóð þeim næst
því þetta var ekki síður erfitt fyrir
þau, svolítið Helga; aðeins að hafa
meiri áhyggjur af öðrum en sjálfri
sér í þessari erfiðu baráttu. Við
fjölskyldan í Keflavík erum sorg-
mædd við fráfall Helgu frænku og
það er erfitt að sætta sig við miss-
inn hans Adda og strákanna
þeirra. Lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt. Hugur okkar er hjá for-
eldrum og systkinum Helgu því
þau treystu mikið á hana, hún var
kletturinn þeirra. Þetta eru
skrýtnir tímar og sárt að geta
ekki fylgt Helgu en við gerum það
nú samt saman og kveðjum hana
með virðingu fyrir því góða og
innihaldsríka lífi sem hún lifði og
skálum í kampavíni og kveðjum
yndislega frænku okkar, falleg
minningin um hana lifir með okk-
ur þar til við hittumst á ný.
Inga Brynja.
Með söknuði kveð ég Helgu
sem er farin frá okkur allt of
snemma. Ekkert býr mann undir
það að kveðja frænku sína í blóma
lífsins sem átti svo margt eftir og
finnst manni það bæði óskiljan-
legt og ósanngjarnt.
En mig langar að þakka fyrir
allar þær stundir sem við höfum
átt saman og einkum þær sem við
áttum þann tíma sem hún barðist
við krabbameinið. Alltaf var hún
svo vel tilhöfð og falleg og aldrei
urðum við uppiskroppa með um-
ræðuefni, því Helgu fannst ekki
leiðinlegt að tala, alls ekki. En
umræðan sneri aldrei að veikind-
um hennar og það sem einkenndi
hana mest þessa síðustu mánuði
var hversu góða og jákvæða sýn
hún tileinkaði sér á þetta verkefni
og aldrei leið manni eins og mað-
ur væri að tala við veika mann-
eskju.
En lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt, þetta er áminning um það.
Lífið tekur og það gefur og það
sem ég get gert er að lofa sjálfri
mér að láta jákvætt viðhorf Helgu
vera mér leiðarljós.
Elsku Addi, Þorri, Marín, Óð-
inn, Hildur, Gulla, Steinn og allir
sem stóðu Helgu næst, hugur
okkar er hjá ykkur.
Helgu verður ætíð sárt saknað.
Alida Jakobsdóttir
og fjölskylda.
Fyrir um það bil þremur árum
vorum við Ólöf að leita að vara-
hlut í sláttuorf. Komum við í
Byko. Þar sem ég sat í bílnum sá
ég hvar Helga og Arnar komu út
úr búðinni. Ég ætlaði á flauta á
þau en hætti við þar sem þau hittu
einhverja vini. Svo ég sat þarna
og horfði á Helgu og dáðist að því
hve hún var alltaf ljómandi. Það
hreinlega geislaði af henni. Alltaf
jafn brosmild.
Þessi mynd hefur oft komið
upp í huga mér þessa síðustu
daga. Helga var ekki há í loftinu
þegar hún kom inn í fjölskylduna,
rétt tveggja ára. Það fór ekki
mikið fyrir henni. Það kom nokkr-
um sinnum fyrir að ég var með
hana í bílnum þegar hún var að
fara til eða frá ömmu Stebbu. Þá
sat hún stillt og prúð laus í aft-
ursætinu, engin belti eða barna-
bílstólar á þeim tíma. Reglulega
fórum við kvenleggurinn í fjöl-
skyldunni í fjallgöngu sem endaði
í sumarbústað í Kjósinni.
Svo kom það fyrir í eitt skiptið
að Helga gekk með okkur en þeg-
ar kom að því að fara inn í bústað
og undirbúa kvöldmat vildi Helga
ekki vera með heldur drífa sig í
bæinn. Við komumst að því
seinna að ástæðan var ungur
maður, Arnar Guðmundsson.
Eins og gengur og gerist endaði
þetta samband með brúðkaupi.
Þau gengu í hjónaband í Hall-
grímskirkju og voru það báðir
feður Helgu þeir Ingólfur og
Steinn sem leiddu hana inn
kirkjugólfið. Þarna geislaði af
Helgu.
Svo stuttu seinna fæddist þeim
drengur, hann Þorri, og svo fimm
árum seinna bættist Óðinn í litlu
fjölskylduna.
Það var erfitt þegar það frétt-
ist af veikindum Helgu en hún,
með sína bjartsýni og jákvætt
hugarfar, sagði þeim stríð á hend-
ur. Við gátum fylgst með þessari
baráttu og dáðumst að hugrekki
hennar. Allt til hins síðasta gat
hún geislað og brosað. Mun þetta
jákvæða hugarfar og bros fylgja
okkur og vera til huggunar.
Arnari, Þorra og Óðni sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd fjölskyldunnar á
Skólavörðustíg,
Guðrún Halldórsdóttir.
Ég ætla að segja nokkur orð til
minningar um hana elsku Helgu
frænku sem barðist eins og hetja
við krabbamein. Helga frænka
var magnað eintak sem maður
gat alltaf leitað til. Ég hef litið
upp til hennar síðan ég var lítil og
geri enn.
Hún gerði lífið svo skemmti-
legt bara með því að vera jákvæð
og brosa sínu fallegasta brosi og
þannig mun ég og allir muna eftir
henni.
Helga er og verður mér alltaf
svo dýrmæt og ég veit hún verður
alltaf hjá okkur, hún sýndi svo
mikinn kraft og styrk og var alltaf
jákvæð þrátt fyrir erfiðleikana og
hindranirnar.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
náð að segja henni hvað mér þótti
vænt um hana áður en hún fór frá
okkur. Hitt hana á góðum dögum
og fengið að spjalla við hana á fa-
cebook. Elsku Helga, takk fyrir
allar góðu minningarnar og allar
góðu stundirnar saman.
Ég mun líta upp til Helgu alla
mína ævi og taka hana mér til fyr-
irmyndar, vera með bros á vör og
vera svo góð við alla.
Takk fyrir allt Helga, elska
þig.
Sunneva Helgadóttir.
Stórt skarð er höggvið í vin-
konuhóp sem hefur fylgst að frá
barnæsku og ekki verður fyllt.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í
grunnskóla. Helga vakti strax at-
hygli þar sem hún mætti ásamt
náfrænku sinni og jafnöldru í
samskonar fatnaði, fallegri
heimaprjónaðri peysu með
munstri, legghlífar og ennisband í
stíl, prjónað í vél, sem var vinsælt
á þessum tíma. Við minnumst
Helgu enn á sama hátt fyrir
smekklegheit, fallegan klæðnað
og sterkan persónuleika.
Mannkostir Helgu okkar komu
fljótlega í ljós. Það fór ekki mikið
fyrir Helgu en hún varð samt sem
áður fljótt sjálfskipaður leiðtogi í
hópnum. Hún var mannvinur og
kom fram við alla sem jafningja,
vingjarnleg, hress, opin og bros-
mild. Helga var traust og góð vin-
kona, gefandi persónuleiki,
ábyrgðarfull við samferðafólk og
umhyggjusöm. Helga var ekki
fyrir leiðindi og vildi ávallt leysa
málin. Því er kannski best lýst
þannig að Helga hafði góða til-
finningagreind og gott hjartalag.
Helga bar út blöð á morgnana
og átti það til að kasta blaði í
gluggann hjá einni okkar til að
kanna hvort hún væri vöknuð.
Íþróttir lágu vel fyrir henni og
sem markmaður í handbolta var
hún nokkuð efnileg. Helga var
jafnvinamörg meðal stelpna og
stráka enda gerði hún ekki grein-
armun þar á. Okkur er minnis-
stætt þegar Helga vann alla
strákana í bekknum í sjómann en
það mátti ekki tala um það.
Haldin var samkoma í 5. bekk
þar sem við fluttum Minipops
(eða mæmuðum) fyrir foreldrana.
Helga varð sjálfskipaður stjórn-
andi fyrir þessa samkomu. Við
leituðum til hennar eftir ráðum og
hún raðaði í hlutverk.
Það var margt brallað í barna-
skóla, samferða vorum við í gegn-
um unglingsárin þar sem uppá-
tækin voru mörg, breikað, teikað,
brennó, snúsnú, skólaböllin,
danssýningar, dásamlegar
strætóferðir þar sem mikið var
hlegið og pískrað, gallabuxur
klóraðar, tombóla haldin með vin-
samlegu leyfi frá lögreglunni,
tískusýning, mörg góðlátleg
símaöt og tala nú ekki um það
sem Helgu fannst notalegast,
gistinæturnar þar sem við klór-
uðum hvor annarri á bakinu.
Helga var fagurkeri og hafði
næmt auga fyrir tísku og hönnun.
Við minnumst þess í föndurhóp-
um fyrir jól í Árbæjarskóla hve
Helgu tókst iðulega vel til og
minnisstætt þegar hún „riggaði
upp“ kirkju á mettíma fyrir ein
jólin. Á fullorðinsaldri fannst
henni lítið mál að „rigga upp“ fal-
legu heimili, teikna eldhúsinn-
réttingar eða veita aðra innan-
hússráðgjöf.
Þann 30. desember 2019 hitt-
umst við bekkjarsystur heima hjá
Helgu. Hún bauð okkur upp á
sjávarréttarsúpu og var á þönum
eins og henni einni var lagið. Hún
ræddi opinskátt um veikindin sín
við okkur og var svo jákvæð, von-
góð og ákveðin í að berjast við
þennan óvætt. Ein okkar svaraði
því til að hún myndi líklega verða
elst af okkur. Helga hló og sagði:
„Já, ég kem og hjúkra ykkur á
elliheimilinu.“ Ekta Helgu húm-
or.
Elsku Helga, við komum sam-
an á Zoom á Covid-tímum til að
minnast þín og skrifa þessa minn-
ingargrein. Það var ljúfsár kvöld-
stund. Hvíl þú í friði, elsku besta
bekkjarsystir og vinkona okkar.
Við minnumst heilsteyptrar, vel
gerðrar, jákvæðrar manneskju
með hjarta úr gulli.
Fjölskyldu og aðstandendum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd bekkjarsystra úr
Árbæjarskóla,
Ásdís, Eva Lilja,
Guðbjörg, Herdís,
Ingunn, Jóhanna, Kristín,
Rannveig og Unnur.
Við kveðjum yndislegu Helgu
með miklum trega í hjarta.
Við erum þakklát fyrir upp-
byggilegu samræðurnar sem við
áttum saman, fyrir huggulegu
matarboðin, jákvæðnina, fyrir
gleðina sem var alltaf til staðar,
fyrir hláturinn sem var innilegur
en stundum gildishlaðinn, fyrir
hreinskilnina, fyrir fallega brosið,
fyrir vináttuna sem var engu lík,
fyrir öll góðu ráðin, fyrir dásam-
lega samveru í öllum ferðalögun-
um og síðast en ekki síst fyrir öll
góðu gildin sem lifa áfram með
okkur. Risastórt skarð hefur
myndast í okkar góða hóp.
Elsku Addi, Þorri og Óðinn,
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Minning um einstaka mann-
eskju lifir með okkur sem við
munum aldrei gleyma.
Olga og Hreinn,
Erla og Þorgrímur,
Ragnheiður og Birgir,
Sigríður og Peter,
Valbjörg og Guðjón.
Það er stórt skarð í hjarta
mínu þegar ég kveð æskuvinkonu
mína, hana Helgu.
Við kynntumst 9 ára í Árbæj-
arskóla og náðum strax vel saman
og höfum haldið fallegu vináttu-
sambandi síðan. Við vorum mikl-
ar strákastelpur á yngri árum,
elskuðum að hjálpa örðum í alls-
konar aðstæðum, pössuðum börn
í öðru hverju húsi og þannig
mætti lengi telja. Þar kom strax í
ljós hversu gott hjartalag Helga
hafði, hún hugsaði fyrst um fólkið
í kringum sig. Vorum við mikið
heima hjá hvor annarri á æskuár-
um og var ég svo lánsöm að fá að
vera hluti af hennar fjölskyldu.
Gistum við óteljandi oft saman,
bæði heima hjá henni í Árbænum
og líka hjá pabba hennar í Kefla-
vík.
Þegar Addi kom inn í líf Helgu
1991 þá geislaði hún af hamingju
og eignuðust þau yndislega tvo
drengi sem speglast í foreldrum
sínum. Fórum við í ófáar sum-
arbústaðarferðir saman og ferða-
lög með mökum okkar og börn-
um. Um tíma áttu þau svo
sumarhús á Meðalfellsvatni sem
var yndislegt að koma í enda þau
hjón einstakir gestgjafar.
Fram á síðasta dag nutum við
ennþá samverunnar í sauma-
klúbb og með mökum okkar gerð-
um við ýmislegt skemmtilegt
saman. Helga var snillingur í að
gera heimilið sitt fallegt og var
alltaf gott að koma til þeirra
hjóna.
Helga var einstök og hjartahlý
manneskja og ef það var eitthvað
sem bjátaði á þá var hún fyrst
komin og aðstoða mann og hjálp-
aði hún manni með sínum ein-
staklega góðum ráðum.
Elsku Helga tapaði baráttunni
við krabbameinið eftir aðeins eitt
og hálft ár. Hún var mesta hetjan
sem ég þekki og tók þessa baráttu
á jákvæðan og ákveðinn hátt, hún
ætlaði að vinna þessa baráttu
enda mikil keppnismanneskja.
Hún hugsaði alltaf um aðra þrátt
fyrir mikil veikindi, alltaf spurði
hún hvernig manni liði og hvernig
fjölskyldan hefði það, vildi ekkert
vera að velta sér of mikið upp úr
þessum veikindum.
Elsku Addi, Þorri, Óðinn og
fjölskylda, mínar dýpstu samúð-
arkveðjur og megi Guð styrkja
ykkar á þessum erfiðu sorgartím-
um.
Elsku Helga, það var svo
margt sem við ætluðum að gera
saman á næstu árum og á okkar
efri árum, m.a. að vera saman á
elliheimili og skemmta okkur eins
og okkur var lagið, við gerum það
þegar ég sé þig seinna í drauma-
landinu þegar minn tími kemur,
elska þig.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín vinkona,
Ingunn Hrund.
Í dag kveð ég með miklum
söknuði elsku Helgu æskuvin-
konu mína. Við erum búnar að
fylgjast að síðan árið 1979 þegar
ég og mín fjölskylda fluttum í
Árbæinn. Ekki átti ég von á því að
þurfa að kveðja Helgu mína svona
snemma á lífsleiðinni en síðasta
knúsið okkar var 14. ágúst eða á
50 ára afmælisdegi hennar en ég
hitti hana margoft eftir það. Það
mátti ekkert vera að knúsast út af
dottlu. Við áttum yndislegar
stundir öll þessi ár. Helga og fjöl-
skylda fluttu til Svíþjóðar og eru
þeir tímar ofarlega í mínu minni,
það var svo gott og notalegt að
heimsækja þau hvort sem var á
Íslandi eða annars staðar. Hún
tók svo vel á móti manni að maður
var meira en velkomin inn á fal-
lega heimilið þeirra. Þvílíkur fag-
urkeri sem hún Helga var. Helga
og Addi eignuðust Þorra og Óðin
sem eru svo ótrúlega flottir ungir
menn enda uppeldið eins og best
verður á kosið, eðaleintök. Einnig
Helga
Ingólfsdóttir