Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 28

Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 ✝ SteinunnBjarnadóttir fæddist á Reykjavíkurvegi 13 í Hafnarfirði 27. ágúst 1944. Hún lést 21. nóvember 2020 á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnar- firði. Foreldrar hennar voru Þórdís Matt- híasdóttir, f. 7.8. 1918, d. 11.1. 2000 og Bjarni Sveinsson, f. 25.5. 1915, d. 22.3. 1991. Steinunn var næstelst í röð sex systkina, en þau eru Guð- laugur, f. 2.12. 1940, d. 18.2. 1988, Matthías, f. 24.7. 1946, Ás- laug, f. 15.2. 1948, Ólafur Sveinn, f. 26.8. 1952 og Rut, f. 17.7. 1954. 24.1. 1990, í sambúð með Jódísi Bóasdóttur, f. 6.3. 1992, sonur þeirra Skorri Steinarsson, f. 25.7. 2018, b) Logi, f. 2.4. 1998 og c) Guðrún Heiða, f. 13.6. 2003. 3) Silja Rún Gunnlaugsdóttir, f. 20.1. 1974, gift Friðriki Guðjóni Sturlusyni, f. 4.4. 1965, börn þeirra eru: a) Sturla, f. 23.3. 1993, b) Gunnlaugur Fjólar, f. 1.1. 2001, c) Þórdís Fjóla, f. 8.11. 2014. Steinunn ólst upp á Hraun- kambi 9 í Hafnarfirði og lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg- arskólanum. Steinunn starfaði á sínum unglingsárum á sumrin í Krísuvík og einnig í mjólkur- búðinni í Hafnarfirði. Þau Stein- unn og Gunnlaugur stofnuðu verslunina Ösp ásamt góðu vina- fólki sínu og ráku hana í nær 13 ár. Eftir að þau seldu Öspina stofnuðu þau hjónin barna- vöruverslunina Bimm Bamm ár- ið 1981 á Reykjavíkurvegi með öðru góðu vinafólki sínu og starf- ræktu hana í 3 ár. Þá hóf Stein- unn að vinna við afgreiðslu í Demantahúsinu á Reykjavík- urvegi og vann þar í nokkur ár. Árið 1988 hóf hún störf á launa- deild Hrafnistu og vann þar til ársins 2010. Steinunn var ein af stofn- endum Lionessuklúbbsins Kald- ár árið 1986 sem síðar varð Lionsklúbburinn Kaldá, eða árið 1992, og stundaði hún starfið þar af krafti alla tíð. Steinunn var formaður, ritari og tók þátt í mörgum nefndum. Hún var einn- ig í Oddfellowstúkunni Rann- veigu frá árinu 2001 og var öflug í starfinu þar. Útförin fer fram í dag, 4. des- ember 2020, klukkan 13. frá Hafnarfjarðarkirkju. Þar sem takmarkaður fjöldi fær að vera við útförina vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður streymt frá athöfninni. Slóð á streymið: www.streyma.is/utfor Virkan hlekk á streymið má einnig finna á: https:/www.mbl.is/andlat Steinunn giftist 24.5. 1964 Gunn- laugi Fjólari Gunn- laugssyni, f. 7.11. 1942. Börn þeirra eru: 1) Bjarni Þór Gunnlaugsson, f. 6.2. 1964, eigin- kona hans er Sig- ríður Sigurðar- dóttir, f. 26.2. 1966. Dætur þeirra eru: a) Hinrika, f. 7.6. 1991, sambýlismaður hennar er Jóhann Valur Sævarsson, f. 21.12. 1988, sonur þeirra Darri Þór Jóhannsson, f. 27.11. 2018, b) Steinunn, f. 6.10. 1994. 2) Kristín Fjóla Gunnlaugsdóttir, f. 21.10. 1968, var gift Aroni Reynissyni, börn þeirra eru: a) Steinar, f. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason) Elsku allra besta mamma, við þökkum þér fyrir allt sem þú gafst okkur í lífinu. Þú varst einfaldlega best, fallegust og gerðir allt svo fullkomið. Við erum svo þakklát fyrir tímann með þér og eigum óendanlega margar fallegar minningar um þig sem munu ylja okkur um alla framtíð. Við mun- um hugsa vel um pabba sem sakn- ar þín svo sárt. Við elskum þig, elsku besta mamma. Þín börn, Bjarni Þór, Kristín Fjóla og Silja Rún. Steinunn Bjarnadóttir var ein af þessum manneskjum sem tóku á móti manni með brosi á vör og sagði alltaf með hlýju: Nei, ert þú kominn! Ég kynntist Steinu fyrir rúm- um 38 árum þegar ég fór að venja komur mínar inn á heimili þeirra hjóna Steinu og Gulla á Mið- vangnum. Steina var stórglæsileg og gullfalleg kona, alltaf vel til- höfð, svo eftir var tekið. Hugsaði allt til síðasta dags einkar vel um útlit sitt og heilsu. Ekki man ég eftir henni öðruvísi en í fallegum fötum, naglalakkaðri, með varalit og hálsfestar um hálsinn. Steina og Gulli hafa alltaf verið samrýnd, stórglæsileg hjón sem dönsuðu saman í gegnum lífið. Þau unnu saman að félagsstörf- um, hlúðu að fjölskyldu og vinum og ekki síst nostruðu þau við sum- arhúsið sitt „Hreiðrið“ og rækt- uðu landið þar í kring. Síðustu ár vissi Steina ekkert betra en að komast í Hreiðrið, sinna þeim verkum sem féllu henni þar í skaut, taka á móti gestum, gefa kaffi og með því og eyða þar tíma með Gulla sínum. Þegar ég hugsa um Steinu dettur mér alltaf í hug orðatiltækið Maður er manns gaman. Fátt þótti henni skemmti- legra en að hitta annað fólk og eyða með því tíma, sama hvort það var yfir kaffibolla í eldhúsinu, í matarboðum, einkasamkvæm- um, í sínum árlegu kvennaboðum, hekluklúbbnum, vinkonuhitting- um, samvera með systrum sínum eða við önnur félagsstörf. Hún var frá því ég kynntist henni í leikfim- isklúbbi Stjörnunnar, síðar gekk hún í Lionsklúbb og Oddfellow- stúku. Steina var vinur vina sinna og sinnti þeim ótrúlega vel, af ástúð og áhuga. Sú væntumþykja gerði hvern þann sem hennar naut að betri manneskju. Sá hópur sem Steina taldi til vina sinna var stór og á öllum aldri en að öllum öðrum ólöstuðum þótti henni vænst um ömmu- og langömmubörnin og fylgdist einkar vel með þeim og bar hag þeirra fyrir brjósti. Síðustu ár var Steina veik af heilabilun. Þá kom berlega í ljós allt það góða fólk sem hún átti að og elskaði hana. Gulli stóð eins og klettur við hlið konu sinnar ásamt börnum þeirra, systrum, góðum vinkonum og starfsfólki Sólvangs. Ég þakka samfylgdina og kveð Steinu tengdamóður mína með einkunnarorðum hennar sem ég hef gert að mínum: „Ef það er ekki þetta, þá er það bara eitthvað annað.“ Hvíl í friði, mín kæra. Sigríður Sigurðardóttir (Sigga). Þegar ég minnist elsku tengda- móður minnar, Steinunnar Bjarnadóttur, þá kemur fyrst upp í hugann hvað hún gerði allt gott og fallegt í kringum sig. Hún var stórglæsileg sjálf, há og tignarleg, og hafði til að bera létta lund sem smitaði út frá sér. Hún var ein- staklega hláturmild. Hún tók mér vel frá fyrsta degi, við náðum vel saman og hún var mér afar kær. Hún vildi alltaf sjá björtu hliðarn- ar á öllum hlutum, var hrifnæm og henni fannst að allt ætti að vera gott, því þannig vildi hún hafa það og lokaði bara augunum, held ég, fyrir því sem henni fannst ekki henta. Það var skemmtilegt að vera í kringum hana, hún vildi hafa líflegt í kringum sig, var líka vinmörg og öllum fannst gaman að koma í heimsókn til Steinu og Gulla, því það var tekið á móti öll- um opnum örmum. Hún hafði mikinn áhuga á högum annarra, mikið var spjallað og hlegið yfir kaffibolla og bornar fram ljúf- fengar kræsingar, það var aldrei neitt til sparað. Steinunni fannst mjög gaman að halda veislur, hélt þær margar og gerði það af mikl- um metnaði, allt var fullkomið og skipulagt út í ystu æsar. Hvert einasta smáatriði var svo hundrað prósent rétt. Oft hélt hún þar ræður og í þeim minnti hún jafnan á mikilvægi þess að rækta vina- sambönd, að nota tímann vel, að ferðast og skemmta sér. Og hún þurfti ekki vín til þess, bragðaði aldrei svo mikið sem víndropa. Hún hugsaði vel um heilsuna, var dugleg að stunda leikfimi og úti- veru, enda var hún grönn og spengileg alla ævi. Síðan var allt saman: ferðalögin, veislurnar, sumarbústaðardvölin í Hreiðrinu; paradís þeirra hjóna, lífið sjálft, atvik stór og smá, skráð samvisku- samlega niður og raðað af natni ásamt myndum í ótal albúm. Texti undir hverri mynd. Steinu tókst að gera lífið að ævintýri. Ég var mik- ið í kringum Steinu því böndin eru sterk í hennar fjölskyldu. Hún dýrkaði barnabörnin, sagðist líka eiga svo mikið í þeim, og stjanaði í kringum þau. Heimili þeirra hjóna hlýlegt, fallegt og allir alltaf vel- komnir þar. Ég held að það hafi varla liðið sá dagur að ekki hafi verið gestir í eldhúsinu hjá Steinu og Gulla. Mér finnst reyndar, þeg- ar ég hugsa til baka, að hver ein- asti dagur hafi verið veisla hjá Steinunni, henni tókst að lyfta öllu upp í hæstu hæðir og gera allt svo mikils virði. Hún gaf lífinu svo sannarlega lit. Í öllum sínum verk- um og öllu sínu lífi naut hún óend- anlegs stuðnings Gulla, eigin- manns síns, og þessi síðustu ár þegar halla tók undan fæti vék hann varla frá henni. Umhyggja hans í hennar garð var endalaus, enda dýrkaði hún og dáði Gulla sinn. Nú ríkja sorgin og söknuður- inn, hann verður alltaf til staðar, en ég geymi endalaust margar hlýjar minningar um mína yndis- legu tengdamóður. Friðrik G. Sturluson. Amma var svo ótrúlega góð við okkur, hún var einfaldlega best og við elskuðum að vera hjá henni og afa í Mávahrauninu og í Hreiðr- inu, fallega sumarbústaðnum þeirra, og hún snerist alltaf í kringum okkur og gerði allt fyrir okkur. Hún var alltaf skemmtileg og var svo ánægð með barnabörn- in sín. Hún var svo dugleg að láta okkur vita hvað hún var hreykin af okkur og elskaði okkur svo mikið. Á jólunum var alltaf allt svo flott hjá ömmu og afa, húsið fullt af jólaskrauti, kveikt á kertum, pip- arkökur og kakó, og maturinn og veislurnar geggjaðar. Amma eld- aði auðvitað besta matinn og bak- aði bestu kökurnar. Við eigum svo margar skemmtilegar og góðar minningar um ömmu og erum svo þakklát fyrir tímann sem við átt- um með henni. Við elskuðum hana af öllu hjarta og eigum eftir að sakna hennar sárt. Sturla, Gunnlaugur Fjólar og Þórdís Fjóla. Elsku amma Steina, hún nafna mín, var hlýjasta og yndislegasta manneskja sem til er, alltaf glöð og svo brosmild. Það sem kemur fyrst upp í huga okkar systkina þegar við sitjum hérna og rifjum upp allar þær góðu og fallegu minningar sem við eigum um hana er hversu góðhjörtuð og ljúf hún amma okkar var. Alltaf vorum við í fyrsta sæti hjá henni, hún hugs- aði fyrst um okkur áður en hún fór að hugsa um sjálfa sig. Lýsir það sér eflaust vel í því, svona með jól- in á næsta leiti, að á aðfangadag komum við stórfjölskyldan saman á Mávahrauni og var hún amma byrjuð að undirbúa kræsingarnar fyrir kvöldið eldsnemma og settist sjálf ekki niður fyrr en nánast allir voru búnir að borða. Það skipti engu máli hversu oft við sögðum við hana að setjast niður og slaka á og borða með okkur, hún lét eins og hún heyrði ekki í okkur því að fyrir henni vorum við það sem skipti mestu máli. Ótrúleg kona. Sumarbústaðarferðir í fallega Hreiðrið hjá þeim ömmu og afa voru tíðar og voru þau dugleg að taka okkur með þangað enda þótti okkur yndislegt að fá að fara með þeim, ávallt þegar við komum var amma á fullu í beðunum að reyta arfa eða dytta að og afi kominn lengst upp í einhvern stiga eða upp á þak að fá réttilega ágætis tiltal frá henni elskulegri ömmu okkar. En svo bara augnabliki seinna féllust þau í faðma, fóru að knúsast og atast hvort í öðru enda sást það langar leiðir hvað þau elskuðu hvort annað mikið og voru mjög samrýmd í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Amma okkar var líka einstaklega lagin við það að styðja við bakið á okkur yngri krílunum þegar foreldrar okkar voru að gefa okkur skamm- ir, þá var sko amma mætt til að segja þeim að hætta þessari vit- leysu og að við mættum sko alveg gera nákvæmlega það sem við vildum hjá henni, hvort sem það var að sleikja súkkulaðikremið af sleifinni eða horfa á Lion King í hundraðasta skiptið. Einnig er manni ofarlega í minni hvað það var gaman að kíkja í kaffi til ömmu eftir skóla þegar við bjugg- um á Erluhrauni og mæta í hlað- borð af kræsingum sem amma var búin að undirbúa fyrir mann á ör- skotsstundu. Heimilið á Máva- hrauni hefði verið frábært sóttkví- arhús því að það var hreinna en spítali, ekki rykkorn að sjá sama hvað við barnabörnin reyndum að skíta út. Já, hún amma okkar var besta amma sem hægt var að hugsa sér og minningarnar eru endalausar. Elsku amma, hvíldu í friði og við vitum að þú munt vaka yfir og passa okkur áfram. Við elskum þig. Steinar, Logi og Guðrún Heiða. Okkar elsku besta systir er fall- in frá eftir baráttu við erfið veik- indi. Hún var okkar besta vin- kona, glaðlynd og skemmtileg. Við gátum alltaf hlegið mikið sam- an og geymum minningar um margar yndislegar stundir. Við ferðuðumst mikið saman, bæði er- lendis sem og innanlands. Steina var mjög dugleg að halda sínar flottu veislur, bæði á Mávahraun- inu og í Hreiðrinu, og voru þær alltaf hinar glæsilegustu. Við gát- um alltaf treyst á hana og hún var okkar stoð og stytta. Við eigum eftir að sakna þín mikið, elsku besta systir. Við munum passa vel upp á elsku Gulla þinn. Þínar systur, Áslaug og Rut. „Gulli og Steina eru komin!“ Þessi setning heyrðist oft á æsku- heimili okkar systra og af tilhlökk- un drifum við okkur að hitta þau og sitja með þeim. Það var ekki af skyldurækni heldur voru þetta skemmtilegar stundir og enda- laust sagðar sögur og hlegið, en fyrstu kynni þeirra voru á heimili móður okkar. Margar dásamlegar minningar rifjast upp. Steina með rúllur í hárinu, túberað hár sem endaði með glæsilegri lagningu og auðvit- að rætt um nýjustu tískuna. Heimsóknir til Steinu og Gulla voru alltaf einstakar. Veitingarnar voru meiri en gerist og gengur, hvort sem var á fyrsta heimili þeirra á Tunguveginum, síðan Miðvangi, Mávahrauninu eða í sumarbústaðnum og síðast var það sviðaveisla í Skipalóninu. Steina tók alltaf hjartanlega vel á móti öllum með bros á vör. Sköp- unarhæfileika og góðan smekk hennar mátti sjá á öllu, hvort sem það var á heimilinu eða í glæsi- legum klæðaburði. Gjafmildi hennar var mikil og tækifær- iskortin sem fylgdu með voru ein- stök með persónulegri kveðju, ljósmyndum eða ljóðum, sem svo sannarlega stóðu upp úr. Það var erfitt að heyra af veik- indum Steinu, það snerti okkur djúpt og hennar er sárt saknað. Við getum huggað okkur við allar þær dásamlegu minningar sem við áttum með henni, hún var okkur systrum góð fyrirmynd. Við vitum að gleði og glæsileiki mun áfram umlykja hana á góðum stað, þar sem englarnir syngja. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra Veki þig með sól að morgni, Veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vina mín kær. Faðirinn mun þig geyma um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni, Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Okkar elskulegu Gulli frændi, Bjarni Þór, Kristín Fjóla og Silja Rún. Sendum ykkur og fjölskyld- um ykkar innilegustu samúðar- kveðjur. Edda og Sjöfn Arnbjörnsdætur. Elsku frænka. Ég fékk þau for- réttindi að fá að þekkja þig alla mína ævi. Heimili þín á Miðvang- inum og Mávahrauni voru eins og mín önnur heimili. Það var alltaf mikil gleði og hlátur í kringum þig, hvort sem setið var yfir kaffibolla í eldhúsinu eða í einni af þínum glæsilegu veislum. Ég á svo margar yndislegar minningar sem þú skilur eftir þig. Þú ert frábær fyrirmynd, ávallt svo sterk, hlý og stórglæsileg kona. Ég mun sakna þín elsku Steina. Hvíl í friði. Þín frænka, Heba Brandsdóttir. Það voru þreyttar en glaðværar konur sem hittust eldsnemma á júlímorgni árið 1991. Voru þar mættar 18 fimleikastjörnur, konur á besta aldri auk þjálfara sem loksins eftir stífar æfingar síðustu mánuði áttu að uppskera afrakst- ur erfiðisins og halda á alþjóðlegt fimleikamót í Amsterdam ásamt fleiri hópum frá Íslandi, en sam- tals voru 20.000 þátttakendur á þessu móti. Þetta var frábær ferð í alla staði, mikið prógramm og lítil hvíld og svo mikið hlegið að það hálfa hefði verið nóg. Allt mjög skemmtilegt, þó vissum við ekki að það besta var eftir, ævilöng vin- átta hópsins sem ekkert nema dauðinn hefur aðskilið. Síðan höf- um við farið saman í þrjár utan- landsferðir, auk allra helgarferð- anna þar sem konur mættu uppáklæddar í samræmi við þema ferðarinnar. Reglulega hefur hóp- urinn komið saman í heimahúsi og borðað saman. Steinunn er sú fjórða úr hópnum sem hverfur á braut og alltaf verða þessar minn- ingar dýrmætari. Síðast í sumar þegar við heimsóttum hana nokkrar var hún orðin mjög veik og vissum ekki hvort hún þekkti okkur, en þegar ég sýndi henni gamlar myndir af okkur brosti hún og sagði: „Þarna eru þær all- ar.“ Í öllum þessum ferðum og boð- um var mjög erfitt að toppa Stein- unni. Hún var í flottustu dressun- um og með flottustu boðin. Síðasta heimboðið hennar var í Hvalfirði 2015, en þar tóku þau Gulli á móti okkur og byrjaði gleðin með hádegismat. Ekki dugði minna en þrjár aðstoðar- konur sem dekruðu við okkur í mat og drykk allan daginn og til kvölds. Auk þess að borða var boðið upp á skoðunarferð í gamalli rútu, rölt um Hvalstöðina og slök- un í heitum potti. Um nóttina var öllum boðin gisting í uppábúnum rúmum. Fyrir eina helgarferðina okkar kom hún að máli við fararstjóra hvort við gætum komið við hjá henni í Vaðnesinu í heimleiðinni því hana langaði að bjóða okkur í súpu. Hinum var ekki sagt frá þessu, en þegar við komum að hliðinu tók Gulli á móti okkur uppáklæddur í kjólföt. Ekki nóg með það, heldur biðu systir henn- ar og mágur inni í stofu uppá- klædd sem þjónustufólk úr „Hús- bændum og hjúum“, vinsælum sjónvarpsþætti sem þá var á skjánum. Svo henni líkt. Þegar við hinar buðum heim stóð Steinunn ætíð upp og hélt þakkarræðu fyrir hönd hópsins og með fylgdi þakk- arkort sem hún hafði föndrað með viðeigandi myndum og meira að segja umslagið var sérprentað. Ein eftirminnilegasta helgar- ferðin okkar var þegar heimboð kom „í pútnahús í Biskupstungum og væru gleðikonur beðnar að klæðast viðeigandi fatnaði fyrir kvöldmat“. Þetta var mjög skrautlegur hópur, en Steina tók þetta alla leið. Fór til Parísar og dró þar vinkonu sína inn í „rauð- asta hverfi borgarinnar“ til að leita að dressi. Eftir nokkra leit fundu þær búð og þá hótaði vin- konan, að ef hún færi ekki inn og keypti eitthvað skyldi hún hafa verra af því að láta hana fara að erindislausu í þessa hættuför. Hún keypti og var langflottust. Að leiðarlokum þökkum við 30 ára samfylgd, kæra vinkona, og sendum innilegar samúðarkveðj- ur til Gulla og fjölskyldunnar. F.h. Amsterdamsystra, Herborg Þorgeirsdóttir. Margs er að minnast þegar ég kveð kæra vinkonu mína Stein- unni, sem ég kynntist fyrir rúm- um 50 árum. Kynni okkar hófust eftir að Bílddælingurinn Gunn- laugur Fjólar Gunnlaugsson gekk að eiga Steinunni Bjarnadóttur, en þau hófu búskap sinn í Hafn- arfirði og bjuggu þar alla tíð. Steina, eins og hún var alla tíð kölluð, var glæsileg, hávaxin, ljós- hærð kona, alltaf með bros á vör. Hún var sannur Hafnfirðingur, fædd og uppalin, eins og foreldrar hennar. Börn þeirra eru Bjarni Þór, Kristín Fjóla og Silja Rún. Gulli festi rætur sínar hér í Hafn- arfirði og starfar frá fyrstu tíð, hjá sömu atvinnurekendunum, áður fiskveiðahlutafélaginu Venusi og nú hjá Hval hf. Mun hann örugg- lega halda því áfram, ef við þekkj- um hann rétt. Alltaf var gott og gaman að heimsækja þau Steinu og Gulla, enda einstaklega gestrisin. Þau voru mjög samstíga og samhent í öllu, sem þau tóku sér fyrir hend- ur. Sumarbústaðurinn „Hreiðrið“ og gróðurinn allt í kring, ber þess merki, sem er einstakur sælureit- Steinunn Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.