Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.12.2020, Blaðsíða 35
ekki að einbeita sér að af- reksstarfinu. ÍSÍ hefur sent inn fjöldann allan af undanþágubeiðnum, jafnvel þótt sérsamböndin geri sér ekki endilega grein fyrrir því. Forysta ÍSÍ er vakin og sofin yfir þessu, með allar þessar reglubreytingar sem hafa verið í gangi, þannig að þau eru svo sannarlega að beita sér eins og best verður á kosið. Aðalatriðið er að ná þessari veiru niður svo sam- félagið okkar geti komist aft- ur af stað. Á meðan hún er ennþá undirliggjandi í sam- félaginu þá eigum við það alltaf á hættu að missa tökin.“ Aðeins einn Landspítali Það er mikið álag í ráðu- neyti Lilju en ráðherrann ítrekar að það sé ljós við enda ganganna. „Auðvitað myndi ég vilja að afreksíþróttafólkið okkar væri á fullu alla daga enda mitt fólk og mitt ráðuneyti en það væri líka óábyrgt af mér að valda þrýstingi sem gæti sett samfélagið á hliðina. Markmiðið var að létta á tak- mörkunum 2. desember og afreksíþróttafólkið okkar var inni í þeim afléttingum en það gekk því miður ekki. Það sem fólki gremst einna mest er að það ber sig saman við önnur lönd en þá þarf líka að hafa það í huga að hér er bara eitt þjóðarsjúkrahús. Landspítalinn er ekki á neyðarstigi núna en hann var á því fyrir nokkrum vikum. Þess vegna miðar sóttvarna- læknir allar sínar aðgerðir að því að ná faraldrinum niður þannig að það myndist ekki þannig staða á Landspít- alnum að við þurfum að fara að velja sjúklinga til að sinna. Þetta er viðkvæm staða og hlutirnir geta breyst mjög hratt. Á sama tíma skil ég gagnrýnina, áhyggjurnar og óþreyjuna og ég er þar líka en ég veit líka að það er ljós við enda ganganna. Það er von og við verðum, um leið og við komust út úr þessu ástandi, að nota þennan tíma núna sem hvatningu í fram- tíðinni,“ bætti Lilja við í sam- tali við Morgunblaðið. Leita allra leiða Íþrótta- og Ólympíusam- band Ísland hefur sætt mik- illi gagnrýni fyrir að vera ekki nægilega áberandi í hagsmunabaráttu íþrótta- hreyfingarinnar en Andri Stefánsson, sviðsstjóri Af- reks- og ólympíusviðs ÍSÍ, segir að hlutirnir séu ekki al- veg svona einfaldir. „Ég er alveg sammála því að það er mjög dapurt að okkar afreksíþróttafólk geti ekki stundað æfingar í sínum íþróttagreinum,“ sagði Andri í samtali við Morgunblaðið. „ÍSÍ hefur barist fyrir því gagnvart stjórnvöldum að íþróttafólk geti æft og það er búið að leita ýmissa leiða. Það er búið að halda fjölda funda með sérsamböndunum þar sem reynt er að finna lausnir og leiðir í því árferði sem nú er ríkjandi. ÍSÍ hefur hins vegar ekki notað fjöl- miðla í sinni baráttu til þess að vinna málin út á við heldur höfum við verið í beinu sam- bandi við íslensk stjórnvöld. Þannig að það má alveg spyrja sig hvort þeir sem hafa tjáð sig einna mest viti hvað býr að baki þeirri vinnu sem við höfum verið að vinna. Það hefur mikil vinna farið í það að reyna að fá und- anþágu fyrir íþróttafólk sem er að keppa á alþjóðlegum mótum sem dæmi og það er eitthvað sem er heimilt sam- kvæmt þeirri reglugerð sem nú er í gildi. Það hefur tekist í bæði bolta- og ein- staklingsíþróttum og á sama hátt höfum við reynt að ýta á eftir því að hægt verði að taka fleiri skref í þessa átt. Þannig hafa fengist und- anþágur fyrir afreks- íþróttafólk í sundi, frjáls- íþróttum, fimleikum, kraftlyftingum, ólympískum lyftingum og júdó, svo eitt- hvað sé nefnt, en í öllum til- fellum er íþróttafólkið að undirbúa sig fyrir alþjóðlega keppni í náinni framtíð.“ Allt annað umhverfi Andri segir erfitt að bera íþróttaumhverfið erlendis saman við umhverfið sem íþróttafólk hér á landi býr og æfir við. „Ég held að það sem gerð- ist á vormánuðum, í fyrstu bylgju faraldursins, hafi ver- ið að íþróttahreyfingin reyndi að sýna stuðning í verki með því að fylgja reglum stjórnvalda. Það hef- ur verið einkennandi fyrir ís- lenskt samfélag undanfarin ár, það er að segja; við höld- um okkur innan þess ramma sem okkur er settur. Fyrir vikið komumst við oft hraðar í gegnum hlutina eins og með kreppuna á sínum tíma. ÍSÍ hefur ekki farið í einhver mótmæli gegn opinberum aðilum gagnvart svona þátt- um heldur meira einblínt á að bregðast við í sameiningu. Fólk hefur aldrei hreyft sig eins mikið sjálft og á árinu sem er líka frábært. Það er heldur ekki alltaf hægt að horfa til útlanda og miða sig við þau því þar ertu kannski með stórlið sem hafa heilt íþróttamannvirki út af fyrir sig. Íþróttamannvirkin hér á landi eru notuð fyrir alla aldurshópa þannig að það er ekki í boði að búa til einhverja búbblu eingöngu fyrir meistaraflokkana. Ef það á að gera það þarf hugsanlega að loka hús- unum fyrir yngri flokk- unum og það viljum við alls ekki gera. Þetta er þess vegna miklu flóknara en sumir gera sér grein fyrir. Jafnvel þótt við séum kom- in í einhverja atvinnu- mennsku á ákveðnum sviðum á Íslandi erum við langt í frá komin í sama umhverfi og þjóðirnar í kringum okkur,“ bætti Andri við. sért í afreksíþróttum 2. desember HSÍ og KKÍ fresta öllu mótahaldi fram yfir áramót 1. desember Æfinga- og keppnisbann framlengt um eina til tvær vikur 18. nóvember Íþróttastarf barna heimilað á ný Afreksíþróttafólk og meistaraflokkar fá æfingaleyfi í mannvirkjum á vegum sveitarfélaganna 30. október Allt íþróttastarf leggst af Keppni hætt á Íslandsmótinu í knattspyrnu 21. október Meistaraflokkar innan KSÍ mega æfa en undir ströngum takmörkunum 19. október Íþrótta- og tómstunda- starf barna leggst af KKÍ frestar öllu móta- haldi 20. október Íþróttir sem krefjast mikillar nálægðar eða snertingar bannaðar á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Handbolti FH og Fram eigast við í úrvalsdeild karla en síðast var leikið í efstu deild í október. Ljósmynd/FIBA Körfubolti Kvennalandsliðið lék landsleiki í nóvember. ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020  Knattspyrnumaðurinn Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur gert nýjan samning við KA og mun leika með lið- inu í úrvalsdeild karla, Pepsi Max- deildinni, næsta sumar. Steinþór er 35 ára gamall en hann kom til KA fyr- ir keppnistímabilið 2016. Hann á að baki 121 leik í efstu deild þar sem hann hefur skorað 11 mörk en hann hefur leikið með Breiðabliki, Stjörn- unni og KA hér á landi. Þá hefur hann einnig leikið með Örgryte, Sandnes Ulf og Viking í atvinnumennsku er- lendis. „Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri áfram innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leik- maður er hann frábær liðsmaður,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu Akureyringa.  Lars Lagerbäck er hættur sem þjálfari norska karlalandsliðsins í knattspyrnu en hann lét af störfum í gær. Ståle Solbakken var ráðinn í hans stað en hann tekur formlega við starfinu 7. desember. Lagerbäck tókst ekki að fara með norska liðið á stór- mót en undir hans stjórn fór liðið þó upp um fjörutíu sæti á FIFA-listanum. Lars Lagerbäck stýrði íslenska karla- landsliðinu frá 2011 til ársins 2016 en lét af störfum eftir EM 2016 í Frakk- landi.  Guðrún Jóna Kristjánsdóttir er aftur tekin við meistaraflokksliði Hauka en Hafnfirðingar tilkynntu í gær að hún hefði verið ráðin þjálfari kvennaliðs félagsins í knattspyrnu. Guðrún hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins síðustu þrjú tímabil og hefur hún verið í fullu starfi hjá félaginu síð- an haustið 2019. Þá hefur hún einnig séð um þjálfun 2. flokks kvenna. Guð- rún býr að mikilli reynslu því hún hef- ur áður stýrt Aftureldingu/Fjölni, KR, FH og Þrótti í Reykjavík á þjálfaraferl- inum. Á leikmannaferlinum lék hún 25 A-landsleiki og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með KR, en lið Hauka leikur í 1. deildinni, Lengjudeildinni. Á síðasta tímabili stýrði engin kona liði í tveimur efstu deildunum en nú verða þær alla vega tvær því Bára Krist- björg Rúnarsdóttir er tekin við Augnabliki eins og fram kom á dög- unum. Augnbalik leikur einnig í 1. deildinni.  Ítalía mætir Spáni í undanúrslitum Þjóðadeildar UEFA í knattspyrnu en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í gær. Þá mætast Belgía og Frakkland í hinu undanúrslitaeinvíg- inu. Allir leikirnir fara fram á Ítalíu.  Handknattleikskonurnar Andrea Gunnlaugsdóttir og Ásdís Þóra Ágústsdóttir hafa gert nýja samninga við Val og eru samningsbundnar fé- laginu út tímabilið 2024. Handknattleiksdeild Vals tilkynnti þetta í gær en Andrea og Ásdís eru í hópi efnilegustu leikmanna landsins. Báðar voru þær gjaldgengar í 3. flokki sem varð deildar- og bikarmeist- ari á síðasta tímabili en léku einnig með meist- araflokki. Eitt ogannað Martin Hermannsson átti mjög góð- an leik fyrir Valencia gegn sínum gömlu félögum í Alba Berlín í Evr- ópudeildinni í körfuknattleik á Spáni í gær. Martin, sem var stiga- hæstur í liði Valencia ásamt Kle- men Prepelic, skoraði 13 stig og gaf sex stoðsendingar en leiknum lauk með 100:92-sigri Alba Berlín. Martin lék með Alba Berlín í tvö tímabil en samdi við Valencia í haust. Valencia er með sjö sigra í fjórða sæti Evrópudeildarinnar en þetta var fjórða tap liðsins í keppn- inni á tímabilinu. Stigahæstur í Evrópudeildinni Ljósmynd/@YarisahaBasket Sókn Martin Hermannsson í barátt- unni í Valencia á Spáni í gærkvöldi. Ingibjörg Sigurðardóttir er til- nefnd sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu fyrir frammistöðu sína með Vålerenga. Þrír leikmenn koma til greina sem leikmaður ársins og voru valdir af fjögurra manna dóm- nefnd sem skipuð var einstakling- um úr fjölmiðlunum. Ásamt Ingi- björgu eru þær Julie Blakstad og Cesilie Andreassen einnig til- nefndar en þær leika báðar með Rosenborg. Vålerenga er í efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar þegar einni umferð er ólokið. Morgunblaðið/Eggert Miðvörður Ingibjörg hefur spilað frábærlega í Noregi á tímabilinu. Á meðal þeirra bestu í Noregi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.