Morgunblaðið - 04.12.2020, Page 37
Níu bækur tilnefndar til Fjöruverðlauna
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur
eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna
– bókmenntaverðlauna kvenna (sís
og trans) og trans, kynsegin og
intersex fólks á Íslandi í ár. Dóm-
nefndir tilnefndu bækur í þremur
flokkum, en flokkarnir skiptast í
fræðibækur og rit almenns eðlis,
barna- og unglingabókmenntir og
fagurbókmenntir. „Fjöruverðlaunin
voru afhent í fyrsta sinn vorið 2007
og hafa verið veitt árlega síðan.
Verðlaununum er ætlað að vekja
athygli á og hampa bókum kvenna.
Í ljósi Covid-19 faraldursins og sam-
komutakmarka var horfið frá hefð-
undinni tilnefningahátíð en vonast er
til að hægt verði að afhenda verð-
launin, samkvæmt venju, við
hátíðlega athöfn snemma árs 2021,“
segir í tilkynningu.
Mikilvæg bók
Í flokki fræðibóka og rita almenns
eðlis eru tilnefndar bækurnar:
Íslenskir matþörungar - ofurfæða úr
fjörunni eftir Eydísi Mary Jóns-
dóttur, Hinrik Carl Ellertsson, Karl
Petersson og Silju Dögg Gunnars-
dóttur; Konur sem kjósa: Aldarsaga
eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur,
Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragn-
heiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H.
Þorvaldsdóttur og Þættir úr sögu
lyfjafræðinnar á Íslandi frá 1760
eftir Hilmu Gunnarsdóttur.
Dómnefnd skipuðu Hafdís Erla
Hafsteinsdóttir, Sigrún Helga Lund
og Sóley Björk Guðmundsdóttir.
Í umsögn dómnefndar um
Íslenskir matþörungar - ofurfæða úr
fjörunni segir: „Bókin kynnir les-
andann fyrir þeirri vannýttu matar-
kistu sem býr í fjörunni og kennir
honum að þekkja matþörunga, safna
þeim og matreiða. Efni bókarinnar
er komið vel til skila, ekki bara með
aðgengilegum texta heldur er hún
einnig ríkulega skreytt fallegum
myndum.“
Um Konur sem kjósa: Aldarsaga
segir: „Höfundar skyggnast bak við
mýtuna um að íslenskar konur séu
fegurstar og sjálfstæðastar allra
kvenna og taka til umfjöllunar
hvernig lagalegt og félagslegt jafn-
rétti kynjanna þróaðist á Íslandi.
Fjallað er um hvernig konur sigr-
uðust á þeim hindrunum sem blöstu
við, til dæmis baráttuna um launa-
jafnrétti, lífeyri eða aðgengi að sal-
ernisaðstöðu á vinnustöðum. Í þess-
ari mikilvægu bók um sögu
íslenskra kvenna stígur fram marg-
radda kór sem er vissulega ekki
sammála um allt, en er þó samstíga
í baráttunni fyrir iðkun borgararétt-
inda.“
Um Þættir úr sögu lyfjafræðinnar
á Íslandi frá 1760 segir: „Bókin er
listilega skrifuð þar sem vönduð
sagnfræðileg heimildavinna um
þróun greinarinnar er sett í bráð-
skemmtilegt samhengi við ríkjandi
tíðaranda svo lesandinn líður í gegn-
um frásögnina eins og spennandi
reyfara sem erfitt er að leggja frá
sér.“
Persónusköpun frumleg
Í flokki barna- og unglinga-
bókmennta eru tilnefndar bækurnar:
Iðunn og afi pönk eftir Gerði
Kristnýju; Sjáðu eftir Áslaugu Jóns-
dóttur og Vampírur, vesen og annað
tilfallandi eftir Rut Guðnadóttur.
Dómnefnd skipuðu: Anna Þor-
björg Ingólfsdóttir, Guðrún
Jóhannsdóttir og Hildur Ýr Ísberg.
Í umsögn dómnefndar um Iðunn
og afi pönk segir: „Iðunn og afi
pönk lýsir veröld ellefu ára stelpu í
Mosfellsbæ. Atburðarásin hverfist
um afa hennar, dularfullt reiðhjóls-
hvarf og grunsamlegar stelpur í
hverfinu. Ekki er allt sem sýnist,
ekki pönkið heldur. Trú afa á frelsi
og umburðalyndi fólks gagnvart
sjálfu sér og öðrum, eflir Iðunni og
á erindi við lesendur. Gerður skrifar
af leikandi húmor, með skáldlegri
hrynjandi og smitandi ást á tungu-
málinu.“
Um Sjáðu segir að lesendur fylgi
„tveimur kátum krökkum um ævin-
týraveröld þar sem sumt er kunnug-
legt en annað framandi. Leiðsögnin
er í bundnu máli, leikandi og létt.
Skemmtileg orð kallast á við fjör-
legar og litríkar myndir sem gefa
ímyndunaraflinu undir fótinn. Fram-
vinda frásagnarinnar er mest í
myndunum og þar má sjá fleira en
nefnt er í vísunum. Hér er boðið
upp á gefandi samveru og samtöl
foreldra og ungra barna, skemmtun
og mikilvæga málörvun.“
Um Vampírur, vesen og annað til-
fallandi segir: „Sagan er að mestu
leyti raunsæ frásögn um líf þriggja
stúlkna og vandamál þeirra í skóla
og einkalífi en færir sig svo aðeins
inn á svið fantasíunnar í lokin, í vel
heppnaðri blöndu. Bókin er vel
skrifuð og persónusköpun er frum-
leg og sannfærandi. Rut tekst að
koma alls kyns málefnum unglinga
nútímans inn í þessa vel fléttuðu og
húmorísku frásögn. Spennandi ný-
liðaverk frá höfundi sem á eftir að
láta að sér kveða.“
Meistaralega fléttuð
Í flokki fagurbókmennta eru til-
nefndar bækurnar: Aprílsólarkuldi
eftir Elísabetu Kristínu Jökuls-
dóttur; Hetjusögur eftir Kristínu
Svövu Tómasdóttur og Undir
Yggdrasil eftir Vilborgu Davíðs-
dóttur.
Dómnefnd skipuðu: Elín Björk
Jóhannsdóttir, Jóna Guðbjörg Torfa-
dóttir og Kristín Ástgeirsdóttir.
Í umsögn dómnefndar um Apríl-
sólarkulda segir: „Það er ekki heigl-
um hent að takast á við föðurmissi,
ástina og geðhvörf þannig að lesand-
inn fylgist með spenntur og
áhyggjufullur um leið og samúðin
fyllir hjarta hans. Þetta gerir Elísa-
bet afar vel í bók sinni Aprílsólar-
kulda. Þetta er sjálfsævisögulegt
verk um glímu við fortíðina þar sem
sambandsleysi, söknuður, bóhemalíf
og óheftur sköpunarkraftur takast á
og leiða til mikilla átaka innan sem
utan líkamans. Hér er skáldskapur
á ferð sem veitir innsýn í heim
níunda áratugarins um leið og hann
fjallar um leitina að sjálfsskilningi,
ást og umhyggju.“
Um Hetjusögur segir að um sé að
ræða ljóðabálk sem geymi „afar
frumlega endurvinnslu á ritinu
Íslenskar ljósmæður sem kom út á
sjöunda áratugnum. Þær hundrað
ljósmæður sem þar segir frá ganga í
endurnýjun lífdaga í ljóðum Krist-
ínar Svövu. Það er sem opnist gátt
inn í horfinn tíma þaðan sem
streyma lýsingar af hetjudáðum
þessara ljósmæðra sem létu hvorki
ófærð né veðurofsa hamla för sinni.
Enn fremur er hin góða fórnfúsa
kona dregin mjög skýrum dráttum.
Kristín Svava sækir í orðfæri fyrr-
nefndrar bókar og finnur því nýstár-
legan búning.“
Um Undir Yggdrasil segir að höf-
undur leiði „lesandann heima á milli,
frá Íslandi og austur um haf og frá
miðaldaheiminum sem hún hefur áð-
ur tekist á við yfir í handanheima
norrænu goðafræðinnar. Efnistökin
eru nútímaleg og úrvinnslan á
sagnaarfinum vönduð svo úr verður
söguleg skáldsaga sem á erindi við
nútímalesendur. Bókin gefur innsýn
í líf bæði kvenna og annarra auka-
persóna Íslendingasagnanna. Bókin
heldur lesandanum fram á síðustu
blaðsíðu enda er frásögnin meist-
aralega fléttuð.“
Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt árið 2007 Þeim er ætlað að vekja athygli á og hampa bókum
kvenna Skipuleggjendur vona að hægt verði að veita þau við hátíðlega athöfn snemma árs 2021
Rut
Guðnadóttir
Karl
Petersson
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
Gerður
Kristný
Erla Hulda
Halldórsdóttir
Eydís Mary
Jónsdóttir
Þorgerður H.
Þorvaldsdóttir
Vilborg
Davíðsdóttir
Áslaug
Jónsdóttir
Kristín Svava
Tómasdóttir
Hinrik Carl
Ellertsson
Ragnheiður
Kristjánsdóttir
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Hilma
Gunnarsdóttir
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
STÓRKOSTLEGA VEL GERÐNÝ
MYND FYRIR FJÖLSKYLDUNA
FRÁROBERT ZEMECKIS.
SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND