Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 37

Morgunblaðið - 04.12.2020, Síða 37
Níu bækur tilnefndar til Fjöruverðlauna Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi í ár. Dóm- nefndir tilnefndu bækur í þremur flokkum, en flokkarnir skiptast í fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og unglingabókmenntir og fagurbókmenntir. „Fjöruverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn vorið 2007 og hafa verið veitt árlega síðan. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á og hampa bókum kvenna. Í ljósi Covid-19 faraldursins og sam- komutakmarka var horfið frá hefð- undinni tilnefningahátíð en vonast er til að hægt verði að afhenda verð- launin, samkvæmt venju, við hátíðlega athöfn snemma árs 2021,“ segir í tilkynningu. Mikilvæg bók Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar bækurnar: Íslenskir matþörungar - ofurfæða úr fjörunni eftir Eydísi Mary Jóns- dóttur, Hinrik Carl Ellertsson, Karl Petersson og Silju Dögg Gunnars- dóttur; Konur sem kjósa: Aldarsaga eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragn- heiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur og Þættir úr sögu lyfjafræðinnar á Íslandi frá 1760 eftir Hilmu Gunnarsdóttur. Dómnefnd skipuðu Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Sigrún Helga Lund og Sóley Björk Guðmundsdóttir. Í umsögn dómnefndar um Íslenskir matþörungar - ofurfæða úr fjörunni segir: „Bókin kynnir les- andann fyrir þeirri vannýttu matar- kistu sem býr í fjörunni og kennir honum að þekkja matþörunga, safna þeim og matreiða. Efni bókarinnar er komið vel til skila, ekki bara með aðgengilegum texta heldur er hún einnig ríkulega skreytt fallegum myndum.“ Um Konur sem kjósa: Aldarsaga segir: „Höfundar skyggnast bak við mýtuna um að íslenskar konur séu fegurstar og sjálfstæðastar allra kvenna og taka til umfjöllunar hvernig lagalegt og félagslegt jafn- rétti kynjanna þróaðist á Íslandi. Fjallað er um hvernig konur sigr- uðust á þeim hindrunum sem blöstu við, til dæmis baráttuna um launa- jafnrétti, lífeyri eða aðgengi að sal- ernisaðstöðu á vinnustöðum. Í þess- ari mikilvægu bók um sögu íslenskra kvenna stígur fram marg- radda kór sem er vissulega ekki sammála um allt, en er þó samstíga í baráttunni fyrir iðkun borgararétt- inda.“ Um Þættir úr sögu lyfjafræðinnar á Íslandi frá 1760 segir: „Bókin er listilega skrifuð þar sem vönduð sagnfræðileg heimildavinna um þróun greinarinnar er sett í bráð- skemmtilegt samhengi við ríkjandi tíðaranda svo lesandinn líður í gegn- um frásögnina eins og spennandi reyfara sem erfitt er að leggja frá sér.“ Persónusköpun frumleg Í flokki barna- og unglinga- bókmennta eru tilnefndar bækurnar: Iðunn og afi pönk eftir Gerði Kristnýju; Sjáðu eftir Áslaugu Jóns- dóttur og Vampírur, vesen og annað tilfallandi eftir Rut Guðnadóttur. Dómnefnd skipuðu: Anna Þor- björg Ingólfsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Hildur Ýr Ísberg. Í umsögn dómnefndar um Iðunn og afi pönk segir: „Iðunn og afi pönk lýsir veröld ellefu ára stelpu í Mosfellsbæ. Atburðarásin hverfist um afa hennar, dularfullt reiðhjóls- hvarf og grunsamlegar stelpur í hverfinu. Ekki er allt sem sýnist, ekki pönkið heldur. Trú afa á frelsi og umburðalyndi fólks gagnvart sjálfu sér og öðrum, eflir Iðunni og á erindi við lesendur. Gerður skrifar af leikandi húmor, með skáldlegri hrynjandi og smitandi ást á tungu- málinu.“ Um Sjáðu segir að lesendur fylgi „tveimur kátum krökkum um ævin- týraveröld þar sem sumt er kunnug- legt en annað framandi. Leiðsögnin er í bundnu máli, leikandi og létt. Skemmtileg orð kallast á við fjör- legar og litríkar myndir sem gefa ímyndunaraflinu undir fótinn. Fram- vinda frásagnarinnar er mest í myndunum og þar má sjá fleira en nefnt er í vísunum. Hér er boðið upp á gefandi samveru og samtöl foreldra og ungra barna, skemmtun og mikilvæga málörvun.“ Um Vampírur, vesen og annað til- fallandi segir: „Sagan er að mestu leyti raunsæ frásögn um líf þriggja stúlkna og vandamál þeirra í skóla og einkalífi en færir sig svo aðeins inn á svið fantasíunnar í lokin, í vel heppnaðri blöndu. Bókin er vel skrifuð og persónusköpun er frum- leg og sannfærandi. Rut tekst að koma alls kyns málefnum unglinga nútímans inn í þessa vel fléttuðu og húmorísku frásögn. Spennandi ný- liðaverk frá höfundi sem á eftir að láta að sér kveða.“ Meistaralega fléttuð Í flokki fagurbókmennta eru til- nefndar bækurnar: Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Kristínu Jökuls- dóttur; Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og Undir Yggdrasil eftir Vilborgu Davíðs- dóttur. Dómnefnd skipuðu: Elín Björk Jóhannsdóttir, Jóna Guðbjörg Torfa- dóttir og Kristín Ástgeirsdóttir. Í umsögn dómnefndar um Apríl- sólarkulda segir: „Það er ekki heigl- um hent að takast á við föðurmissi, ástina og geðhvörf þannig að lesand- inn fylgist með spenntur og áhyggjufullur um leið og samúðin fyllir hjarta hans. Þetta gerir Elísa- bet afar vel í bók sinni Aprílsólar- kulda. Þetta er sjálfsævisögulegt verk um glímu við fortíðina þar sem sambandsleysi, söknuður, bóhemalíf og óheftur sköpunarkraftur takast á og leiða til mikilla átaka innan sem utan líkamans. Hér er skáldskapur á ferð sem veitir innsýn í heim níunda áratugarins um leið og hann fjallar um leitina að sjálfsskilningi, ást og umhyggju.“ Um Hetjusögur segir að um sé að ræða ljóðabálk sem geymi „afar frumlega endurvinnslu á ritinu Íslenskar ljósmæður sem kom út á sjöunda áratugnum. Þær hundrað ljósmæður sem þar segir frá ganga í endurnýjun lífdaga í ljóðum Krist- ínar Svövu. Það er sem opnist gátt inn í horfinn tíma þaðan sem streyma lýsingar af hetjudáðum þessara ljósmæðra sem létu hvorki ófærð né veðurofsa hamla för sinni. Enn fremur er hin góða fórnfúsa kona dregin mjög skýrum dráttum. Kristín Svava sækir í orðfæri fyrr- nefndrar bókar og finnur því nýstár- legan búning.“ Um Undir Yggdrasil segir að höf- undur leiði „lesandann heima á milli, frá Íslandi og austur um haf og frá miðaldaheiminum sem hún hefur áð- ur tekist á við yfir í handanheima norrænu goðafræðinnar. Efnistökin eru nútímaleg og úrvinnslan á sagnaarfinum vönduð svo úr verður söguleg skáldsaga sem á erindi við nútímalesendur. Bókin gefur innsýn í líf bæði kvenna og annarra auka- persóna Íslendingasagnanna. Bókin heldur lesandanum fram á síðustu blaðsíðu enda er frásögnin meist- aralega fléttuð.“  Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt árið 2007  Þeim er ætlað að vekja athygli á og hampa bókum kvenna  Skipuleggjendur vona að hægt verði að veita þau við hátíðlega athöfn snemma árs 2021 Rut Guðnadóttir Karl Petersson Elísabet Kristín Jökulsdóttir Gerður Kristný Erla Hulda Halldórsdóttir Eydís Mary Jónsdóttir Þorgerður H. Þorvaldsdóttir Vilborg Davíðsdóttir Áslaug Jónsdóttir Kristín Svava Tómasdóttir Hinrik Carl Ellertsson Ragnheiður Kristjánsdóttir Silja Dögg Gunnarsdóttir Hilma Gunnarsdóttir MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ STÓRKOSTLEGA VEL GERÐNÝ MYND FYRIR FJÖLSKYLDUNA FRÁROBERT ZEMECKIS. SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.