Morgunblaðið - 15.12.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.12.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða fjárhæð Pósturinn mun fara fram á að fá greidda úr ríkissjóði vegna svokallaðrar alþjónustubyrði. Þetta staðfestir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, fjármálastjóri fyrir- tækisins, í skriflegu svari til Morg- unblaðsins. Alþjónustubyrði er skilgreind sem sá kostnaður sem fellur á fyrir- tækið sökum alþjónustu sem það veitir á grundvelli útnefningar Póst- og fjarskiptastofnunar. Markmið al- þjónustu er að tryggja landsmönn- um öllum jafnan aðgang að póst- þjónustu af ýmsu tagi, óháð búsetu. Í upphafi þessa árs tók Pósturinn tímabundið við hlutverki alþjónustu- veitanda í kjölfar þess að einkarétt- ur fyrirtækisins á tilteknum tegund- um póstsendinga féll niður. Samgönguráðherra fól Póst- og fjarskiptastofnun í kjölfarið að út- nefna alþjónustuveitanda til 10 ára og sneiddi hjá möguleika um að bjóða starfsemina út. Liggur ákvörðun PFS nú fyrir og hefur Pósturinn hlotið fyrrnefnda útnefningu. Samhliða bráðabirgðaútnefning- unni fékk Pósturinn greiddar 250 milljónir króna til þess að standa undir þjónustunni en fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins taldi að sú fjárhæð þyrfti nærri því að tvöfald- ast til þess að mæta kostnaði fyrir- tækisins af hlutverkinu sem því er falið. Í fyrrnefndu svari segir Þór- hildur Helga að nú þegar útnefning Póstsins sem alþjónustuveitanda hafi verið staðfest hefjist vinna við að fara ofan í saumana á raunkostn- aði vegna verkefnisins. Tap af samkeppnisrekstri Líkt og fjallað var um í Morg- unblaðinu fyrir helgi nam tap Pósts- ins vegna alþjónustu sem veitt er á samkeppnismarkaði 1.023 milljón- um króna á árinu 2019. Þar af hafi tap vegna erlendra sendinga numið 496 milljónum. Póst- og fjarskipta- stofnun staðfesti á sama tíma að stærstur hluti þeirra 527 milljóna sem skýrðu hinn hluta tapsins væri vegna innlendra pakkasendinga. Tekið skal fram að tapið vegna al- þjónustu er aðskilið tapi vegna hins svokallaða einkaréttar en það nam tæpum 88 milljónum króna. Í skrif- legu svari Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, segir að stofnuninni hafi á þessu ári borist ábendingar vegna gjaldskrár Póstsins á innlendum sendingum eða vörudreifingu. „Formleg rannsókn hefur ekki verið hafin vegna þeirra en til skoð- unar er hvort þær gefi tilefni til at- hugunar af hálfu eftirlitisins,“ segir í svari Páls Gunnars. Ekki ljóst hvað Pósturinn fær  Ábendingar hafa borist til Samkeppniseftirlitsins vegna verðlagningar Póstsins  Stofnunin kannar hvort tilefni sé til að hefja athugun á fyrirtækinu  Sérstakt sendingargjald skili hálfum milljarði Tap Gustað hefur um starfsemi Póstsins síðustu ár vegna rekstrarerfiðleika. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sá meginmunur er á því hvernig löndun á afla gengur fyrir sig í Nor- egi og á Íslandi að hérlendis annast löggiltir vigtarmenn, sem eru starfs- menn hafnanna, vigtun og aflaskrán- ingu á meðan kaupandi afla vigtar og skráir í Noregi. „Þeir eru til sem mundu telja að íslenska leiðin vinni betur gegn svindli við löndun og skráningu en sú norska,“ segir Ög- mundur Haukur Knútsson fiskistofu- stjóri. Í norska blaðinu Nordlys birtist í síðustu viku grein um skipulagða glæpastarfsemi í norskum sjávar- útvegi og þar kom fram að þessi starfsemi væri metin á um tvo millj- arða norskra króna. Einkum var fjallað um tegundasvindl, t.d. að fiski væri landað í skjóli nætur og þorskur breyttist í ufsa um leið og hann væri kominn á hafnarbakkann. Í greininni kemur fram að kerfið sé betra á Ís- landi en í Noregi. Í skriflegum spurningum til Fiski- stofu var m.a. spurt hvað gert væri hér á landi til að tryggja að slíkt svindl viðgengist ekki hér á landi. Í svari Fiskistofu eru rakin nokkur af helstu atriðunum sem stofnunin telur að veiti aðhald við löndun, vigtun og skráningu afla. Hefst um borð í veiðiskipi „Aflaskráning hefst um borð í veiðiskipi þegar skipstjóri skráir magn afla og tegund í rafræna afla- dagbók sem skylt er að senda til Afli Ísaður fiskur í kari. Í Noregi annast kaupendur vigtun og skráningu, en hér annast löggiltir vigtarmenn, sem eru starfsmenn hafnanna, þá vinnu. Löggiltir vigtarmenn annast vigtun Fiskistofu áður en lagst er að bryggju. Allar afladagbækur smárra og stórra skipa eru nú orðnar raf- rænar frá því fyrr á árinu. Það er til mikilla bóta við eftirlit. Löggiltir vigtarmenn sannreyna aflasamsetningu eins og kostur er með beinni skoðun við löndun. Eft- irlitsmenn Fiskistofu skoða einnig aflasamsetningu við löndun og flutn- ing afla og bera saman við afla- dagbók og vigtarnótur frá hafnarvog. Skipstjóri ber ábyrgð á því að afli sé rétt veginn á hafnarvog og ef upp koma alvarleg frávik er gerð brota- skýrsla á viðkomandi veiðiskip sem getur leitt til leiðbeiningar, form- legrar áminningar eða sviptingar veiðileyfis. Kaupendur afla skila vigt- ar- og ráðstöfunarskýrslum rafrænt til Fiskistofu og eru vinnslutölur bornar saman við tegundir og magn á vigtarnótum. Drónar við eftirlitsstörf Fiskistofa hefur undanfarin ár byggt eftirlit á áhættugreiningu og er nú að innleiða staðal þar um, ISO 31000. Við brot á reglum hækkar við- komandi veiðiskip í áhættumati og lýtur þá meira eftirliti í framhaldi. Eftirlit má alltaf bæta og gera skil- virkara og einnig má benda á að í skýrslu ríkisendurskoðunar um eft- irlit Fiskistofu kemur fram að bæta megi regluverk og viðurlög við brot- um. Eftirlit Fiskistofu er í stöðugri þró- un. Meðal annars er unnið markvisst að bættum rekjanleika afla, þannig eiga upplýsingar úr afladagbókum að verða aðgengilegar vigtarmönnum strax við aflaskráningu löndunar á næstu mánuðum. Auknar heimildir Fiskistofu til að nota myndavélar við eftirlit með vigtun afla eru til skoð- unar. Þá má geta þess að Fiskistofa er nú að innleiða notkun á drónum við eftirlitsstörf,“ segir m.a. í svari Fiskistofu. Endurvigtun skoðuð Í svarinu segir að endurvigtun afla hjá vigtunarleyfishöfum hafi sér- staklega verið skoðuð og metið hvort breytileiki sé þegar eftirlit er viðhaft og þegar eftirlit er ekki viðhaft. Bent er á skýrslu um mat á áreiðanleika endurvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum sem unnið var fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti í upphafi árs. Þá má nefna að Fiskistofa birtir reglulega upplýsingar um hlutfall kælimiðils í afla eftir því hvort skrán- ing fer fram að viðstöddum eftirlits- manni eða ekki og hefur það haft marktæk áhrif til réttari skráningar á íshlutfalli í afla, segir í svari Fiski- stofu.  Talsverður munur við löndun afla á Íslandi og í Noregi  Allar afladagbækur orðnar rafrænar Póst- og fjarskiptastofnun til- kynnti með ákvörðun í gær að Pósturinn skyldi vera alþjón- ustuveitandi á sviði póstþjón- ustu um land allt næsta áratug- inn, eða til 31. desember 2030. Er ákvörðunin tekin í kjölfar þess að Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra ákvað að bjóða þjónustuna ekki út. Fyrir- tækið hefur sinnt þessu hlut- verki frá síðustu áramótum en þá féll einkaréttur fyrirtækisins á tiltekinni póstþjónustu úr gildi. Sú þjónusta sem telst til al- þjónustu skal fara fram að minnsta kosti tvisvar í viku um land allt og nær til bréf- og pakkasendinga ýmiss konar, ábyrgðarsendinga, tryggðra sendinga og blindrasendinga. Pósturinn útnefndur ALÞJÓNUSTUVEITANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.