Morgunblaðið - 15.12.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Hljóðmagnarar
Hljóðmagnari hentar vel þeim sem
þurfa að heyra betur og er einfaldur í
notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með
margmiðlunarstreymi tengist hann
þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki.
Vekjaraklukka
fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa
Að vakna á réttum tíma hefur aldrei
verið auðveldara
Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi
svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig.
Verð frá
kr. 19.800
Verð frá
kr. 58.800
Vegagerðin vinnur að undirbúningi
tveggja þrepa hönnunarsamkeppni
(framkvæmdasamkeppni) brúar yfir
Fossvog. Þetta kemur fram í til-
kynningu á utbodsvefur.is.
Bygging brúarinnar er samstarfs-
verkefni Kópavogsbæjar, Reykja-
víkurborgar og Vegagerðarinnar.
Efnt var til útboðs seinni hluta árs
2019 og í janúar á þessu ári var til-
kynnt um val þátttakenda í forvali
samkeppninnar, sex talsins. Í júlí sl.
felldi kærunefnd útboðsmála valið
úr gildi og taldi að skilmálar hins
kærða forvals hafi ekki samrýmst
meginreglum laga um opinber inn-
kaup. Því þurfti að hefja útboðsferlið
upp á nýtt með tilheyrandi töfum.
Samkeppnin nú verður í tveimur
þrepum og verður nafnleyndar gætt
á báðum þrepum. Fyrra þrep sam-
keppninnar verður öllum opið sem
standast þær kröfur sem gerðar
verða um þátttöku en seinna þrep
verður lokað öðrum en höfundum
valdra tillagna.
Samkvæmt drögum að tímalínu
fyrir keppnina er ætlað að hún verði
auglýst í ársbyrjun 2021 og tilboð
opnuð 28. febrúar. sisi@mbl.is
Fossvogsbrúin Hin nýja brú yfir Fossvog verður um 270 metra löng.
Fossvogsbrú boðin
út að nýju fljótlega
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt að fast-
eignafélagið Reginn hf. fái lóðarvil-
yrði vegna Lágmúla 2. Um er að
ræða hornlóð sem staðsett er við
gatnamót Suðurlandsbrautar og
Kringlumýrarbrautar.
Fram kemur í bókun meirihluta
borgarráðs að vilyrðið sé veitt í kjöl-
far umfangsmikillar alþjóðlegrar
samkeppni undir merkjum stærstu
borgarsamtaka veraldar, C40. Verk-
efnið heitir Reinventing Cities og
gengur út á að búa til nýtt viðmið í
umhverfisvænum byggingum.
Á fundi borgarráðs hinn 9. nóv-
ember 2017 var samþykkt tillaga
borgarstjóra þess efnis að Reykja-
víkurborg tæki þátt í verkefninu Re-
Inventing Cities á vegum C40. Mark-
miðið með verkefninu er að kalla
fram lausnir og leita uppbyggingar á
umhverfisvænum byggingum/
verkefnum sem sýna bestu lausnir á
sviði sjálfbærni, umhverfisgæða og
minna kolefnisfótspors, ásamt því að
styðja við góða borgarþróun. Lóðin
Lágmúli 2 var ein þriggja lóða sem
Reykjavíkurborg lagði fram í fyrsta
áfanga verkefnisins. Hinar tvær lóð-
irnar voru á Ártúnshöfða og við
Frakkastíg/Skúlagötu.
Jarðhiti sérstaða lóðarinnar
Á fundi borgarráðs 20. júní 2019
var greinargerð dómnefndar vegna
lóðarinnar við Lágmúla kynnt. Að
mati dómnefndar var tillaga Fabric
hlutskörpust. Samkvæmt tillögunni
á að nota lágkolefnabyggingarefni,
þ.m.t. timbur, til þess að draga úr
kolefnisspori og stuðla að hringrás-
arhagkerfi þannig að úrgangur verði
minni en annars. Ein helsta sérstaða
lóðarinnar er jarðhitinn undir henni
og verður hann nýttur í verkefninu.
Á sama fundi borgarráðs var veitt
heimild til að bjóða verðlaunuðum til-
lögum til viðræðna um lóðarvilyrði á
viðkomandi reitum. Lóðarvilyrðið er
háð því skilyrði að bygging húsnæðis
á lóðinni Lágmúla 2 verði unnin í
samræmi við þá tillögu sem teymið
Fabric sendi inn í samkeppnina Re-
Inventing Cities og grundvallarnið-
urstöðu dómnefndar sem gerð var
opinber 22. maí 2019. Fabric-teymið
er samþykkt því að lóðarvilyrðið
verði veitt félaginu Regin hf., sem er
einn aðili teymisins. Komi til úthlut-
unar greiðist gatnagerðargjald í
samræmi við samþykkt um gatna-
gerðargjald í Reykjavík. Standist
byggingar á lóðinni markmið um um-
hverfisgæði skal greiða 45.000 krón-
ur fyrir heimilaða íbúðafermetra of-
anjarðar og 20.000 kr. fyrir heimilaða
atvinnufermetra ofanjarðar.
Í fylgiskjali með lóðarvilyrðinu er
því lýst hvernig ætlað er að mæta
þeim kröfum sem gera skal til vist-
vænnar byggingar. Kennir þar
margra grasa.
Hér er dæmi: Skoðaður verður
möguleikinn á að nota sólarsellur
eða lághita-orkuver (Climeon unit)
sem tengt er við jarðhita á lóðinni til
þess að framleiða rafmagn. Hönnun
á búnaði og notkun verður að vera
unnin í fullu samstarfi við veitu-
stofnunina sem á og rekur heita-
vatnsborholuna á lóðinni. Mögulega
mætti framleiða allt að 750 kW með
samstæðu úr „5 Climeon-einingum“
og setja umframrafmagn inn á
dreifikerfi rafmagns.
Annað dæmi: Notendum bygg-
ingarinnar verður gert kleift að
stunda ræktun á grænmeti innan-
húss. Græn þök og gróðurhús nýt-
ast við ræktun á kryddjurtum.
Þema almenningsgarðs í gróðurhúsi
verður tengt heilsu með því að að
rækta þar algengar lækningajurtir
og plöntur sem hreinsa andrúms-
loft.
Reisa umhverfisvænt hús
Fasteignafélagið Reginn fær lóðarvilyrði vegna Lágmúla 2 Þar á að reisa umhverfisvænt stór-
hýsi í anda C40, stærstu borgarsamtaka veraldar Sólarsellur tengdar jarðhita framleiði rafmagn
Tölvumynd/Basalt
Nýja húsið Notast verður við lágkolefnabyggingarefni. Til hægri má sjá Kringlumýrarbraut og vinstra megin er Suðurlandsbraut og fyrirhuguð borgarlína.
Lóðin Hér má sjá lóðina sem Reginn hefur fengið vilyrði fyrir hjá borgar-
ráði, á mótum Sauðurlandsbrautar, Kringlumýrarbrautar og Lágmúla.