Morgunblaðið - 15.12.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020
15. desember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.65
Sterlingspund 167.8
Kanadadalur 99.96
Dönsk króna 20.798
Norsk króna 14.472
Sænsk króna 15.093
Svissn. franki 143.53
Japanskt jen 1.2259
SDR 183.07
Evra 154.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.5615
Hrávöruverð
Gull 1833.65 ($/únsa)
Ál 2022.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.45 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Orka náttúrunnar (ON) áformar að
hafa 44 hraðhleðslustöðvar í notkun
fyrir lok ársins. Á næsta ári er svo
áformað að bæta við 13 stöðvum á
átta stöðum og verða þær þá orðnar
alls 57. Dreifing stöðvanna milli
landshluta er sýnd á grafinu hér til
hliðar. ON setti
upp fyrstu stöð-
ina við höfuð-
stöðvar sínar á
Bæjarhálsi árið
2014. Sama ár
bættust við átta
stöðvar; fimm á
höfuðborgar-
svæðinu og stöðv-
ar í Borgarnesi, á
Fitjum og á Sel-
fossi. Meðal annars var sett upp stöð
hjá BL á Sævarhöfða en félagið hafði
gert samning ásamt bílaframleið-
andanum Nissan við DBT sem fram-
leiddi hraðhleðslustöðvar.
Fleiri tengi nú virk samtímis
Tæknin hefur síðan þróast og eru
nú komnar fullkomnari stöðvar.
Samhliða því fjölgar tengjum sem
eru virk samtímis, í stað þess að að-
eins einn bíll geti verið í hleðslu
bjóða nýju stöðvarnar allt að 150 kW
hleðslu og geta þjónað tveimur bíl-
um í einu sem deila þá aflinu að há-
marki 75 kW á hvort tengi, en það
fer eftir hleðslugetu bílsins. Eldri
stöðvar geta eingöngu hlaðið að há-
marki 50 kW og aðeins einn bíl í
einu. „Þessar nýju stöðvar eru í raun
algjör bylting fyrir rafbílaeigendur
því að nú tekur enga stund að hlaða,“
segir Hafrún Þorvaldsdóttir, verk-
efnastjóri hleðslunets ON, en að
hennar sögn munu nýju hraðhleðslu-
stöðvarnar frá ON bjóða upp á tvö
CSS-tengi og eitt Chademo-tengi.
Árið 2015 var öllu rólegra í þessu
tilliti en þá bættist aðeins við ein stöð
sem var á Akranesi. Árið 2016 komu
svo þrjár stöðvar til viðbótar, tvær á
Akureyri og ein á Hellisheiði. Árið
2017 bættust við 12 stöðvar og svo 16
stöðvar árið 2018. Fjórar stöðvar
bættust við í fyrra og á þessu ári er
svo áformað að bæta við sex stöðv-
um. Fimm þeirra eru þegar tilbúnar
en sú síðasta var vígð í Varmahlíð
síðastliðinn föstudag. Tekið skal
fram að fleiri en ein stöð geta verið á
sama stað. T.d. er áformað að setja
upp tvær nýjar stöðvar í Mývatns-
sveit á næsta ári og sömuleiðis tvær
á Egilsstöðum, á Selfossi, á Kirkju-
bæjarklaustri og á Reykjanesi, alls
tíu stöðvar á fimm stöðum. Síðan
verða settar upp stöðvar á Höfn,
Hvolsvelli og Skjöldólfsstöðum.
Hafrún segir markmiðið með upp-
byggingunni að stuðla að orkuskipt-
um í samgöngum. Fyrirtækið horfi
því ekki eingöngu til hagnaðarsjón-
armiða heldur líka til hins sam-
félagslega ávinnings sem hlýst af
rafvæðingu bílaflotans. Þessar
áherslur birtist í uppbyggingu hrað-
hleðslustöðvanna. Net þeirra sé
þannig haft þétt til að rafbílar með
takmarkaða drægni geti komist sem
víðast um landið, á meðan innviðirnir
eru að byggjast upp.
„Til að byrja með rennir maður
dálítið blint í sjóinn varðandi stað-
arval. Þegar byrjað er að byggja upp
net hraðhleðslustöðva er best að
byrja þar sem mestar líkur eru á að
sem flestir muni nota rafbíla. Við
byrjuðum því á höfuðborgarsvæðinu
og á þetta enn við þar,“ segir Haf-
rún. Almennt hafi staðarvalið reynst
vel en á stöku stað hafi þurft að end-
urhugsa staðarvalið. Meðal annars
standi til að færa stöðina við Frí-
kirkjuveg við Tjörnina í Reykjavík.
Sú stöð sé barn síns tíma enda sé að-
koman ekki nógu góð.
Að sögn Hafrúnar hefur Orku-
sjóður styrkt uppbygginguna frá
árinu 2016. Styrkirnir hafi komið til
framkvæmda fyrir árslok 2017 og
nemi helmingi heildarkostnaðar við
einstaka staðsetningar. Hún segir
skipulagsmálin gjarnan tímafrek.
Hraðhleðslustöðvar ON eru nú
komnar hringinn í kringum landið,
eins og grafið ber með sér.
Almennt við þjóðveginn
Hafrún segir unnið að því að
skipta út minni stöðvum fyrir öfl-
ugri, eða að eflingu þeirra, í netinu.
Utan höfuðborgarsvæðisins er
hleðslunetið almennt við þjóðveginn.
Enn fremur er væntanleg uppfærsla
á 13 stöðvum, sem verða 22 kílówött,
við hótel. Að sögn Hafrúnar hefur
hreinum rafbílum á Íslandi fjölgað
úr 3.737 í desember 2019 í 6.195 í
desember í ár eða um 66%. Á sama
tímabili hafi tengiltvinnbílum fjölgað
úr 7.712 í 10.001 eða um 30%.
„Við rufum því 16 þúsund bíla
múrinn, hvað varðar samanlagðan
fjölda tengjanlegra bíla, 1. desem-
ber. Þessi viðbót við rafbílana er
auðvitað afar ánægjuleg fyrir okkur
öll sem þjóð og eykur nýtingu endur-
nýjanlegrar innlendrar orku með
hverjum bílnum sem bætist við og
eykur að sjálfsögðu einnig kröfurnar
á ON sem þjónustuaðila
hraðhleðslunetsins hringinn í kring-
um landið.“
Orka náttúrunnar stefnir á
44 hraðhleðslustöðvar í árslok
Höfuðborgar-
svæðið
Reykjavík:
Bæjarháls (x2)
Fríkirkjuvegur
Miklabraut (x2)
Sævarhöfði
Suðurfell
Vesturlandsvegur
Kópavogur:
Smáralind
Garðabær:
Garðatorg
Kauptún
Austurland
Djúpivogur
Egilsstaðir
Skjöldólfsstaðir
Stöðvarfjörður
Norðurland
Blönduós
Akureyri (x2)
Húsavík
Mývatn
Sauðárkrókur
Varmahlíð
Vestfirðir
Ísafjörður
Vesturland
Akranes
Búðardalur
Ólafsvík
Staðarskáli
Vegamót
Reykjanes
Fitjar,
Njarðvík
Suðurland
Flúðir
Freysnes
Geysir
Grímsnes
Hellisheiði
Hveragerði
Hvolsvöllur
Jökulsárlón
Klaustur
Nesjahverfi
Selfoss (x2)
Vík
Þorlákshöfn
Hleðslustöðvanet ON á Íslandi
Staðsetning
hraðhleðslustöðva
eftir landshlutum
Væntanlegar
hleðslustöðvar
2020:
Víðigerði,
V-Hún.
2021:
Mývatns-
sveit (x2)
Egilsstaðir
(x2)
Höfn
Hvolsvöllur
Kirkju-
bæjar klaustur
(x2)
Selfoss (x2)
Skjöldólfs-
staðir
Reykjanes
(x2)
ON áformar svo 11 nýjar stöðvar á næsta ári Uppbyggingin hefur verið misjafnlega hröð milli ára
Hafrún
Þorvaldsdóttir
STUTT
● Hjálmar Sigur-
þórsson, sem er
framkvæmdastjóri
vátryggingaþjón-
ustu TM, seldi í
gær 192.559 hluti í
félaginu á genginu
47,4 kr. Nam heild-
arfjárhæð við-
skiptanna því
9.185.064 kr. Eftir
viðskiptin á Hjálm-
ar 180.000 hlut í TM. Nýverið var til-
kynnt um samruna TM, Lykils og Kviku
banka og bíður hann samþykkis yfir-
valda.
Seldi ríflega helming
bréfa sinna í TM
Hjálmar
Sigurþórsson
● Hlutabréf Iceland Seafood Inter-
national hækkuðu um ríflega 11,72% í
Kauphöll íslands í gær og nam velta
með bréfin 771,8 milljónum króna. Stóð
velta með bréf félagsins undir 28%
þeirra veltu sem átti sér stað á aðal-
markaði Kauphallarinnar í gær. Hafa
bréf félagsins aldrei verið hærra skráð á
markaði og nemur markaðsvirði félags-
ins 31,6 milljörðum króna.
Hækkun bréfanna kemur í kjölfar til-
kynningar fyrirtækisins á föstudag þar
sem fram kom að gert væri ráð fyrir að
hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta
myndi nema á bilinu 3,8 til 5 milljónum
evra á árinu, það jafngildir 591-777
milljónum króna. Þegar fyrirtækið til-
kynnti um uppgjör þriðja ársfjórðungs
féll það frá fyrri
áætlunum um
ársniðurstöðu sína
en fram að því
hafði félagið gert
ráð fyrir að hagn-
aður fyrir skatta
myndi nema 6 til 8
milljónum evra,
jafngildi 933 til
1.244 milljóna
króna. Mikið hefur verið um að vera á
vettvangi félagsins undanfarna mánuði
og ræddi Bjarni Ármannsson, forstjóri
þess við 200 mílur í liðinni viku og
sagði m.a. frá því hvernig vinnslur þess
hefðu verið sameinaðar á Bretlandseyj-
um.
Bréf Iceland Seafood ruku upp í Kauphöll
Bjarni Ármannsson