Morgunblaðið - 15.12.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 15.12.2020, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bílar Mitsubishi Outlander Hybrid hækkar um áramót vegna lagabreytinga. Nældu þér í nýan 2020 bíl á betra verði 5.690.000,- Til sýnis á staðnum í nokkrum litum með og án króks. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Tek að mér ýmis smærri verkefni fyrir jólin. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Tilkynningar Breyting á Deiliskipulagi Stofnanareits Kirkjubraut 39 Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 1. desember 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Stofnanareits vegna Kirkjubrautar 39. Tillagan var auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn bæjarstjórnar. Hægt er að kæra samþykkt bæjar- stjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Félagsstarf eldri borgara Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 15. desember hittumst við á Face- booksíðu "Eldriborgarastarf Grafarvogskirkju" kl. 13:00. Ýtt er á takk- ann Samvera. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Seltjarnarnes Engin skipulögð vatnsleikfimi er í gangi eins og er vegna covid, en skorum á alla að nýta sér sundstaðina. Hvetjum fólk einnig stunda aðra hreyfingu eins og td. morgunleikfimi Rásar 1 í útvarpinu og heimaleikfimi í Ríkissjónvarpinu á morgnana eða út að ganga. Engin skipulögð dagskrá er á vegum félagsstarfsins í dag. Kaffikrókurinn og aðstaðan er eingöngu opin fyrir íbúa Skólabrautar. Grímuskylda. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Í dag kveð ég tengdamóður mína, Guðrúnu Halldórs- dóttur. Guðrún lést á heimili sínu 29. nóvember síð- astliðinn. Lífið fór ekki alltaf ljúf- um höndum um Guðrúnu, en hún varð fyrir miklum áföllum í lífinu, Guðrún Halldórsdóttir ✝ Guðrún Hall-dórsdóttir fæddist 21. október 1928. Hún lést 29. nóvember 2020. Útför Guðrúnar fór fram 10. desem- ber 2020. hún fékk berkla ung, hún missti mann sinn, son og tengdason. Guðrún glímdi við fötlun allt sitt líf sem var af- leiðing berklanna sem hún fékk ung. En Guðrún var al- gjört hörkutól og ótrúlega dugleg. Guðrúnu kynntist ég árið 1997 þegar ég kynntist syni hennar, Tedda. Hún tók mér mjög vel frá fyrstu kynnum enda var ég flutt inn til hennar eftir um það bil mánuð og var þar í 6 ár eða þangað til við Teddi fluttum að heiman. Við spjölluðum mikið saman og sagði hún mér margar sögur frá því að hún var lítil stúlka á Blönduósi, frá árunum sem hún og Steinþór maður hennar bjuggu á Skaga- strönd, frá systkinum sínum og börnum og barnabörnum sem hún var ákaflega stolt af. Guðrún var mikil listakona og eftir hana liggja ófá falleg verk, og minnist ég hennar prjónandi, heklandi eða að sauma út. Guðrún hafði líka gaman af að elda og var hún afskaplega ánægð þegar margir voru í mat og eldhúsborðið fullt af kræsingum. Guðrún var líka mikill snillingur þegar kom að gjöfum og hefur hún gefið mér ansi margar gjafir, hvort sem þær voru eftir hana sjálfa eða annað sem ég held mikið upp á. Þegar ég hugsa til baka þá fattar maður það hvað Guðrún dekraði við okkur Tedda þegar við bjugg- um hjá henni, hún þvoði og straujaði allan þvott af okkur og eldaði fyrir okkur, en ég vona að við höfum gefið eitthvað til baka. Það var alltaf gott að koma til Guðrúnar hvort sem það var upp í Háberg, Hraunbæ eða upp á Eir og ég er henni ævinlega þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir mig. Hún virtist hafa óbilandi trú á mér sem ég átti örugglega ekki alltaf innistæðu fyrir en svo oft sagði hún við mig, já auðvitað getur þú þetta, það er ekki að spyrja að því, elsku Guðbjörg mín. En nú er komið að kveðju- stund og vil ég þakka þér fyrir allt, elsku Guðrún. Börn hennar hugsuðu vel um mömmu sína og vil ég votta þeim samúð mína. Hvíl í friði, ég elska þig. Guðbjörg. Á leið okkar um lífið eignumst við marga og ólíka sam- ferðamenn. Sumum verðum við samferða um stund, uns þeir halda sína leið og hverfa sjónum. Aðrir fylgja okkur æv- ina á enda, gegnum súrt og sætt, vinir í gleði og þraut. Í dag kveð ég einn af þeim samferðamönnum mínum sem ég átti samleið með í nær 70 ár. María Olgeirsdóttir ✝ María Olgeirs-dóttir fæddist 30. september 1947. Hún lést 4. desember 2020. Útför Maríu fór fram 10. desember 2020. Lokið er ferðalagi sem nærðist frá fyrstu tíð af ósviknu vinarþeli og gagn- kvæmum trúnaði. María Olgeirs- dóttir var frænka mín og má segja að við höfum verið alin upp að miklu leyti saman, ef hægt er að segja það um tvö einbirni, slíkur var samgangur milli fjölskyldna okk- ar. Matarboð, leikhúsferðir, sum- arfrí, sumarbústaðaferðir og sameiginlegt jólahald, allt var þetta hluti af því fjölskyldulífi sem við Mæja ólumst upp við. Eins og tíðkaðist á þeim tíma, er við ólumst upp á, vorum við nokkuð frjáls ferða okkar og þótti ekki tiltökumál að senda okkur með strætó niður í miðbæ til að fara í sendiferðir eða sækja þær skemmtanir sem börn sóttu á þeim tíma. Ég minnist sunnu- dagsmorgna í KFUM og K þar sem sungið var á útopnu, þó textaskilningur hafi kannski ekki verið mikill, enda var það ekki tilgangur ferðarinnar, heldur að bæta í safn Jesúmynda eða næla sér í myndir fyrir skiptimarkað- inn. Sunnudags þrjú-bíóin voru vinsæl á þessum árum og voru ófáar ferðir okkar frændsystkin- anna á slíkar skemmtanir. Ein- hvern veginn finnst mér í minn- ingunni að kvikmyndavalið hafi fremur verið kvenlægt, því ekki minnist ég Roy Rogers eða Tarz- ans í þessum bíóferðum okkar. Milli okkar Mæju hefur alltaf ríkt vinátta og trúnaðartraust þó sum ár hafi lönd og höf skilið okkur að, en alltaf gátum við tek- ið upp vináttuþráðinn þar sem honum sleppti síðast er við hitt- umst. Mæja hafði ljúft og nota- legt viðmót, sem gerði það að verkum að manni leið vel í návist hennar. Við sem kynntumst henni er- um þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hana. Minningin um góða konu mun lifa í hjörtum okkar. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Kæra frænka – það er ekki langt þetta korter sem við köll- um líf, stundum breytist það í fimm mínútur. Jón Sævar Baldvinsson. Kveðja frá SÍBS og Hjartaheillum Stofnfundur Landssamtaka hjartasjúklinga var haldinn í Domus Medica 8. október 1983. Mættu til fundarins 230 stofn- félagar og var það umfram björtustu vonir. Á meðan stofn- enda var Jón Þór Jóhannsson sem nú er fallinn frá. Lands- samtök hjartasjúklinga fengu Jón Þór Jóhannsson ✝ Jón Þór Jó-hannsson fæddist 11. ágúst 1930. Hann lést 2. nóvember 2020. Útför Jóns Þórs fór fram 27. nóv- ember 2020. síðar heitið Hjarta- heill. Jón Þór var um tíma formaður Félags hjartasjúkl- inga á Reykjavík- ursvæðinu og vann fyrir SÍBS og landssamtök hjartasjúklinga sem starfsmaður stjórna samtak- anna og sat í stjórnum samtak- anna, þar á meðal Reykjalund- ar. Það var mikill elja og dugn- aður í stofnfélögum þegar sam- tökin hófu starfsemi sína fyrir 37 árum og í dag eru fé- lagsmenn Hjartaheilla á fimmta þúsund einstaklingar. Hjartaheill hafa treyst á sjálfboðaliða í sínum röðum frá stofnun samtakanna. Fólk fer í sjálfboðaliðastörf af ýmsum ástæðum. Mörgum finnst starf- ið áhugavert og gefandi, aðrir vilja láta gott leiða af sér. Sjálf- boðaliðastarf getur nefnilega verið lærdómsríkt og þrosk- andi. Sá félagsauður sem er á vett- vangi félagasamtakanna hjálpar til þegar unnið er að sameig- inlegum verkefnum. Þessi mik- ilvægi auður verður til vegna hinna margvíslegu jákvæðu áhrifa sem þau geta haft á vel- sæld og hagsæld einstaklinga og samfélaga. Jón Þór var mik- ill félagsmaður og gerði sér grein fyrir þessum áhrifum sem félagasamtök líkt og Hjartaheill standa fyrir. Við vorum afar heppin að fá Jón Þór í raðir okkar. Hann var virkur þátttak- andi sem tók þátt í því að móta umhverfi sitt og samfélag með störfum sínum í Hjartaheillum. Þakklæti okkar felst í því að kunna að bera kennsl á það sem virðist sjálfsagt og læra að meta það mikils. Lífið kemur ekki upp í stafrófsröð og við fáum ekki ráðið þeim bókstaf sem okkur er úthlutað í lífinu. Sorgin er óaðskiljanlegur hluti af lífinu og hjá því verður ekki komist í þessu lífi að tak- ast á við sorgina. Við verðum að læra að lifa með henni. Fyrir hönd samtaka okkar vil ég nota tækifærið og þakka Jóni Þór fyrir framlag hans og þátttöku í starfinu. Félagar í Hjartaheillum, SÍBS og aðildarfélögum kveðja góðan félaga með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Sorgin er mikil og sendum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðju. Mannsandinn líður ekki und- ir lok, minning um góða mann- eskju lifir í hjarta og minni, líkt og sólin sem virðist ganga undir en alltaf heldur áfram að lýsa. Sveinn Guðmundsson, formaður. Í dag kvaddi ég góðan vin, hann Gunna Sveins, sem mér þótti undurvænt um, hann var einstakt góðmenni og sér- stakur leiðtogi í hvaða hóp sem var. Hann var límið í hestaferð- unum okkar sem ég fékk að Gunnar Árni Sveinsson ✝ Gunnar ÁrniSveinsson fæddist 15. desem- ber 1939. Hann lést 3. nóvember 2020. Útförin fór fram 21. nóv- ember 2020. njóta strax sumarið eftir að ég flutti til Skagastrandar. Hann var sá sem skipulagði ferðirnar, sá oft um trússið, sá um að henda upp án- ingarhólfum og tryggja að rafmagnið væri nú örugglega á girðingunni, hann stólaði upp, já það var nú lúxus í þess- um ferðum okkar, verandi með „græna skrímslið“ sem rúmaði nóg af fiskikörum undir allt dótið okkar og svo sumarstóla og borð sem fjölskyldan var hætt að nota og nýttist okkur í ferðunum. Síð- an hjálpaði hann til við að ná hestunum okkar og hélt jafnvel í fyrir þá sem á því þurftu að halda, hann var alltaf boðinn og búinn og aldrei of stór upp á sig til þess að gera hvaða verk sem var. Já, hann var alveg yndisleg- ur. Á kvöldin var svo oft gripið í spil, sungið, sagðar sögur eða skroppið til næsta bónda í heim- sókn, alltaf var hann tilbúinn að taka þátt. Hann fór oftast síðast að sofa en fyrstur upp á morgn- ana og eldaði hafragraut handa þeim sem það vildu, það var ekki að ástæðulausu sem hópurinn fékk nafnið „Gunnars Group“. Gunni var ekki bara einstak- lega góður ferðafélagi, hann var líka bara svo traustur og trúr sínum. Einu sinni bað ég hann um að halda í stóran fola sem ég var að fara á bak í fyrsta skiptið og las svona líka vitlaust í. Hann hélt að það væri nú ekki vanda- málið. Folinn hinsvegar trylltist en Gunni ríghélt honum þar til hann róaðist. Þvílíkt afl sem maðurinn bjó yfir og yfirvegun- in, hann var ekki að panikera heldur talaði bara rólega við fol- ann og sagði að það þýddi nú ekkert fyrir hann að vera að láta svona. Það var nefnilega svo gaman hvað hann talaði fallega við hestana, þetta voru vinir hans og félagar ekki síður en mennirnir. Gunni hafði einstakt lag á því að lesa í aðstæður og fagnaði með okkur okkar stóru stundum í lífinu. Hann er mín fyrirmynd í mörgu. Já, það eru margar minningarnar sem ég get yljað mér við og mun ylja mér við um ókomna tíð. Elsku Bára og fjöl- skylda, ykkur votta ég mína inni- legustu samúð. Erla Kambakoti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.