Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.12.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2020 30 ára Stefán ólst upp í Gnúpverjahreppi og býr núna í Þorlákshöfn. Stefán er vélvirki hjá Veitum. Helsta áhuga- mál hans er skotveiði þessa dagana. Síðan er hann mikill bíla- áhugamaður. Maki: Katrín Gyða Guðjónsdóttir, 1994, snyrtifræðingur og er að læra fótaað- gerðafræði. Börn: Daníel Freyr Hansen Stefánsson, f. 2015, og Emelía Rós Hansen Stef- ánsdóttir, f. 2017. Foreldrar: Daði Viðar Loftsson, f. 1965, rafiðnvélvirki og Bente Hansen, f. 1967, íþróttakennari. Þau búa í Gnúpverja- hreppi. Stefán Hansen Daðason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma gjörðir þess. 20. apríl - 20. maí  Naut Þig langar til að finna einhvern sem þú getur deilt hugmyndum þínum með. Gættu þess bara að leita ekki langt yfir skammt því svörin finnurðu innra með þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Að vera góður hlustandi þarfnast bæði þroska og aga, og þú hefur nóg af hvoru tveggja. Kannaðu hvaða leiðir standa þér opnar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Persóna þín er staðföst og er áköf í því að sannfæra aðra um ágæti hugmynda þinna. Gerðu það með bros á vör. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu það vera að flýta þér um of því það býður hættunni heim og þú skilar verri vinnu fyrir vikið. Notaðu tækifærið til að ganga frá lausum endum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú vinnur líklega í þágu barna í dag eða sinnir krefjandi sköpunarferli. Vertu hvergi smeykur við nýjungar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér vinnst allt auðveldlega svo þú átt ekki að eiga í neinum erfiðleikum með að fá þitt fram. Hið sama gildir um verkefni tengd listum, skemmtanaiðnaði og sviðs- listum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Settu það í forgang að hlúa að þínum nánustu því þá ertu um leið að hlúa að sjálfum þér. Gerðu það sem til þarf til að hressa þig við andlega sem líkamlega. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er sjálfsagt að leita ráða hjá öðrum þegar maður sjálfur er á báðum áttum. Til að geta séð aðstæður með aug- um hins aðilans verður þú að geta gleymt sjálfum þér um stund. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt ná árangri í því sem þú ert að gera og dagurinn í dag ætti að skila þér góðum árangri. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gleymdu vonlausum málefnum heimsins og gerðu eitthvað sem þú getur klárað í dag. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt eiga rólegan dag og gætir fengið óvænta heimsókn sem gleður þig. Haltu áfram leiðinni, og einbeittu þér að einu skrefi í einu og að fylgja augljósum merkjum. helstu æfingarnar. Svo eru það af- mæli, árshátíðir og brúðkaup. Núna erum við að semja lög og hittumst því reglulega. Ætlum að gefa út jóla- plötu 2021. Við höfum allar gaman af að semja. Stundum semjum við sam- an, eins og t.d. „Kúst og fæjó“, en yfirleitt mætir hver með sitt lag og kennir hinum. Heimilistónastarfið er mjög gefandi og skemmtilega kaótískt. Við höfum kynnst vel og skapað góðar hefðir sem makar og börn taka þátt í.“ Katla Margrét hefur verið mjög framarlega í leiklistarsenunni núna unni og Kristínu Steinsdætur sló hún til og hún hefur verið að leika síðan. Eftir að Jón Ragnar kom heim ári síðar fór Katla Margrét að vinna við stóru leikhúsin, Borg- arleikhúsið og Þjóðleikhúsið, næstu árin. Katla Margrét er í leikkonu- hljómsveitinni Heimilistónum ásamt Vigdísi Gunnarsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Elvu Ósk Ólafsdóttur en bandið hefur starfað í yfir tuttugu ár. „Það er allur gangur á starfi bandsins. Við höldum ball á hverju ári og í kringum það eru K atla Margrét Þorgeirs- dóttir fæddist 15. des- ember 1970 í Reykja- vík og ólst upp í Hlíðunum til 11 ára aldurs, en þá flutti hún í Kópavog- inn. „Það var dásamlegt að alast upp í Hlíðunum með Öskjuhlíðina sem okkar stóra leiksvæði og svo heiti lækurinn í Nauthólsvík á sumrin.“ Katla Margrét gekk í Hlíðaskóla og síðar í Snælandsskóla í Kópavogi þar sem hún eignaðist líka góða vini. Á unglingsárunum hafði hún áhuga á leiklist og sótti námskeið með vinkonum sínum þar sem þau buðust, en var samt ekkert viss um framhaldið. „Ég vissi samt að ég vildi vinna við skapandi störf í fram- tíðinni.“ Árið 1993 fór hún í Leiklistarskóla Íslands. „Leiklistarnámið er ótrú- lega gefandi nám og síðan er þetta svo mikill lúxus að vera bara átta í bekk, fá einkatíma í söng, líkams- beitingu og raddþjálfun, vera með alla þessa góðu kennara og fá síðan tækifæri til að vinna strax við að að- stoða eldri nemendur í sýningum. Maður lærði svo hratt og mikið. Oft voru dagarnir langir og hópurinn verður mjög náinn, svolítið eins og lítil fjölskylda, og mér þykir alltaf mjög vænt um bekkjarsystkini mín.“ Katla Margrét útskrifaðist 1997, en tveimur árum áður hafði hún kynnst manninum sínum, Jóni Ragnari Jónssyni, og var ófrísk að þeirra fyrsta barni í lok fjórða árs. Eftir útskrift fór hún til Danmerkur þar sem Jón Ragnar var í námi. Það voru mikil viðbrigði að hafa verið í þessum miklu samskiptum í skól- anum og vera heimavinnandi með barn í ókunnugri borg. „Ég var í tæp tvö ár í Kaupmannahöfn. Það var fínt að fara aðeins burt og gott að hafa næði þegar foreldrahlutverkið tók við. Ég á mjög góðar minningar frá þessum tíma en saknaði þó óneit- anlega bekkjarsystkinanna. Hugsaði stundum til þeirra þegar ég þramm- aði með kerruna um götur Kaup- mannahafnar.“ Þegar Kötlu Margréti var boðið hlutverk hjá Leikfélagi Akureyrar í leikritinu Systur í syndinni eftir Ið- um margra ára skeið og ekki síður í gríninu og kvikmyndum. Hún var einn höfunda Stelpnanna sem nutu mikilla vinsælda og svo hefur hún verið áberandi í áramótaskaupum landans. Hún hlaut Edduverðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki í kvikmyndinni Agnes Joy, en myndin verður framlag Íslands til Ósk- arsverðlaunanna 2021. Núna er Katla Margrét á fullu að vinna að næsta áramótaskaupi, en hún segir skaupskrifin hafa verið það skemmtilegasta á þessu ári. „Zoomfundirnir okkar hafa verið miklar gleðistundir.“ Hún segir hóp- inn góðan, en með henni eru Þor- steinn Guðmundsson, Lóabóratorí- um, Hugleikur Dagsson, Vala Kristín Eiríksdóttir, Reynir Lyng- dal leikstjóri og Bragi Valdimar. Annað verkefni á árinu er sketsa- sýningin Veisla sem verður sýnd í Borgarleikhúsinu, en hugmyndina á Saga Garðarsdóttir. „Þetta er skemmtileg hugmynd og samstarfið hefur verið frábært. Við leikhóp- urinn byrjuðum á að ræða og kryfja veislur og sömdum svo í framhaldi sketsa um allt það sem getur farið úrskeiðis, allan veislukvíðann og krumpið sem fylgt getur skemmt- anahaldi.“ Leikhópinn skipa þau Katla Margrét, Saga Garðarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Sigrún Edda Björgvinsdóttir og Halldór Gylfason. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir og Berndsen sér um tón- listina. „Við höfum reynt að frum- sýna verkið þrisvar á þessu ári og fjórða tilraunin verður núna í Katla María Þorgeirsdóttir leikkona – 50 ára Katla Margrét Vissi alltaf að hún vildi fara í skapandi starf í framtíðinni. Skaupið og kómískar veislusögur Fjallkonan 2015 Hér eru Katla Margrét og Jón Ragnar og Bergur Hrafn. Fjölskyldan F.v.: Bergur Hrafn, Egill Árni, Jón Ragnar og Katla. 40 ára Snjólaug ólst upp á Lindarbrekku í Berufirði en býr á Eg- ilsstöðum í dag. Hún er menntaður kjóla- klæðskeri en aðalstarf hennar er í lögreglunni. Svo þjálfar hún og er umsjónarmaður fíkniefnaleitarhundsins Byls sem hún segir vera frábært starf. Maki: Ólafur Kristinn Kristínarson, f. 1987, kjötiðnaðarmeistari og sjómaður. Börn: Friðrika Vala Ólafsdóttir, f. 2014, og Matthildur Emma Svövudóttir, f. 2010, bú- sett í Svíþjóð. Foreldrar: Guðmundur Valur Gunn- arsson, f. 1957, og Ragnheiður Margrét Eiðsdóttir, f. 1957, bændur á Lindabrekku í Berufirði. Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Grindavík Salka Rán Guðmundsdóttir fæddist 12. september 2020 kl. 20.27. Hún vó 4.436 g og var 54 cm löng. For- eldrar hennar eru Guðmundur Sveinn Arnþórsson og Ágústa Sigurrós Andrésdóttir. Nýr borgari - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.