Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Áform um bólusetningar við kór- ónuveirunni eru hafin, en Óskar Reykdalsson, forstjóri heilsugæsl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði ekkert vera því til fyrirstöðu að bólusetja tugþúsundir manns á dag þegar bóluefnið væri til reiðu. Ýmsar fregnir hafa borist af helstu bóluefnum, mismunandi verkan þeirra og aukaverkunum. Margir hlakka til, en einnig ber nokkuð á efasemdum um bóluefnin, m.a. vegna þess hve skammur tími fór í þróun þeirra og prófanir. Vísbendingar eru um það hjá Vinnumálastofnun að atvinnuleysi sé ekki að aukast jafnhratt og á fyrri mánuðum. Þá eykur það bjart- sýni að fregnir eru teknar að berast af endurráðningum í nokkrum mæli. Góður skriður er kominn á jóla- verslun, þrátt fyrir ýmsar sótt- varnatakmarkanir. Verslunarmenn telja líkur á sölaukningu frá jólum í fyrra og gera ráð fyrir að salan verði jafnari fram að jólum en oft, það verði ekki sama sprengingin kortér fyrir jól eins og oft. Mikið er keypt í jólabaksturinn, talsverð aukning er í bóksölu og mikið að gera í raftækjaverslunum. Ekki liggur fyrir hvort brennur verða leyfðar um áramótin, það kann að velta mikið á túlkun yfir- valda á sóttvarnareglum. Guðný Árnadóttir landsliðkona í fótbolta skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við ítalska stór- liðið AC Milan.    Innbrotahrina hefur verið í mið- borginni undanfarnar vikur, en þar er sami maðurinn jafnan talinn hafa verið að verki. Hann hefur stolið skartgripum fyrir um þrjár millj- ónir króna í minnsta lagi. Miðað við myndir, sem náðst hafa af honum, á hann sinn uppáhaldsstein til þess að brjóta rúður með. Lögreglu hefur ekki tekist að koma honum í stein- inn hjá sér. Skipulagsfulltrúi í Reykjavík hefur fengið fyrirspurn um mögulega breytingu á starfsemi Hótel Sögu. Það er ekki í rekstri sem stendur vegna heimsfaraldursins, en uppi eru hugmyndir um að breyta því í íbúðir eða hjúkrunarheimili og gæti Mímisbar þá gengið í endurnýjun lífdaga. Landsbankahúsið á Selfossi var selt á dögunum og nú er litla systir þess við Pólgötu á Ísafirði komin á sölu líka. Bankinn hyggst flytja í smærra, nútímalegra og hagkvæm- ara húsnæði kippkorn frá. Þrátt fyrir að flug Icelandair liggi að miklu leyti niðri er það ekki svo að flugvélarnar rykfalli og ryðgi. Þær hafa fengið fullt viðhald og eru allar flughæfar. Flugvirkjar hafa því nóg að gera en ódýrasta og besta viðhaldið er þó að þvo þær reglulega. Fregnir af bóluefni hafa enda lyft brúninni á mörgum, eins og sjá má á hækkandi hlutabréfa- verði Icelandair. Enda þótt farþegaflugið sé ekki svipur hjá sjón er nóg að gera í flutningafluginu og aldrei jafnmikið af pakkasendingum að utan, sem að líkindum stendur í samhengi við jólin. Samgöngur innanlands hafa líka minnkað mikið, eins og sést á um- ferðarmælingum. Umferð um hringveginn á Norðurlandi var þannig 40% minni nú í nóvember en í sama mánuði í fyrra. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu er hins vegar að aukast hægt og bítandi og er nú 16% minni en í fyrra. Umferðin í miðbæ Reykjavíkur mun ekki minnka minna, en þar verður nokkrum götum breytt í vistgötur, þrengt að bílaumferð og 10 km hámarkshraði. Fjárfestahópur undir forystu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem gert hefur yfirtökutilboð í Skeljung, hyggst breyta rekstrinum mikið og selja eignir frá fyrirtækinu. Hins vegar eru ýmsir stórir hluthafar í félaginu, sem ekki ætla að taka til- boðinu, jafnvel þótt það geti orðið til þess að þeir verði áhrifalausir um stjórn þess.    Bólusetning hófst í Bretlandi og var níræð kona, Margaret Keenan frá Coventry, fyrst til þess að vera sprautuð í almennri bólusetningu þar í landi, sem talið er að geti stað- ið langt fram á næsta ár. Þar er fólk yfir áttræðu og heilbrigðis- starfsmenn í forgangi. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari í fótbolta kvenna lét af störfum eftir nokkurt uppnám vegna ógætilegra orða, sem hann lét falla í garð liðs- manna sinna í samkvæmi hjá Bakk- usi konungi eftir sigur á Ungverj- um á dögunum. Hlutdeildarlán eru afar eftirsótt á fasteignamarkaði, en hinum fyrstu var úthlutað í vikunni. Með þeim þarf mun minna eigið fé en vant er og henta þau sérstaklega tekjulág- um og fyrstu kaupendum. Nýjar íbúðir í Reykjavík, sem falla að lán- um þessum, eru sagðar seljast eins og heitar lummur. Enda heitar lummur óvíða til sölu. Uppistandarinn Ari Eldjárn getur ekki kvartað yfir viðtökunum á þætti hans á Netflix, sem frum- sýndur var í fyrri viku. Grein í nýjasta tölublaði Lækna- blaðsins vakti mikla athygli, en þar greindu tveir forsvarsmenn heil- brigðisstofnana í einkaeigu frá, að heilbrigðisráðuneytið hefði ekki virt þau viðlits, þegar þau buðu fram hjúkrunarúrræði, líkt og ráðherra hefði þó kallað eftir. Ein afleiðing þess tómlætis væri hópsmitið í Landakoti. Málið var tekið upp í þinginu en Svandís Svavarsdóttir ráðherra þagði þunnu hljóði.    Forsætisráðherra boðaði ný lofts- lagsmarkmið, en þau felast í örari samdrætti gróðurhúsalofttegunda en áður gert var ráð fyrir, breyttri landnotkun til að ná kolefna- hlutleysi fyrir 2040 og loftslags- tengdum þróunarverkefnum. Eignir íslensku lífeyrissjóðanna uxu um ríflega 10% á fyrstu tíu mánuðum ársins eða um 537 millj- arða króna. Þeir hafa jafnframt dregið sig úr samkeppni á húsnæðislánamarkaði. Mynd fjárlaga fyrir 2021 er óðum að skýrast, en gert er ráð fyrir að ríkisútgjöldin aukist um 55 millj- arða króna frá því sem miðað var við í fyrstu tillögum. Voru þær þó ekki smáar í sniðum. Aukning er að mestu leyti vegna ýmissa viðbragða við kórónuveirunni. Biskup sendi heilbrigðisráðherra bænaskjal þar sem þess var farið á leit að tilslakanir næðu einnig til kirkjustarfs, svo guðsþjónustur gætu átt sér stað um jólin. Lyfjaþróunarfyrirtækið Alvotech hefur verið duglegt í fasteigna- þróunarverkefnum og hefur nú sótt um leyfi til 13.286 m² viðbyggingar við hátæknisetur sitt við Sæmundargötu. Þinglokasamningar náðust með þingflokksformönnum á þingi, sem báru með sér að þingliðinu liggur á í jólafrí, en haft var orð á því í ræðustóli hvað samningarnir hefðu gengið smurt fyrir sig. Þar var áherslan lögð á dagsetningarmálin svokölluðu, mál sem verða að klár- ast fyrir tilteknar dagsetningar, þar á meðal margt tengt kórónuveiru og fjárlögum, auk frumvarps um farsæld barna. Ríki og Reykjavíkurborg ræða nú um stækkun Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en aukin ásókn í verk- nám kallar á hana.    Ísorka telur að rafbílavæðingin muni kalla á nýtt viðskiptalíkan, þar sem fyrirtæki ráðgeri í auknum mæli að koma upp hleðslustöðvum til þess að laða að viðskiptavini. Innviðauppbygging fyrir rafbíla muni eiga sér stað við dagvöru- markaði og ámóta fyrirtæki. Hið umdeilda „Græna plan“ Reykjavíkurborgar um skulda- bréfaútgáfu virðist vera talsvert þyngra en ráðgert var. Borgin fær verulega verri kjör en í síðasta út- boði í vor, en öll langtíma- fjármögnun er orðin mun dýrari hér á landi. Ragnar Árnason hagfræðiprófess- or segir aukna skuldasöfnun hins opinbera kalla á hærri skatta eða verulegan niðurskurð útgjalda. Hið eina sem komið geti í veg fyrir það sé mikill hagvöxtur innan tíðar, sem ekki sé sérstakt útlit fyrir. Hann telur að háskattastefnan hafi verið fest í sessi. Bólusetning og jólastemning Landhelgisgæslumenn skutu þremur púðurskotum Halldóri B. Nellet skipherra á Þór til heiðurs og í kveðjuskyni. Halldór Nellett skipherra LHG kemur úr síðasta túr á varðskipinu Þór. Morgunblaðið/Árni Sæberg 6.12.-11.12. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.