Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 18
Eydís er í hópi hönnuða og eig-enda hönnunarhússins Vor-húss á Akureyri. Eydís hannaði jólalínu þeirra í ár sem ber heitið Einiber. Hönnunar- línan vísar í gamlar íslenskar jólahefðir þar sem einir skip- aði stóran sess, en einir er eina innlenda sígræna barr- tréð sem vex villt á Íslandi. Hvað ertu að fást við þessa dagana? „Við hjá Vorhúsi erum að taka upp nýjar vörur viku- lega núna og þar á meðal nýju jólalínuna Einiber. Það er mikill handagangur í öskjunni í vinnunni þessa dagana og langur vinnudagur en þetta er jafnframt afar skemmti- legur tími og þar sem ég er svo heppin að eiga skemmtilega vinnu- félaga eru allir dagar skemmtilegir.“ Er mikið jólabarn „Ég er gífurlega mikið jólabarn. Jólin voru og eru enn mjög mikilvægur árstími hjá stórfjölskyldunni. Ég hugsa að móðurforeldrar mínir hafi átt mjög stóran þátt í því hve mikil jólabörn við öll erum en þar á bæ voru ríkar jólahefðir sem færst hafa á milli kynslóða. Foreldrar mínir hafa haldið fast í hefðirnar og móðursystir mín og hennar maður eiga og reka Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit þann- ig að í æsku voru jólin mjög hátíðleg. Allt var hreint og fínt, margar köku- sortir og jólaskrautið víða. Mér finnst dásamlegt að skreyta allt húsið. Þvottahúsið er líklega eina svæðið sem sleppur við skreytingar.“ Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin? „Ég baka piparkökur. Ég held að ég hafi aldrei upplifað jólaundirbún- ing án þess að baka piparkökur.“ Myndi aldrei panta sér ferð í sólina um jólin Eydís er ekki ein þeirra sem myndu fara á sólarströnd um jólin. sagt að vonbrigðin voru gífurleg hjá jólastelpunni. Í staðinn fyrir að hafa Bangsa bestaskinn í fanginu var þar beygluð ruslafata. Aðalgjöfin frá mömmu og pabba þessi jólin var reyndar mjög fallegt armbands- úr en þegar maður er átta ára kann maður illa að meta litlu pakkana.“ Mælir með að kaupa ís- lenska hönnun fyrir jólin Skiptir fallegt stell miklu máli um jólin? „Já, mér finnst það. Fallega dúkað borð um jólin er svo hátíðlegt. Ég fæ krakkana mína með mér að leggja fallega á borð. Við brjótum servíett- ur og setjum á hvern disk. Kveikjum á kertum og bíðum eftir að klukk- urnar hringi inn jólin.“ Hverju mælirðu með í gjafir í ár? „Mér finnst að við ættum öll að reyna að versla sem mest við inn- lenda hönnuði og fyrirtæki í ár. Þannig getum við öll hjálpast að á þessum skrítnu tímum. Vefverslun er orðin miklu öflugri en hún var fyrir aðeins nokkrum mánuðum og það er um að gera að nýta sér. Mikið er til af dásamlegum vörum sem eru hannaðar og/eða framleiddar hér heima. Vegna aukinnar veru heima við leggja margir sérstaka áherslu á að heimilið sé fallegt og notalegt. Handklæði eru alltaf vinsæl og mjög gagnleg gjöf en einnig eru falleg viskastykki og servíettur nauðsyn- leg fyrir öll heimili á þessum tíma árs. Fallegt ullarteppi í stofuna eða ný sængurverasett eru jafnframt ávallt glæsilegar gjafir sem gagnast öllum á heimilinu. Ilmkerti er líka skemmtileg viðbót á heimilið nú þeg- ar dagurinn fer að styttast og fal- legur kaffibolli er góð gjöf fyrir alla kaffiunnendur.“ Er eitthvað sem fólk ætti að gera núna? Eydís hannaði jólalínu Vorhúss í ár sem ber heitið Einiber. Jólakrans sem Eydís hannaði á jólatréð kostar 5.390 kr. Jólakakan lítur fallega út á jólalegum bakka. Eydís Ólafsdóttir myndlistarkona gerir allt hreint og fínt fyrir jólin. Hún gerir margar kökusortir og er piparkökuuppskriftin hennar einstaklega vinsæl. Hún segir að þvottahúsið sé eina svæðið í húsinu sem sleppur við jólaskreytingar. Elínrós Líndal elinros@mbl.is „Ég myndi ekki panta mér ferð í sólina um jólin. Mér þykir svo óend- anlega vænt um allt stússið sem fylgir jólunum að ég myndi ekki tíma að sleppa því.“ Áttu góða uppskrift fyrir okkur sem þú ert til í að deila? „Ég er oft beðin um uppskriftina að piparkökunum og er meira en til í að deila henni með lesendum.“ Kanntu góða jólasögu? „Besta jólasagan er líklega mestu jólavonbrigði lífs míns. Ég var lík- lega átta ára gömul og hafði lengi óskað mér að fá Bangsa bestaskinn í jólagjöf. Það er bangsi sem sagði sögur og hreyfði munninn um leið. Á aðfangadagskvöld sá ég pakka merktan mér frá pabba og mömmu undir jólatrénu. Stærðin á honum passaði við Bangsa bestaskinn og ég var ótrúlega spennt! Þegar kemur að því að opna gjöfina góðu þá kem- ur úr pakkanum ruslafata! Úr málmi, lítillega beygluð með blóma- munstri. Mamma hafði orðið fyrir því óláni að detta í hálku rétt fyrir jólin með glænýja ruslafötuna og greyið ruslafatan tók fallið að ein- hverju leyti. Það er ekki ofsögum 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 LÍFSSTÍLL FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is AFSLÁTTUR 25% AFSERTA – DEKOR Í FLAUELI SERTA–DECOR SERTA ROYALTY DECO RÚM DÝNA, BOTN, FÆTUR OG GAFL. FÁANLEG Í BLÁU OG GRÁU SLÉTTFLAUELI. FÆST LIKA Í LJÓSGRÁU OG DÖKKGRÁU ÁKLÆÐI Fullt verð í flaueli Jólatilboð í flaueli Serta Royalty Deco rúm 160x200 cm 479.900 kr. 359.925 kr. Serta Royalty Deco rúm 180x200 cm 499.900 kr. 374.925 kr. Serta Royalty Deco rúm 200x200 cm 529.900 kr. 397.425 kr. SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR Myndi aldrei fara til sólarlanda um jólin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.