Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 14
Hjónin eru á einu máli um að kirkjan sé ein- staklega vel heppnuð og hljómburðurinn ótrú- lega góður. Þess vegna kættust þau þegar Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari kom að máli við þau og kynnti fyrir þeim draum sinn um að efna til árlegra sumartónleika í Reyk- holti. Það reyndist auðsótt og fór fyrsta hátíðin fram 1997 og hefur verið árviss viðburður síðan, helgina fyrir verslunarmannahelgina. „Það myndaðist strax ótrúleg stemning, nándin er svo mikil; þetta er eins og að vera með tónlistar- fólkið inni í stofu hjá sér. Enda eru fastagestir á hátíðinni margir, bæði listafólk og áheyrendur. Koma ár eftir ár,“ segir Dagný og nefnir rúss- neskan kór sem komið hefur í fjórgang. „Fé- lagar í þeim kór vilja helst búa hérna.“ Óhappið varð til happs Margar heimsóknir voru eftirminnilegar enda teygir áhugi fólks á Snorra Sturlusyni sig víða um lönd. Dagný rifjar upp þegar japanski kon- súllinn hringdi og bað um að fá að koma með sendiherra landsins í Noregi samdægurs í Reykholt. „Geir var á fundi í bænum en sem betur fer blessaðist þetta; ég náði að dekka upp.“ Annar Japani, prófessor frá Tókíó, kom líka í eftirminnilega heimsókn. Sá hafði velt bíl sínum við Grund í Skorradal á leið sinni í Reykholt á leiðinlegum polladegi en aðeins slasast á fingri. Jóhanna Guðjónsdóttir húsfreyja á Grund bjall- aði þá í presthjónin og bjó þau undir komu mannsins sem flogið hafði sérstaklega til Ís- lands í einn dag til að koma að gröf Snorra. „Ég fylgdist með honum út um gluggann. Hann stóð þarna í drykklanga stund og hneigði sig síðan mjög djúpt,“ segir Geir og Dagný gerir því skóna að umferðaróhappið hafi orðið honum til happs. „Japanir eru upp til hópa svo kurteisir að hann hefði örugglega aldrei kunnað við að knýja dyra og spyrja til vegar að gröfinni.“ Talandi um Jóhönnu og mann hennar, Davíð Pétursson á Grund, þá mega hjónin til með að þakka þeim góða liðveislu gegnum tíðina. „Þau hafa verið mjög öflugir stuðningsmenn og Davíð stjórnarmaður í Snorrastofu.“ Á Kyndilmessu 2004 bar að garði norskan kaupsýslumann, Jan Petter Röed, mikinn áhugamann um Snorra Sturluson og norræna sögu. „Við kynntum honum Reykholtskirkju- Snorrastofu og sögu byggingarinnar og stað- arins. Hann hreifst af verkinu, en blöskraði, hversu miklar skuldir hvíldu á fámennri sókn- inni. Hann hefur gefið 250 þúsund Bandaríkja- dali til að létta þær, auk þess sem hann kostaði allan búnað í turni kirkjunnar og gaf kirkju- klukku og kross framan við hana. Lífsmottó hans er; „You earn, you learn, you return.“ Hann er mikill öðlingur og góður vinur okkar. Margir aðrir, innlendir jafnt sem erlendir hafa lagt lið.“ Dagný lét af störfum hjá Snorrastofu um síð- ustu áramót. „Það er voðalega gott að vera sest í helgan stein og ég hef notið hverrar sekúndu. Það er nóg við að vera hérna í Reykholti, ekki síst á sumrin þegar staðurinn er eins og lítill lystigarður; í sumar komu meira að segja upp hvítar og bleikar vatnaliljur,“ segir hún dreym- in á svip. – Kom aldrei til greina að flytja í burtu? „Nei, okkur hefur liðið óskaplega vel á þess- um skemmtilega stað innan um gott fólk og fal- lega náttúru,“ svarar Dagný. – Eigið þið rætur hérna? „Hvað eru rætur?“ spyr Geir á móti. „Magn- ús langafi minn Waage var frá Litla-Kroppi í Reykholtssókn. Ég á frændur á hverjum ein- asta bæ hérna.“ Reykjavík, til hvers? Dagný er fædd og uppalin í Reykjavík en var í sveit hjá Andrési Kjerúlf í Reykholti og hjá Birni í Varmalandi sem barn. Var þar meðal annars mikið í gróðurhúsum. „Ég hafði ekki ’Ef á að varpa þessu fyrir róðaverður kirkjan án efa fram-tíðarlaus. Þegar hún ofurselursig tíðarandanum sem undir eins líður hjá, verður hún ekki annað en rekald á annarlegri strönd. Séra Geir Waage hefur ekki bara baristfyrir kirkjunni í Reykholti, heldur léthann snemma til sín taka á vettvangi Þjóðkirkjunnar. „Ég gerðist baráttumaður fyrir kirkjunni í breiðum skilningi þess orðs; var kosinn í stjórn Prestafélagsins og var for- maður þess um tíma. Ég hef beitt mér fyrir hagsmunum kirkjunnar, hver sem í hlut hef- ur átt.“ Á sínum tíma flutti hann tillögu á Synodus um að kannaðar yrðu kirkjueignir. Hverjar þær voru um siðbót, hverjar þær væru nú og hvernig hefur verið með þær farið í fjárhaldi ríkisins. Það varð til þess að skýrsla var gerð um málið og jarðeignir frá siðbót og fram til ársins 1984 listaðar upp og ráðstöfun þeirra. „Þetta varð grundvallarskýrsla í uppgjöri ríkis og kirkju, en meginniðurstaðan var sú að kirkjurnar ættu þær eignir enn sem ekki hefðu verið frá þeim teknar með lögmætum hætti. Ergó: Reykholt í Borgarfirði er eign kirkjunnar í Reykholti. Á þeim grundvelli hef ég barist alla tíð.“ Athygli vekur að hann hefur aldrei verið settur formlega í embætti. „Jón heitinn Þór- isson, bóndi í Reykholti, kom til mín með bækur og skjöl embættisins í tösku sem hann skildi eftir. Töskuna átti hann sjálfur. Ætli þetta sé ekki ein skýringin á því hvers vegna ég hef verið svona harður og aðgangssamur fyrir kirkjuna.“ Ríki og kirkju laust saman vegna Reyk- holts „Ég krafðist þess ítrekað að staðurinn yrði tekinn út í mínar hendur eftir að hann var veittur mér. Biskup sendi prófast til þess, en ráðherrann bannaði að gerð yrði úttekt og afhendingargjörð í venjulegri merkingu þess orðs um miðjan níunda áratug síðustu aldar.“ Í Hvítbók um eignir ríkisins frá 1991 er Reykholt talið ríkiseign. Fjármálaráðherra vann að því, að prestssetrunum yrði þinglýst sem eign ríkisins. Geir krafðist þess, að Reyk- holtsmáldaga, elsta skjali, sem varðveitt er í frumriti á Íslensku frá öndverðri 12. öld, yrði þinglýst hjá sýslumanni sem eignarheimild Reykholtskirkju að staðnum. Það gekk ekki eftir, en kröfu ráðherrans var vísað frá, ekki einungis hvað varðaði Reykholt, heldur alla staði kirkjunnar í landinu. „Þarna hafði ríki og kirkju lostið saman í annað sinn og þá varð eitthvað að gera.“ Þriðja málið sem Geir nefnir um vanda í samskiptum ríkis og kirkju snýr að verðskrá fyrir leigu á opinberum embættisbústöðum en hann var þá nýorðinn formaður Presta- félagsins. „Ég fékk fund með Þorsteini Páls- syni, dóms- og kirkjumálaráðherra, vegna þessa máls en prestar voru afar illa launaðir á þessum tíma, með lægri laun en kennarar, svo við setjum þetta í samhengi, og hefðu í einstaka tilvikum þurft að greiða hærri húsa- leigu fyrir ásetu sína, en nam launum þeirra. Það varð til þess að Þorsteinn undanskildi presta þessari reglugerð og ný lög voru sett 1993. Ég kom að þeirri vinnu.“ Þar með varð prestsetrasjóður lögfestur, en hann heyrir nú sögunni til. Illu heilli, að áliti Geirs. „Prestssetrin eru nú hjá kirkju- málasjóði sem er mikið slys.“ Bráðabirgðalög á kjarasamninga Mikið mæddi á Geir meðan hann gegndi for- mennsku í Prestafélaginu, meðal annars lenti hann í því að sett voru bráðabirgðalög á kjarasamning sem færði prestum verulegar launabætur. Hann höfðaði mál á hendur rík- inu fyrir hönd PÍ, en tapaði því fyrir Hæsta- rétti. Þó dæmdu tveir dómarar við réttinn fé- laginu í vil. „Þetta eru dæmi um árekstra mína við ríkisvaldið en mig hefur líka greint á við biskupa, ekki bara í biskupsmálinu svokall- aða. Til að gera langa sögu stutta þá hefur þjóðkirkjan átt í miklum vanda frá því á síð- asta áratug síðustu aldar. Þá var farið að færa verkefni frá kirkjumálaráðuneyti og koma þeim fyrir hjá kirkjunni sjálfri. Hún átti hins vegar engan annan vettvang til þess að taka við þeim en Biskupsstofu, sem heyrir undir biskup Íslands og kirkjuráð. Þangað færðust völd með verkefnunum. Ég átti á sín- um tíma sæti í nefnd undir forystu séra Gunn- ars Kristjánssonar á Reynivöllum sem hafði það verkefni að smíða ný þjóðkirkjulög. Það var erfitt verk sem snerist meðal annars um að varðveita innlenda hefð í lagaumhverfi kirkjunnar, en taka um leið fullt mark á lúth- ersk-evangelískri kirkjuskipan og koma á lýðræði innan þjóðkirkjunnar að því marki sem hægt er. Þetta tókst ekki sem skyldi. Það var of langt á milli sjónarmiða biskups og þess sjónarmiðs sem lögfest var, að kirkju- þingi bæri æðsta vald innan Þjóðkirkjunnar í öðrum málum en þeim sem varða kenninguna og helgihaldið.“ Þróunin hélt svo áfram eftir að Þjóðkirkju- lögin frá 1997 tóku gildi, en engin samstaða ríkti um það á kirkjuþingi að framkvæma anda laganna, það er dreifræði innan kirkj- unnar. „Ekkert hefur breyst síðan; kirkju- þing er enn þá of veikt, þannig að einræð- isstjórnin heldur áfram í kirkjunni. Það er sorglegt því margt hefur farið miður í arfi kirkjunnar á þessum tíma sem vert hefði ver- ið að varðveita. Gamla Consensus-reglan um að leita málamiðlana, er að engu höfð. Menn beita bara valdi – og það án forsjár. Og þú at- hugar að ég er ekki að skoða þetta utan frá; ég var þarna inni.“ Án efa framtíðarlaus Geir gagnrýnir enn fremur að verið sé að rugla saman fjárreiðum sóknanna og presta- kallanna. „Það er verið að rugla saman regi- mentunum, eins og Lúther gamli sagði. Það sem sóknunum ber og leikmönnum eiga þeir að hafa algjörlega fyrir sig. Prestaköllin heyra undir biskup. Allt á þetta svo heima á vettvangi kirkjuþingsins, sem ræður ekkert við þetta. Við áttum samfellu í löggjöf og hefð frá Grágás og Jónsbók um siðbót og einveldi; öllu er nú hent burt í hugsunarleysi. Þá er ég ekki að tala um orðanna hljóðan, heldur er hugsunin í þessu gamla svo heilnæm. Þetta er ekki bara nostalgíuraus í gömlum karli held- ur áþreifanlegir hlutir. Tilfinningin og virð- ingin fyrir sögunni og samfellunni er að týn- ast og hvað er kirkja án fortíðar? Kirkjan er öll um Kristsatburðinn sem á upphaf sitt í því að Guð skapaði veröldina og hefur staðið sleitulaust síðan. Ef á að varpa þessu fyrir róða verður kirkjan án efa framtíðarlaus. Þegar hún ofurselur sig tíðarandanum sem undir eins líður hjá, verður hún ekki annað en rekald á annarlegri strönd. Herostratos brenndi hof Artemisar í Efesus sér til frægð- ar forðum, eitthvert fegursta mannvirki forn- aldar. Hann flýgur mér stundum í hug þegar ég heyri af kirkjumálum í seinni tíð.“ Séra Geir handskrifar allar sín- ar prédikanir með blekpenna. Hvað er kirkja án fortíðar? VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.