Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 15
hugsað mér fyrir að flytja út á land en þegar okkur bauðst að fara í Reykholt þurfti ég ekki að hugsa mig um tvisvar. Annars er fólkið mitt víða að. Úr Skagafirði, Stykkishólmi og frá Eyr- arbakka,“ segir Dagný og Geir bætir við: „Hún er af Pálsættinni.“ – Geir, langaði þig aldrei að prófa að þjóna í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu? „Til hvers? Við höfum verið á kafi hér alla tíð og átt þátt í að endurreisa staðinn. Það tók oft tíma og þrek; maður er fyrst að átta sig á því núna. Lengst af í þessu verki höfum við þurft að gera hlutina sjálf en dásamlegt hefur verið að eiga allt þetta góða og duglega fólk til liðs.“ Hann nefnir stækkun kirkjugarðsins sem dæmi en ráðist var í það verk skömmu eftir að hjónin komu í Reykholt. „Ég réð fermingar- drengina mína í verkið, í að slétta garðinn og stækka. Það var bara til peningur til að borga þeim laun. „Hvenær koma tækin?“ spurði einn strákanna þegar við mættum á staðinn. Þetta eru tækin, svaraði ég, og benti á undirristu- spaða, torfljá og reku. Síðan sýndi ég þeim hvernig fara átti með þessa hluti. Dagurinn var ekki liðinn þegar bóndi í nágrennninu kom okk- ur til liðs og svo annar bóndi og svo annar. Með kerrur og vagna. Við vorum ekki lengi að stækka garðinn. Fengum torf sem einn bóndinn hafði bylt af túni. Þetta er það dásamlega við þennan stað, samkenndin og hjálpsemin.“ Oftar en ekki hafa menn verið þolinmóðir varðandi greiðslur fyrir verk sitt og ósjaldan gefið kaupið eftir eða í öllu falli vænan afslátt. Helst vildu hjónin nafngreina allt þetta fólk en það er auðvitað engin leið í grein sem þess- ari. Við sættumst á að nefna sóknarnefndar- formennina, Aðalstein Árnason, Þorvald Jóns- son, Guðlaug Óskarsson, Þórunni Reykdal og Jónas Jónsson, og svo Berg Þorgeirsson hjá Snorrastofu og Bjarna Guðráðsson bónda í Nesi og organista í Reykholti um árabil. Réttnefndir máttarstólpar. Munar ekki um keppinn Að því sögðu hverfum við sem hendi væri veifað meira en hálfa öld aftur í tímann en Dagný og Geir kynntust í MR seint á sjöunda áratugnum. „Ég bjó í Reykjavík frá fimmtán til 28 ára aldurs. Var hafður þar á skóla. Hafði að vísu ekki rænu á að sækja um í MR í tæka tíð og þegar ég bankaði upp á hjá Einari Magnússyni rektor var skólinn alveg fullur af fólki. Einar bauð unga manninn eigi að síður velkominn. „Það munar ekki um keppinn í sláturtíðinni.““ Dagný og Geir kynntust á dansleik í Templ- arahöllinni, hún í þriðja bekk en hann í fjórða. „Við höfum dansað saman síðan,“ segir hún. „Oftast í takti.“ Þau hlæja. Fyrsta barnið eignuðust þau meðan Dagný var enn í MR. Þá var Guðni Guðmundsson orð- inn rektor og þau rifja upp söguna af því þegar Dagný gekk á hans fund til að biðja um leyfi úr tíma til að fara heim og gefa barninu brjóst en hún bjó í næstu götu. Guðni horfði þá rannsak- andi á hana og mælti: „Þér eruð frekja!“ Leyfið fékkst. Fyrstu kynni Geirs af Guðna voru á þennan veg en þá var sá síðarnefndi kennari við skól- ann: „Ég var á spjalli við eldri nemanda á gang- inum, Kára Stefánsson, sem hefur verið svolítið í fréttum á þessu ári, þegar Guðni kom aðvífandi með fangið fullt af bókum og gleraugun uppi á höfðinu. „Hvernig er það, Kári, talið þér við hvern sem er?“ spurði Guðni og vísaði þannig til þess að ég væri busi. „Hver er þessi maður, Kári?“ spurði ég á móti. Þá lét Guðni gleraugun falla niður á nefið, horfði á mig þegjandi stutta stund og gekk svo á braut.“ Þau hlæja bæði enda Guðni rektor þeim kær, eins og svo mörgum. „Hann var einstakur mað- ur,“ segir Dagný. Barnabörn, bækur og tré En hvað ætli taki við um áramótin, þegar hjónin verða bæði hætt að vinna? „Við eigum sjö barnabörn og helling af bók- um,“ segir Dagný. „Svo mun ég auðvitað halda áfram að ganga um á staðnum með rósaklippur og njóta lífsins. Vonandi gefst sem lengstur tími til þess. Hér í Reykholti er svo gaman að fylgj- ast með öllum árstíðum. Mikið líf hefur verið í kringum hótelið, sem búið er að byggja við, og fólk upp til hópa ánægt við þann viðgjörning sem það fær þar. Hér er fín aðstaða til ráð- stefnuhalds, fæði og húsnæði á hótelinu og and- leg næring og vinnuaðstaða í Snorrastofu og kirkjunni.“ Geir kveðst ekki hafa neinar áhyggjur af verkefnaskorti í framtíðinni. „Við höfum viljað gera staðinn fallegan og teljum margt vera til bóta. Því starfi viljum við halda áfram. Skógur- inn hérna er að stofninum til frá börnum Jó- hönnu Briem og séra Einars Pálssonar; það heitir Eggertsflöt þar sem þau byrjuðu. Eggert sonur þeirra hefði tekið við, hefði hann lifað. Eggert Ólafsson gisti þarna á flötinni er hann hélt brúðkaup sitt í Reykholti sumarið 1768. Staðarmenn hafa fylgt þessu eftir í seinni tíð,“ segir Geir og Dagný sýnir mér gamla ljósmynd af berskjaldaðri hlíðinni. Nú er öldin önnur og skjólið eftir því. „Það er ekki hægt að bera þetta saman,“ segir Geir, „og það er ekki bara skjólið, húsin hérna þurfa minna viðhald enda stendur ekki eins upp á þau en áður.“ Fleiri hafa lagt gjörva hönd á plóg. Seint á átt- unda áratugnum kom í Reykholt sveit norrænna skógræktarmanna sem plantaði 40 þúsund trjám og öðru eins nokkrum árum síðar. Skógrækt- arfélag Íslands gekkst fyrir þeim gjörningi en samstarfið hefur einnig verið gott við Skógrækt- arfélag Borgarfjarðar. Fyrir fáeinum árum var gerður samningur um að landið frá Miðaldagöt- unni í Reykholti og allt útnorður að Hvítá yrði tekið undir skógrækt. Nefna hjónin Friðrik Aspelund skógfræðing sérstaklega í því sam- bandi; hann hafi verið dásamlegur ráðgjafi og logandi áhugasamur um Reykholtsskóg. Einnig Óskar Guðmundsson, rithöfund og formann Skógræktarfélags Borgarfjarðar, gamlan skóla- bróður Geirs frá Núpi í Dýrafirði. Hver var ekki á Núpi? „Nú, varstu þar eins og ég,“ segir Árni Sæberg og þeir skiptast glaðbeittir á nokkrum vel völd- um sögum. Raunar líður mér svolítið eins og ég hafi sjálfur verið á Núpi, ég er farinn að þekkja svo margar persónur og sögur. Það er eins og allir viðmælendur okkar Árna Sæberg hafi ver- ið þar við nám. „Þú heyrir að hann ætlar að gerast skógar- maður,“ segir Dagný brosandi og hnýtir enda- hnútinn á Núpsþátt í Dýrafirði. „Já, ég geri mér vonir um að dútla mér í skóginum,“ segir Geir og svífur í huganum upp í hlíðina. Dagný deilir þeim áhuga en þykir á hinn bóg- inn „voðalegt“ að höggva niður tré. „Ég veit samt að það er nauðsynlegt, stýra þarf skógi. En þegar trén eru höggvin vil ég helst vera heima í stofu.“ Og hvar er betra að eiga heima en í Reyk- holti? Alltént velti ég því fyrir mér á heimleið- inni þegar rokið kemur með offorsi og skrið- þunga niður af hinu alræmda Hafnarfjalli. Með tilheyrandi vatnsgusum. Fyrstu tuttugu árin þjónaði séra Geir fyrir altari í gömlu kirkjunni. Gamla og nýja kirkjan í Reyk- holti og Snorrastofa sem gætt hefur staðinn miklu lífi. 13.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Pípusafns prestsins. Nýja kirkjan í Reykholti var vígð árið 1996. Gott er að búa að regnhlífum á Íslandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.