Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Brúðubíllinn 09.20 Mæja býfluga 09.30 Adda klóka 09.50 Mia og ég 10.15 Lína langsokkur 10.40 Latibær 11.05 Lukku láki 11.25 Ævintýri Tinna 11.50 Jóladagatal Árna í Ár- dal 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.45 Aðventan með Völu Matt 14.05 Impractical Jokers 14.30 Kviss 15.35 Grey’s Anatomy 16.20 Lodgers For Codgers 17.10 60 Minutes 17.55 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Jólaboð Evu 19.35 The Great Christmas Light Fight 20.20 Belgravia 21.10 Ummerki 21.35 Briarpatch 22.25 The Third Day 23.25 His Dark Materials ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi – þáttur 7 20.30 Gamalt er gott – Sverrir Hermannsson 21.00 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Aðventa 21.30 Fjallaskálar Íslands (e) Endurt. allan sólarhr. 16.30 Family Guy 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 18.20 This Is Us 19.00 Líf kviknar 19.30 Hver ertu? 20.00 Venjulegt fólk 20.00 The Block 21.20 Bad Santa 22.55 The Paperboy 00.40 Emergence 01.25 Stumptown 02.10 The Rookie 02.55 MacGyver 03.40 Snowfall 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Selja- kirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Það sem skiptir máli. 13.05 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Heimsending úr Hörpu. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Íslenska mannflóran II. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Hraustir sveinar og horskar meyjar. 20.35 Gestaboð. 21.30 Timinn líður ekki: Smá- saga. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Úmísúmí 07.39 Kalli og Lóa 07.50 Klingjur 08.01 Lalli 08.08 Friðþjófur forvitni 08.30 Nellý og Nóra 08.37 Flugskólinn 08.59 Hrúturinn Hreinn 09.06 Unnar og vinur 09.29 Músahús Mikka – 3. þáttur 09.50 Millý spyr 10.00 Reikistjörnurnar í hnot- skurn 10.05 Landakort 10.10 Kiljan 11.00 Silfrið 11.55 EM karla í fimleikum 15.00 Aðventumessa 16.00 Hjálp til sjálfshjálpar 16.30 Menningin – samantekt 17.00 Aðventustund fyrir syrgjendur 17.25 Jóladagatalið: Snæholt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Jóladagatalið – Jól í Snædal 18.50 Landakort 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.50 Landinn 20.20 Ólympíukvöld fatlaðra 21.15 Óperuminning 21.20 Hvítklædda konan 22.20 The Ides of March 24.00 Silfrið 01.00 Dagskrárlok 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Í Síðdegisþætt- inum með Loga Bergmann og Sigga Gunnars segist Logi vera búinn að finna jólalag ársins. Bæði finna það og útnefna einn síns liðs. Leik- arinn Halldór Gylfason syng- ur lagið en höfundur þess er Ottó Tynes. Í viðtali við Síðdegisþáttinn segir Halldór lagið fjalla um það að maður þurfi að vera fínn þrátt fyrir að hafa borðað mikið og það sé ekki þægilegt að vera í þröngum jakkafötum um jólin. Viðtalið við Halldór má sjá á K100.is. Jólalag ársins: „Joggingjakkafatajól“ Halldór Gylfason syngur lagið. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 15. desember 2020BLAÐ Stjarnan á HM í knattspyrnu1986 hafði ekki fyrr verið lögðtil hinstu hvílu en stjarnan á HM í knattspyrnu 1982 kvaddi. Fyrst Diego Maradona og nú Paolo Rossi. Hvar endar þetta eiginlega? Rossi lést heima í Siena á Ítalíu á miðvikudaginn var, 64 ára að aldri. Banamein hans er sagt hafa verið lungnakrabbi, þó enn sé það ekki staðfest. Rossi bar ekki heilt lið á bakinu gegnum HM á Spáni 1982 líkt og Maradona gerði í Mexíkó fjórum ár- um síðar en það voru svo sannarlega mörkin hans sem skiluðu Ítölum fyrsta HM-titlinum í 44 ár. Lengi leit þó út fyrir að Rossi, sem átt hafði gott mót með Ítölum á HM í Argentínu 1978 og gert þrjú mörk, yrði alls ekki með á Spáni. Árið 1980 var hann nefnilega sakfelldur fyrir aðild að veðmálasvindli á Ítalíu, svo- kölluðu Totonero-máli, þegar hann lék með Perugia, og dæmdur í þriggja ára keppnisbann. Rossi neit- aði alla tíð sök. Bannið var síðar mildað í tvö ár og Rossi var kominn á ferðina vorið 1982 með sínu nýja félagi Juventus og hjálpaði liðinu að tryggja sér meist- aratitilinn á lokasprettinum í deild- inni. Gerði eitt mark í þremur leikj- um. Eigi að síður var val hans í landsliðshópinn umdeilt og margir sparkskýrendur og áhangendur ítalska landsliðsins hleyptu brúnum þegar hann var í byrjunarliðinu, ekki bara í fyrsta leik í riðlakeppninni, heldur öllum þremur. „Ráfaði um eins og vofa,“ sögðu fjölmiðlar en Ítalir komust með harmkvælum í næstu umferð eftir þrjú jafntefli. Rossi komst ekki á blað. Miðherjinn náði heldur ekki að skora í góðum sigri á Maradona og félögum í Argentínu í milliriðlinum en gegn Brasilíu sleppti hann loksins fram af sér beislinu. Svo um munaði. Brasilía, með Zico, Sókrates, Éder og alla þá kappa, hafði farið á kostum á mótinu fram að þessu og dugði jafn- tefli til að komast í undanúrslit. Á það var litið sem formsatriði að Brasilía færi áfram. Rossi var á öðru máli. Í einhverjum frægasta knattspyrnu- leik sem fram hefur farið kom Rossi Ítölum yfir. Sókrates jafnaði fyrir Brasilíu. Aftur skoraði Rossi en Falcão jafnaði. Enn skoraði Rossi og Ítalía vann, 3:2. Þrenna gegn liði sem margir kalla það besta í sögunni sem aldrei varð heimsmeistari. Sparkelskum og listfengum sveið sárt víða um lönd, ekki bara í Bras- ilíu, en Rossi og Ítölum gat ekki verið meira sama um það. Á einu síðdegi hafði veðmálaskúrkurinn með markastífluna breyst í þjóðhetju. „Rossi? Auðvitað átti hann alltaf að vera í liðinu!“ luku menn sundur ein- um munni. Og skáluðu í ólífuolíu. Leikgreinendum vorkunn Leikgreinendum brasilíska landsliðs- ins er á hinn bóginn vorkunn. Hver gat búist við þrennu frá þessum manni eftir frammistöðuna fram að því í mótinu? Eftir þetta héldu Rossi engin bönd. Hann gerði bæði mörkin í 2:0- sigri á Zbigniew Boniek, verðandi fé- laga sínum hjá Juventus, og Pólverj- um í undanúrslitunum á Nývangi og fyrsta markið í 3:1 sigri á Vestur- Þjóðverjum í úslitaleiknum á Bernabéu í Madríd. Hvað félagslið varðar átti Rossi sín bestu ár hjá Juventus, frá 1982 til 1986; hann varð í tvígang ítalskur meistari og vann bikarinn einu sinni; auk þess að verða bæði Evrópu- meistari meistaraliða og Evrópu- meistari bikarhafa. Rossi varð merkilegt nokk aðeins einu sinni markakóngur á Ítalíu, með 24 mörk fyrir Lanerossi Vicenza 1977-78. Mest skoraði hann 13 mörk fyrir Juve í Seríu A, 1983-84. En Paolos Rossis verður fyrst og fremst minnst fyrir framlag sitt til sparkmenntanna á HM 1982. Það var hans ómþýðasti ópus og nú þegar hann er farinn áttum við sem unnum HM okkur á því að það verður alltaf ofurlítill Rossi oss. Paolo Rossi í leik gegn Argentínu á HM 1982. AFP MARKAHRÓKURINN PAOLO ROSSI LÁTINN Rossi oss Paolo Rossi með gullskóinn 1982. Með honum eru Brasilíumaðurinn Zico og Karl-Heinz Rummenigge frá Vestur-Þýskalandi sem fengu silfur og brons. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.