Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 32
Jim Morrison var frá fyrstu tíð ólíkindatól á sviði. „Það var ein ástæðan fyrir því að fólk kom að sjá okkur; það vildi ekki missa af því sem gerðist næst,“ segir Robby Krieger, gítarleikari The Doors, í samtali við breska blaðið The Independent. „Þetta var auðvitað hálfgalið en við vorum bara ekki band sem spilaði sama settið ná- kvæmlega eins kvöld eftir kvöld. Engin tvö kvöld voru eins og Jim teymdi okkur alltaf á nýjan stað. Hann bara naut þess að rugla í fólki.“ Laugardagskvöldið 12. desember 1970 fór ruglið á hinn bóginn úr böndunum á sviðinu í Warehouse í New Orleans. Morrison vissi hvorki í þennan heim né annan vegna áfengisdrykkju og fíkniefnaneyslu og mundi ekki textana; eða öllu heldur bara einn, St James Infirmary Blues, sem hann endurtók við öll lögin sem félagar hans reyndu að spila. Viðstöddum var ekki skemmt og Morr- ison byrjaði á skrítlu til að freista þess að lægja öldurnar í salnum en það var ferð án fyrirheits. Eftir að hafa dott- ið á sviðinu og neitað í fyrstu að standa á fætur rann æði á Morrison sem greip hljóðnemastandinn á lofti og mölv- aði hann í gólfinu; flísar þeyttust í allar áttir. Sá gjörn- ingur varð til þess að rótarinn skarst í leikinn og leiddi söngvarann út af sviðinu frammi fyrir agndofa áhorf- endum. Morrison kom ekki fram á fleiri tónleikum. Hann lést í París 3. júlí 1971. Gröf Morrisons í Père Lachaise- kirkjugarðinum í París er vinsæll áningarstaður rokkelskra. AFP Naut þess að rugla í fólki Fimmtíu ár eru um helgina frá því að Jim Morrison, söngvari The Doors og ein mesta goðsögn rokksögunnar, kom í hinsta sinn fram á sviði. SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 2020 Skeifunni 8 | Kring | g | 0640 | casa.islu PANDABJÖRN 13.590,- ÁSTARFUGLAR svartir – 2 stk. 14.290,- JÓLASVEINKA 12.590,- SÖNGFUGL Midnight blue 13.990,- Jólagjöfin kemur frá KAY BOJESEN JÓLASVEINN 12.590,- API MINI dökkmáluð eik 11.490,- MONKEY ungbarna sængurverasett 100% lífræn bómull – 8.490,- Morgunblaðið var svo almenni- legt á aðventu fyrir hálfri öld að benda lesendum á, hvað ung- lingum þætti gaman að fá í jóla- gjöf. Stefán Halldórsson gekk í verkið og voru hljómplötur hon- um efstar í huga. „Fyrst eru þá nokkur atriði, sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í plötuinn- kaup,“ sagði Stefán. „Ungling- arnir skiptast í þrjá flokka, hvað tónlistarsmekk áhrærir: 1) Fylgjendur hinnar svo- nefndu „framúrstefnutónlistar“, sem er ákaflega léleg þýðing á enska orðinu „progressive mu- sic“. Þessi tónlist er yfirleitt frekar hávær og ofsafengin. Í þessum flokki eru einungis er- lendar hljómplötur gjaldgengar. 2) Fylgjendur venjulegrar popptónlistar, en sú tónlist get- ur verið hvort sem er, hávær eða lágvær. Fullorðið fólk getur yfir- leitt þolað þessa tegund popp- tónlistar, enda heyrist hún í hverjum óskalagaþætti útvarps- ins. Íslenzkar og erlendar hljóm- sveitir flytja þessa tónlist af plöt- um. 3) Fylgjendur sígildrar tónlist- ar. Þessi flokkur er því miður fá- mennastur og verður því ekki rætt um sígildar hljómplötur hér. Enda ætti fullorðið fólk að geta valið slíkar plötur til jóla- gjafa án minnar aðstoðar.“ GAMLA FRÉTTIN Plata fyrir unglinginn Stefán mælti með Paranoid með Black Sabbath. „Þessi plata hefur hlotið miklar vinsældir í Bretlandi og er nú efst á vinsældalista yfir stórar plötur.“ ÞRÍFARAR VIKUNNAR Magni Ásgeirsson tónlistarmaður Benedikt Erlingsson leikari og leikstj́óri Kristján Atli Ragnarsson rithöfundur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.