Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Blaðsíða 29
því síðar fram að Marta hefði verið
„hinsta ást“ forsetans og James
Roosevelt, sonur forsetans, staðfesti
að Marta hefði haft mikla vigt í lífi
föður hans á stríðsárunum og ekki
væri hægt að útiloka að samband
þeirra hefði verið rómantískt.
Gleymum því ekki að Roosevelt var
giftur Eleanor sinni á þessum tíma.
Kannski þess vegna hefur ekki
mikið verið fjallað um samband
þeirra Roosevelts og Mörtu opinber-
lega – fyrr en nú.
Ríkissjónvarpið hefur milli jóla og
nýárs sýningar á glænýjum norsk-
um þáttum í átta hlutum, Um Atl-
antsála, þar sem þessi saga er í for-
grunni. Meðal aðalleikara eru Sofia
Helin (Saga okkar úr Brúnni), Kyle
MacLachlan, Tobias Santelmann og
Søren Pilmark.
Í samtali við heimasíðu Norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins
kveðst leikstjórinn og handritshöf-
undurinn, Alexander Eik, hafa kom-
ist á snoðir um málið fyrir um ára-
tug, þegar hann rakst á grein í
norsku dagblaði. „Þetta var eigin-
lega of ótrúlegt til að vera satt.
Þannig að ég fór að grafa eftir frek-
ari upplýsingum og þessi heillandi
saga kom upp á yfirborðið. Hún fór
fram úr mínum villtustu draumum
vegna þess að ákvarðanir þessa fólks
á þessum tíma höfðu áhrif á alla
heimsbyggðina. Sem sögumaður
gerði ég mér grein fyrir því að ég
hafði komið niður á gull.“
Eik upplýsir að hann hafi ekki
verið í sambandi við konungsfjöl-
skylduna við handritsgerðina enda
vildi hann búa til ákveðna fjarlægð
til að losna við sjónarmið sem gætu
truflað framvindu sögunnar. Hann
ræddi á hinn bóginn við marga sem
gátu gefið upplýsingar frá fyrstu
hendi og voru nálægt hinum eigin-
legu atburðum. Hann hitti til dæmis
tvö barnabörn Roosevelts sem
mundu vel eftir að hafa leikið við
norsku prinsessurnar og krónprins-
inn og að fjölskyldurnar tvær hefðu
varið drjúgum tíma saman.
Eik leggur þó áherslu á, að um sé
að ræða skáldskap sem byggist á
raunverulegum atburðum. Kúnstin
felist í því að vera sögunni trúr og
sögupersónunum, sem sumar eru
enn á lífi, en um leið að gefa sér hóf-
legt skáldaleyfi til að velta fyrir sér
hvað átti sér stað fyrir luktum tjöld-
um. Í huga Eik var einnig mikilvægt
að varpa ljósi á það hvaða mann-
eskju Marta í raun og veru hafði að
geyma bak við prinsessugrímuna. „Í
sögubókum er hún að mestu auka-
persóna og lítið um hana fjallað.
Þess vegna urðum við að setja á okk-
ur rannsóknargleraugun, grafa eftir
gulli og raða saman stóra púslinu.“
Hluti af heimssögunni
Spurður hvort Marta hafi verið
hljóðlát hetja sem verðskuldi sinn
sess í sögunni svarar Eik:
„Hún var mjög hlédræg og kunni
illa við sig í sviðsljósinu, þar sem hún
virkaði dulræn. Hún lést fáeinum ár-
um eftir stríðið og þar sem hún varð
aldrei drottning gleymdist hún flest-
um, meira að segja í Noregi. Gegn-
um frásögn okkar gefst nýjum kyn-
slóðum á hinn bóginn tækifæri til að
kynnast henni. Saga hennar varð
skyndilega hluti af heimssögunni,
þegar hún flutti inn í Hvíta húsið og
gat haft áhrif á Roosevelt.“
Eik fannst ekki síður til þess
koma að fá að draga upp mynd af
Franklin D. Roosevelt. „Roosevelt
er einn af merkustu forsetum
Bandaríkjanna, ásamt Abraham
Lincoln og George Washington, og
mikilvægt að minna fólk á, fyrir hvað
forsetaembættið í Bandaríkjunum
stóð og áhrif þess á stjórnmálin á
heimsvísu.“
Að sögn Eik var Sofia Helin alltaf
fyrsti valkostur í hlutverk Mörtu.
„Ég hef mikið dálæti á Brúnni
enda þótt Saga Norén sé algjör and-
hverfa Mörtu krónprinsessu. Hlýja
og persónutöfrar Sofiu heilluðu mig
líka en hluttekning Mörtu og hæfi-
leiki hennar til að skilja annað fólk,
burtséð frá stétt þess og stöðu, voru
í grunninn þeir mannkostir sem ég
var að leita að hjá leikkonunni,“ seg-
ir Eik og bætir við að mikilvægt hafi
verið að fá Helin um borð ári áður en
tökur hófust; þannig gafst henni
góður tími til að grúska og læra
norsku en hún er sem kunngt er
sænsk. „Þrautseigja hennar hreif
mig og getan til að skipta á milli
sænsku, norsku og ensku. Hún er al-
vöruskapgerðarleikkona.“
Ekki þarf að segja okkur Brúverj-
um neitt um það.
Sofia Helin leikur Mörtu krón-
prinsessu í Um Atlantsála og Kyle
MacLachlan mátar sig við Franklin
D. Roosevelt Bandaríkjaforseta.
NRK
13.12. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
EPLI Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni. Það á við í rokkinu sem
öðru. Alltént ef marka má korn-
unga sveit, Suspect208, frá Kali-
forníu sem sendi frá sér sitt fyrsta
lag á dögunum, Long Awaited.
Söngvari er hinn tvítugi Noah Weil-
and, sonur Scotts heitins Weilands
úr Stone Tempel Pilots; hinn átján
ára gamli London Hudson, sonur
Slash úr Guns N’ Roses, lemur húð-
ir og hinn sextán ára gamli Tye
Trujillo, sonur Robs Trujillos úr
Metallica, leikur á bassa.
Stjörnubörnin rokka og róla
London Hudson, hér þrettán ára.
AFP
BÓKSALA 30. NÓV.-6. DES.
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Þagnarmúr Arnaldur Indriðason
2 Snerting Ólafur Jóhann Ólafsson
3 Bráðin Yrsa Sigurðardóttir
4
Orri óstöðvandi – bókin
hennar Möggu Messi
Bjarni Fritzson
5 Útkall – á ögurstundu Óttar Sveinsson
6 Vetrarmein Ragnar Jónasson
7 Fávitar Sólborg Guðbrandsdóttir
8 Spænska veikin Gunnar Þór Bjarnason
9 Þín eigin undirdjúp Ævar Þór Benediktsson
10 Gata mæðranna Kristín Marja Baldursdóttir
11
Öflugir strákar
– trúðu á sjálfan þig
Bjarni Fritzson
12 Krakkalögin okkar Jón Ólafsson, Úlfur Logason o.fl.
13
Una prjónabók
Sjöfn Kristjánsdóttir og
Salka Sól Eyfeld
14 Lára lærir að lesa Birgitta Haukdal
15 Jólaföndur – leikja-, lita- og límmiðabók
16 Dýralíf Auður Ava Ólafsdóttir
17 Lára fer í leikhús Birgitta Haukdal
18 Dauðabókin Stefán Máni
19 Kökur Linda Ben
20 Barnaræninginn Gunnar Helgason
Allar bækur
Fyrir mér eru bækur súrefni,
dramatísk? Já, ég meina það. Það
að lesa er eins og að setja bensín á
bílinn, að fá smá innsýn í heim
annarra, hversdag einhvers sem
þú þekkir ekki.
Ég les á hverju kvöldi og hef allt-
af gert. Ég er alin
upp við bækur, alltaf
voru bækur og
endalausar ferðir á
bókasöfn og hingað
og þangað að sækja
og fá bækur. Sjálf er
ég lesblind og hef
alltaf þurft að hafa
mikið fyrir því að lesa en það er
það sem heldur mér á tánum. Eft-
ir að ég átti litlu börnin mín tvö þá
las ég bara gamlar bækur sem ég
hafði áður lesið, bara til að lesa.
Aftur og aftur sömu blaðsíðuna,
kannski bara eina blaðsíðu í einu.
Dyrnar eftir Magda Szabó í þýð-
ingu Guðrúnar Hannesdóttur er
ein besta bók sem ég hef lesið í
seinni tíð. Ég heyrði af bókinni í
spjalli við þýðanda hennar í Orð
um bækur fyrir hálfu ári og þótti
mér umræðan um bókina frekar
spennandi og hvað er ekki að
elska? Gömul sérvitur kerling sem
fer sína eigin leið?
Karakterinn Emer-
ansa sem Szabó
skapar er allt sem
ég elska í persónu.
Sérvitur með ein-
dæmum, skrápur
hennar þykkari en
blóð og hversdag-
urinn aldrei sá sami, ævin þyrnum
stráð en ofan á allt er Emeransa
ótrúlega fyndin og ég veit ekki
hversu oft ég hló upphátt.
Guðrún frá Lundi er fyrsti
skvísuhöfundur Íslands og al-
gjörlega sú besta. Guðrún skrifaði
um 26 bækur í gegnum lífið og
þær eru hver annarri betri. Ég
byrjaði að lesa Guðrúnu þegar ég
var um tvítugt og las þá allar
hennar bækur í einum rykk. Upp
frá því les ég alltaf um fimm til sex
bækur eftir hana yfir árið. Bækur
hennar eru mér eins og flótti úr
raunveruleikanum, þær fara með
mann svo langt í burtu, spila á alla
strengi tilfinninga og notalegheit-
in svífa yfir kaffibollunum. Ef ég
mætti bara velja eina bók hennar
með mér á eyðieyju þá yrði það
líklega Afdalabarn eða kannski
Dalalíf eða kannski
Römm er sú taug,
já eða Tengdadótt-
irin.
Það er ómögu-
legt að velja.
Sú bók sem mig
langar mest að lesa
er Vem dödade
bambi (Hver drap bamba?) eftir
Monika Fagerholm. Sögusviðið,
umfjöllunarefnið og siðferðislegar
spurningar sögunnar eru mjög
heillandi. Hún er ekki til á íslensku
þannig að ég óska hér með eftir
einhverjum til að
þýða hana.
Í lokin langar
mig að mæla með
nýju bókinni minni
1,5/10,5 sem kom
út í sumar í sam-
starfi við Signat-
ura books. Ljóð og
prósar með ævisögulegu ívafi og
margslags viðsnúningum. Frjó-
semi og ófrjósemi, matarkex og
kynlíf. Smitrakningar og leyndar-
mál.
VIKTORÍA BLÖNDAL ER AÐ LESA
Bækur eru súrefni
Viktoría Blön-
dal er skáld.
jólagjafa
hjálparinn
3.429 manns sögðu okkur hvað þau langar að
fá í jólagjöf. Skoðaðu niðurstöðurnar á:
aha.is/jol
ENGIN UMFERÐ, ENGIN RÖÐ, ENGIN GRÍMUSKYLDA