Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Qupperneq 18
Eydís er í hópi hönnuða og eig-enda hönnunarhússins Vor-húss á Akureyri. Eydís
hannaði jólalínu þeirra í ár sem
ber heitið Einiber. Hönnunar-
línan vísar í gamlar íslenskar
jólahefðir þar sem einir skip-
aði stóran sess, en einir er
eina innlenda sígræna barr-
tréð sem vex villt á Íslandi.
Hvað ertu að fást við
þessa dagana?
„Við hjá Vorhúsi erum að
taka upp nýjar vörur viku-
lega núna og þar á meðal nýju
jólalínuna Einiber. Það er mikill
handagangur í öskjunni í vinnunni
þessa dagana og langur vinnudagur
en þetta er jafnframt afar skemmti-
legur tími og þar sem ég er svo
heppin að eiga skemmtilega vinnu-
félaga eru allir dagar skemmtilegir.“
Er mikið jólabarn
„Ég er gífurlega mikið jólabarn. Jólin
voru og eru enn mjög mikilvægur
árstími hjá stórfjölskyldunni. Ég
hugsa að móðurforeldrar mínir hafi
átt mjög stóran þátt í því hve mikil
jólabörn við öll erum en þar á bæ
voru ríkar jólahefðir sem færst hafa á
milli kynslóða. Foreldrar mínir hafa
haldið fast í hefðirnar og móðursystir
mín og hennar maður eiga og reka
Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit þann-
ig að í æsku voru jólin mjög hátíðleg.
Allt var hreint og fínt, margar köku-
sortir og jólaskrautið víða. Mér finnst
dásamlegt að skreyta allt húsið.
Þvottahúsið er líklega eina svæðið
sem sleppur við skreytingar.“
Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin?
„Ég baka piparkökur. Ég held að
ég hafi aldrei upplifað jólaundirbún-
ing án þess að baka piparkökur.“
Myndi aldrei panta sér ferð
í sólina um jólin
Eydís er ekki ein þeirra sem myndu
fara á sólarströnd um jólin.
sagt að vonbrigðin voru gífurleg hjá
jólastelpunni. Í staðinn fyrir að hafa
Bangsa bestaskinn í fanginu var þar
beygluð ruslafata. Aðalgjöfin frá
mömmu og pabba þessi jólin var
reyndar mjög fallegt armbands-
úr en þegar maður er átta ára
kann maður illa að meta litlu
pakkana.“
Mælir með að kaupa ís-
lenska hönnun fyrir jólin
Skiptir fallegt stell miklu máli
um jólin?
„Já, mér finnst það. Fallega dúkað
borð um jólin er svo hátíðlegt. Ég fæ
krakkana mína með mér að leggja
fallega á borð. Við brjótum servíett-
ur og setjum á hvern disk. Kveikjum
á kertum og bíðum eftir að klukk-
urnar hringi inn jólin.“
Hverju mælirðu með í gjafir í ár?
„Mér finnst að við ættum öll að
reyna að versla sem mest við inn-
lenda hönnuði og fyrirtæki í ár.
Þannig getum við öll hjálpast að á
þessum skrítnu tímum. Vefverslun
er orðin miklu öflugri en hún var
fyrir aðeins nokkrum mánuðum og
það er um að gera að nýta sér. Mikið
er til af dásamlegum vörum sem eru
hannaðar og/eða framleiddar hér
heima.
Vegna aukinnar veru heima við
leggja margir sérstaka áherslu á að
heimilið sé fallegt og notalegt.
Handklæði eru alltaf vinsæl og mjög
gagnleg gjöf en einnig eru falleg
viskastykki og servíettur nauðsyn-
leg fyrir öll heimili á þessum tíma
árs. Fallegt ullarteppi í stofuna eða
ný sængurverasett eru jafnframt
ávallt glæsilegar gjafir sem gagnast
öllum á heimilinu. Ilmkerti er líka
skemmtileg viðbót á heimilið nú þeg-
ar dagurinn fer að styttast og fal-
legur kaffibolli er góð gjöf fyrir alla
kaffiunnendur.“
Er eitthvað sem fólk ætti að gera
núna?
Eydís hannaði jólalínu
Vorhúss í ár sem ber
heitið Einiber.
Jólakrans sem
Eydís hannaði á
jólatréð kostar
5.390 kr.
Jólakakan lítur fallega
út á jólalegum bakka.
Eydís Ólafsdóttir myndlistarkona gerir allt hreint og fínt fyrir jólin. Hún gerir
margar kökusortir og er piparkökuuppskriftin hennar einstaklega vinsæl. Hún
segir að þvottahúsið sé eina svæðið í húsinu sem sleppur við jólaskreytingar.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
„Ég myndi ekki panta mér ferð í
sólina um jólin. Mér þykir svo óend-
anlega vænt um allt stússið sem
fylgir jólunum að ég myndi ekki
tíma að sleppa því.“
Áttu góða uppskrift fyrir okkur
sem þú ert til í að deila?
„Ég er oft beðin um uppskriftina
að piparkökunum og er meira en til í
að deila henni með lesendum.“
Kanntu góða jólasögu?
„Besta jólasagan er líklega mestu
jólavonbrigði lífs míns. Ég var lík-
lega átta ára gömul og hafði lengi
óskað mér að fá Bangsa bestaskinn í
jólagjöf. Það er bangsi sem sagði
sögur og hreyfði munninn um leið. Á
aðfangadagskvöld sá ég pakka
merktan mér frá pabba og mömmu
undir jólatrénu. Stærðin á honum
passaði við Bangsa bestaskinn og ég
var ótrúlega spennt! Þegar kemur
að því að opna gjöfina góðu þá kem-
ur úr pakkanum ruslafata! Úr
málmi, lítillega beygluð með blóma-
munstri. Mamma hafði orðið fyrir
því óláni að detta í hálku rétt fyrir
jólin með glænýja ruslafötuna og
greyið ruslafatan tók fallið að ein-
hverju leyti. Það er ekki ofsögum
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020
LÍFSSTÍLL
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
AFSLÁTTUR
25%
AFSERTA – DEKOR Í FLAUELI
SERTA–DECOR
SERTA ROYALTY DECO RÚM
DÝNA, BOTN, FÆTUR OG GAFL. FÁANLEG Í BLÁU OG GRÁU
SLÉTTFLAUELI. FÆST LIKA Í LJÓSGRÁU OG DÖKKGRÁU ÁKLÆÐI
Fullt verð í flaueli Jólatilboð í flaueli
Serta Royalty Deco rúm 160x200 cm 479.900 kr. 359.925 kr.
Serta Royalty Deco rúm 180x200 cm 499.900 kr. 374.925 kr.
Serta Royalty Deco rúm 200x200 cm 529.900 kr. 397.425 kr.
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Myndi aldrei fara til
sólarlanda um jólin