Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Page 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 Vinur minn var svo elskulegur um dag-inn að deila uppskrift að eftirréttisem var alveg sérstaklega girnileg- ur. Ekki nóg með það. Hann var líka heilsu- samlegur, sykurlaus og bara hrein hollusta. Maður hafði á tilfinningunni að ef maður kæmi sér bara í að borða þetta á hverjum degi myndu kílóin hreinlega renna af manni. Eftir nokkrar vikur væri maður kominn með maga eins og Rúrik Gíslason. Þetta hljómar of gott til að vera satt og ef það er eitthvað sem ég hef lært þá er það að þegar það gerist, þá er það bara ná- kvæmlega þannig. Svo hefur maður líka vanist því að nánast allt sem er gott virðist alltaf nauðsynlega líka þurfa að vera fit- andi. Meira að segja vondu konfektmolarnir eru fullir af hitaeiningum. Hvursu ósann- gjarnt er það? Vissulega er það þannig að það er enginn sykur í þessu en sykurinn er eins og syndin – lævís og lipur. Hann er bara þarna, búinn að koma sér fyrir í allskonar matvælum og helst náttúrlega í því sem okkur finnst gott. Stundum hefur hann falið sig sem ávaxta- sykur eða undir einhverju öðru furðulegu nafni sem oft hljómar eins og eitthvað sem maður ætti að taka í ráðlögðum dags- kömmtum. Þannig er það með til dæmis eitthvað sem hljómar (og er) mjög hollt og manni finnst að eigi að vera grennandi, eins og hnetur, að það er bókstaflega hlaðið orku. Það eru til dæmis fleiri hitaeiningar í hnet- um en sykri! Fimmtíu grömm af sykri inni- halda um 190 hitaeiningar. Sami skammtur af hnetum er tæplega 300 hitaeiningar. Og ein matskeið af kókosolíu (sem hljómar al- veg sérstaklega vel) inniheldur litlar 120 hitaeiningar. Þetta veit ég núna. Ekki af því ég sé svo mikill sérfræðingur, heldur hefur fólkið á netinu verið svo elskulegt að setja upp reiknivélar um hitaeiningar í öllu mögulegu. Eftir þessar rannsóknir komst ég að því að 100 grömm af þessum girnilega eftirrétti innihéldu um 600 hitaeiningar. Sem er sama magn og við gætum fundið í tveimur kílóum af agúrkum eða rúmlega hálfu öðru kílói af tómötum. Nú eða tæpu kílói af gulrótum. En þá kemur að því sem gerir okkur svo merkileg. Lífið snýst nefnilega ekki allt um hitaeiningar og matur, sem er mögulega fit- andi, getur líka verið hollur og góður fyrir okkur. Það er víst eitthvað til sem heitir góðar og vondar hitaeiningar. Það er til dæmis gott að borða hnetur og möndlur á hverjum degi. Og það er líka allt í lagi að vera ekki vaxinn eins og súpermódel eða áhrifavaldur. Vera bara venjulegur. Lífið væri svo tilgangslaust ef við mynd- um aldrei leyfa okkur neitt. Við værum alla daga troðandi í okkur hreinni hollustu, teljandi hitaeiningar og reikna út vítamíninntöku líkamans. Ég hef nefnilega lært það að fegurðin liggur í meðalhófinu. Það er nán- ast sama hvað við gerum, það er alltaf best ef við gerum það í passlegum skömmtum. Það er til dæmis ekkert sérstaklega spenn- andi þegar fólk drekkur of mikið en það er heldur ekki notaleg tilhugsun að borða ekk- ert nema gulrætur og agúrkur. Ég hef heldur aldrei náð að tengja við pælinguna að borða eins og rómverskur keisari í svallveislu um helgar og byrja svo vikuna fastandi til að reyna að kolefnisjafna sukkið. Hljómar ekki aðeins betur að vera einhvers staðar í miðjunni? Það er ekki svo galið að spá aðeins í þetta núna þegar jólin eru að koma. Tíminn þegar smákökur verða viðurkenndur morgunmatur og kjötið verður alltaf aðeins feitara og reyktara. Réttirnir aðeins fleiri og enginn skortur á eftirréttum. Vatn breytist í malt og appelsín. Þá er gott að hugsa til þess að það eru ekki alltaf jólin. ’Tíminn þegar smá-kökur verða viður-kenndur morgunmatur ogkjötið verður alltaf aðeins feitara og reyktara. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Fegurðin í meðalhófinu Þarnæsta mánudag byrjar sólinað hækka á lofti. Það eru tíma-mót sem fela alltaf í sér ákveðna tilhlökkun og bjartsýni í hugum okkar sem búum við langa og dimma vetur. Að þessu sinni fara vetrarsólstöður saman við aukna bjartsýni um að nú fari senn einnig að birta til í því kófi heimsfaraldurs sem við höfum búið við undanfarna tíu mánuði eða svo. Áfram land tækifæranna Viðspyrnan mun að öllum líkindum verða fyrr en við höfum áætlað undanfarna mánuði. Það verður gef- andi verkefni að koma Íslandi aftur í gang, eftir allt sem á undan er gengið. Krafturinn er þarna, þrautseigjan og seiglan. Vissulega munu margir koma skaddaðir frá þessari raun en von- andi tökum við með okkur lærdóm um hvað við sem sam- félag þurfum að vera: Auðmjúk gagnvart því sem við höfum ekki stjórn á; þakklát fyrir öflugt velferðarkerfi sem við höfum komið upp og styrkt enn frekar; og þakklát öllu því fólki sem þar starfar; minnug þess að án öflugs einkaframtaks, öflugs atvinnu- lífs, berum við einfaldlega ekki uppi þau lífsgæði sem við viljum bjóða upp á. Úrræði stjórnvalda eru fjárfesting í öflugu samfélagi sem spyrnir hratt við botni og vex út úr kófinu. Ég er sannfærð um það. Og áfram verður Ísland land tækifæranna. Efling nýfjárfestinga Leiðarljós mitt í stjórnmálum er að stuðla að þessu; að Ísland sé land tækifæranna frá sjónarhóli bæði ein- staklinga og fyrirtækja. Það eru for- réttindi að fá að beita sér fyrir þessu. Nýlegt dæmi um slíkt verkefni er rakið í minnisblaði sem ég lagði fram í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag. Það gengur út á að efla stuðning við þá sem sýna áhuga á að ráðast í verð- mætaskapandi nýfjárfestingar- verkefni á Íslandi, einkum þau sem tengjast grænum fjárfestingum. Verkefnið hefur fengið vinnuheitið „Græni dregillinn“, sem vísar til þess að við viljum leita leiða til að greiða götu nýfjárfestingaverkefna allt frá hugmynd að rekstri með einfaldari og skýrari ferlum. Allmörg verðmæta- og atvinnuskapandi tækifæri eru nú í skoðun víðsvegar um landið en fjár- festar hafa úr fleiri löndum að velja og leggja mikið upp úr samkeppnis- hæfu almennu viðskiptaumhverfi, markvissri þjónustu, fyrirsjáanleika og skýrum og einföldum ferlum. Ís- landsstofa hefur í samvinnu við ráðu- neyti mitt lagt drög að þessu verkefni og m.a. greint hvernig staðið er að þessum málum í nágrannalöndunum. Greiningin bendir til að nokkuð vanti upp á að við stöndum vel að vígi, sem getur hæglega leitt til þess að við missum af verðmætum tækifærum. Úr því þarf að bæta. Það er raunar almennt áhyggjuefni hve við Íslendingar virðumst gjarnir á að flækja hlutina í hnútum reglu- verks og óskilvirkrar málsmeðferðar. Og það er dálítið einkennileg tilhneig- ing hjá þjóð sem oft er bendluð við kæruleysi, skjótar „reddingar“ og óþol gagnvart flækjum. OECD- skýrslan um byggingariðnað og ferðaþjónustu varpaði skýru ljósi á þessa „flækjuhlið“ á okkar ágæta samfélagi. Annað dæmi var rakið á fundi hjá Samorku nýlega, þar sem bent var á að ein og sama opinbera stofnunin getur þurft að koma allt að 10 sinnum að sömu framkvæmdinni á hinum ýmsu stigum leyfisveitinga og umsagna. Samorka, SI og SA hafa gert þessa áhuga- verðu greiningu aðgengilega og er full ástæða til að hvetja áhugafólk um skilvirkt reglu- verk til að kynna sér hana. En aftur að um- bótum á þessu sviði: Í því sambandi má nefnilega líka nefna mikilvægt frumvarp sem fjármála- og efnahags- ráðherra hyggst leggja fram um efl- ingu nýfjárfestinga. Þar er í fyrsta lagi um að ræða heimild til að hraða afskriftum, sem þýðir að skatt- greiðslur lækka á fyrstu árunum eftir fjárfestingu. Í öðru lagi er um að ræða sérstaka ívilnun til að styðja við umhverfisvænar fjárfestingar, sem felur í sér heimild til að reikna 15% fyrnanlegt álag ofan á kaupverð grænna eigna, sem styður enn frekar við slíkar fjárfestingar. Jólakúlujól Eftir bankahrunið 2008 gaf Baggalút- ur út jólalagið „Það koma vonandi jól“. Það var gráglettni sem á ekki síður við í dag. Þó að jólin séu að miklu leyti hugarástand sem við get- um ræktað innra með okkur þá eru þau líka tími samveru með fjölskyldu og vinum. Samveran verður af skorn- um skammti að þessu sinni. Hugtakið „jólakúla“ hefur fengið nýja og óvænta merkingu. Nú reynir á okkur að njóta hátíðanna við þessar óvenju- legu aðstæður, hvert í sinni kúlu. En sú tilhugsun ætti að létta okkur þessa „kúluhátíð“ að nú hillir undir bjartari tíma. Þar sem þetta er síðasta grein mín á þessum vettvangi fyrir jól vil ég nota tækifærið og óska lesendum öll- um gleðilegrar hátíðar með von um að hún verði ykkur friðsæl og endur- nærandi. Morgunblaðið/Kristinn. Hækkandi sól Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is ’Leiðarljós mitt ístjórnmálum er aðstuðla að því að Íslandsé land tækifæranna frá sjónarhóli bæði ein- staklinga og fyrirtækja. „Hugtakið „jólakúla“ hefur fengið nýja og óvænta merkingu,“ skrifar höfundur. VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI VERÐ FRÁ 7.320.- Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.