Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020
HEILSA
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Gunnsteinn og Helga erubæði komin á eftirlaun enþau brenna enn fyrir fag-
inu og fékk blaðamaður að hitta þau
einn vetrardag í haust og fræðast
um það sem gerst hefur í barnageð-
lækningum síðustu áratugina.
Á Læknadögum í janúar 2020 hélt
Gunnsteinn fyrirlestur um Barna-
geðlæknafélag Íslands en tilefnið
var fjörutíu ára afmæli félagsins.
„Það voru eiginlega þrjú afmæli
sem sneru að geðverndarmálum
barna og unglinga á árinu. Árið 1960
var opnuð í Reykjavík Geðverndar-
deild barna á Heilsuverndarstöðinni
að frumkvæði prófessors Sigurjóns
Björnssonar. Árið 1970 er svo opnuð
Geðdeild Barnaspítala Hringsins,
eins og hún hét þá. Áratug síðar
taka svo barnageðlæknar sig saman
og stofna Barnageðlæknafélag en
það var 3. maí 1980,“ segir Gunn-
steinn, en hann sérhæfði sig í barna-
geðlækningum í Danmörku og Sví-
þjóð.
Vöntun á barnageðlæknum
Helga lauk læknaprófi frá Háskóla
Íslands árið 1969 og fór í sérnám til
Bandaríkjanna og lauk síðar dokt-
orsprófi í barna- og unglingageð-
lækningum frá Turku-háskóla í
Finnlandi árið 2002.
„Ég byrjaði á geðdeild fullorðinna
í sérnáminu en þegar ég kom heim
1974 vantaði lækni á barna- og ung-
lingageðdeildina og var ég beðin um
að vinna þar en deildin var þá fjög-
urra ára og í örum vexti. Það var
fróðlegt að vinna þar og mikil teym-
isvinna. Ég ílengdist þarna í nítján
ár og vann svo tvö ár á Vogi sem var
þá að setja á fót þjónustu fyrir ung-
linga og í framhaldi fór ég að vinna á
geðdeild Borgarspítalans sem síðar
varð geðdeild Landspítalans. Ég
vann því á Landspítalanum í fjörutíu
ár og þar síðustu tíu árin sem ráð-
gefandi geðlæknir fyrir geðdeild
Landspítalans í Fossvogi,“ segir
Helga sem auk þess rak sjálf lækna-
stofu.
„Ég var svo heppin að vera skipuð
í rannsóknarnefnd Norðurlandanna
með öðrum barna- og unglingageð-
læknum sem var tíu ára starf og í
framhaldi af því tók ég þátt í Evr-
ópustarfi til að samræma kennslu og
sérnám í barna- og unglingageð-
lækningum innan Evrópulanda. Það
veitti mér mikla innsýn, bæði í rann-
sóknarheim í sérgreininni og líka í
akademíska heiminn, sem hefur ver-
ið veikburða hér á landi í saman-
burði við barna- og unglingageð-
lækningar annars staðar á Norður-
löndum,“ segir Helga.
Ekkert að þessum krökkum
Geðraskanir barna og unglinga eru
eitt stærsta vandamál heilbrigðis-
kerfisins á Íslandi, að sögn Helgu og
Gunnsteins.
Helga segir að ef miðað sé við hin
norrænu löndin fái takmarkaður
Gunnsteinn Gunnarsson og
Helga Hannesdóttir eiga að
baki langan feril sem barnageð-
læknar. Þau voru upphafsmenn
Barnageðlæknafélags Íslands.
Morgunblaðið/Ásdís
Gefandi að nýta þekkingu sína
Barnageðlæknafélag Íslands varð fjörutíu ára á árinu 2020. Helga Hannesdóttir og Gunnsteinn Gunn-
arsson, barna- og unglingageðlæknar, líta yfir liðinn feril og rifja upp sögu félagsins. Þau segja skort á
barna- og unglingageðlæknum hérlendis og að enn eimi eftir af gömlum fordómum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is