Lögmannablaðið - 2018, Page 9
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 9
heilsað jólunum í öllu mögulegu öðru en tilætluðum
sparifötum. Meira að segja bara á samfellunni. Það voru
jólin sem eldri dóttir okkar Loga var að verða tveggja ára og
harðneitaði að taka þátt í einhverju svona búningadrama.
Eftir að ég fór að halda excelskjal yfir allar gjafir til og
frá öllum í fjölskyldunni hefur orðið ákveðin þróun í
gjafamálum. Logi hefur til dæmis ekki gengið í gegnum
það sama og minn fyrrverandi sem sagði þegar hann fann
gamlan handskrifaðan jólagjafainnkaupalista í vasa á kápu
af mér: „Nei, sko, jólagjöfin mín um næstu jól, peysa!“
(Það má vera að ég hafi ekki verið að vinna til neinna
nýsköpunar verðlauna í jólagjafakaupum á þessum tíma.)
Þótt við höldum í ákveðnar hefðir hef ég lært af reynslunni
að jól eru að miklu leyti hugarástand. Ég veit samt að
þetta hugarástand á sér takmörk og reyni alls ekki að gefa
börnunum gjafakort á geit handa fjölskyldu í Afríku eða
eitthvað álíka. Og maður er alltaf að búa til nýjar hefðir
eða koma sjálfum sér á óvart með því að geta haldið jól
þrátt fyrir breytingar. Þannig verð ég að viðurkenna að við
Logi kviðum fyrstu jólunum án barnanna okkar talsvert,
en við komumst að því að þótt hitt sé betra er hægt að
njóta barnlausra jóla. Loga finnst samt ennþá að þessi
fullorðinsjól hafi ekki gengið nógu langt og er alveg
fullkomlega ósammála mér um að Jesú og pabba hans
finnist að fólk eigi að borða jólamat í fötum.
Jólasnjór er alltaf vel þeginn en ef ég á að segja eins og
er man ég ekki einu sinni hvort síðustu jól voru rauð eða
hvít. Þegar ég áttaði mig á því að hundslappadrífa væri
ekki algjör forsenda fyrir jólaskapi, ákváðum við að það
væri kominn tími til að fara alla leið í flippinu og halda
bara jól, svamlandi sjónum í, suður á Kanarí.
Gleðileg allskonar jól!
Ásar – þýðingar og túlkun slf
Eftirfarandi þýðendur og túlkar starfa innan vébanda
Ása – þýðinga og túlkunar slf:
Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Bjarni Gunnarsson, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Niels Rask Vendelbjerg, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Jóhann Guðnason, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi
Matthías M. Kristiansen, þýðandi
Gísli S. Ásgeirsson, þýðandi
Almennar og löggiltar þýðingar, dóm- og ráðstefnutúlkun, textaráðgjöf.
Ásar – þýðingar og túlkun slf » Skipholti 50b » sími: 562-6588 » netf: ellening@simnet.is
Gleðileg jól