Lögmannablaðið - 2018, Síða 10

Lögmannablaðið - 2018, Síða 10
10 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 FULLVELDI OG ÞJÓÐRÉTTAR - SAMSTARF I Ísland fagnar hundrað ára fullveldi í ár. Þess er minnst á margvíslegan hátt. Viðburðir í tilefni afmælisins, ráðstefnur, ræður og skrif bera með sér að nálgast má viðfangsefnið úr mismunandi áttum. Ljóst er að skilja má fullveldi á ólíka vegu eftir því hver sjónarhóllinn er sem horft er af. Þannig ræðir um fullveldið í sögulegum skilningi, stjórnmálafræðilegum, hagfræðilegum, heimspekilegum, menningarlegum og svo auðvitað lögfræðilegum. Hér eru settar fram hugleiðingar um hið síðastnefnda og þá aðeins afmarkaðan hluta þess, enda verður ekki lengra seilst í svo stuttu greinarkorni. Einn angi hinnar lögfræðilegu umræðu er fullveldi ríkis í þjóðréttarsamstarfi. Í hefðbundnum skilningi hefur þjóðaréttur að geyma reglur sem gilda um samskipti fullvalda ríkja. Talað er um fjórar forsendur fullveldis í þessu sambandi, en þær eru: fólk, land, lögbundið skipulag og stjórnskipulegt sjálfstæði. Þegar sagt er í þjóðarétti að ríki sé fullvalda er einkum vísað til þess síðasttalda. Í því felst að ríki fari sjálft með æðstu stjórn málefna sinna óháð yfirvöldum annarra ríkja eða, eftir atvikum, alþjóðlegum stofnunum. Enginn ágreiningur er um að Ísland fullnægir þessum forsendum og er fullgildur aðili þjóðaréttar nú á tímum. Heita má að álitaefni sé hvort Ísland varð fullgildur þjóðréttaraðili þegar þann 1. desember 1918, en Íslendingar tengja fullveldisdaginn við gildistöku sambands laga­ samningsins þann dag, þótt strangt til tekið hafi eingöngu falist í honum viðurkenning Danmerkur á fullveldi landsins. Hver sem skoðun manna kann að vera á þessu er ljóst að Íslendingar hafa síðan þá fengið fulla viðurkenningu í alþjóðasamfélaginu á fullveldi sínu. Þetta birtist m.a. í þeim fjölmörgu þjóðréttarsamningum sem Ísland hefur gert á fullveldistímanum. II Fullveldið kemur reglulega til umræðu þegar íslenska ríkið gerir þjóðréttarsamninga. Heyrist þá jafnvel að í hvert sinn sem íslenska ríkið gerir slíkan samning feli það í einhverjum skilningi í sér takmörkun á fullveldi. Þessi skoðun nýtur takmarkaðs fylgis og verður henni ekki haldið hér frekar á lofti. Raunin er sú, frá sjónarhóli þjóðaréttar, að það felur þvert á móti í sér viðurkenningu á Íslandi sem fullvalda ríkis að önnur ríki telji það gildan viðsemjanda að þjóðarétti. Þetta breytir því ekki að skuldbindingar í sumum þjóðréttarsamningum eru þess eðlis að réttmætar spurningar vakna um hvort þær DR. JUR. DAVÍÐ ÞÓR BJÖRGVINSSON EF EKKI ER UNNT AÐ FINNA ÞEIRRI VERND STOÐ INNAN ÓBREYTTRAR STJÓRNARSKRÁR BLASIR VIÐ AÐ BREYTA ÞARF ÞEIRRI STJÓRNARSKRÁ

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.