Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 14

Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 14
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 skilgreiningu sem jafnan hefur verið lögð til grundvallar við mat á stjórnskipulegu gildi EES­samningsins, jafnframt því sem reikna má með að í þessu hafi falist áskilnaður um fullveldi de facto. En fullveldið verður ekki eingöngu skilið sem lagalegt og stjórnmálafræðilegt hugtak heldur felst einnig í því sú trú Íslendinga að þeim sé best treystandi til að stuðla að velferð þjóðarinnar og rækta íslenska menningu. Fullveldi er þannig í senn birtingarmynd almannavalds sem og hugmynda Íslendinga um hvernig því verður beitt í þeirra þágu. Til að skýra þetta aðeins nánar má sem dæmi nefna að íslenska ríkið hefur í raun í málum tengdum framkvæmd EES­samningsins borið fyrir sig fullveldisréttindi sín til að neita einstaklingum, þ.m.t. launþegum, og aðilum í atvinnurekstri um réttindi sem þeim ber samkvæmt EES­samningnum, sbr. mál Erlu Maríu. Réttmætt er að hugleiða hvort eitthvað kunni að vera gallað við fullveldishugtak sem talið er leiða til þess að neita beri íslenskum borgurum um réttindi sem þeir skýrlega eiga samkvæmt þjóðréttarskuldbindingum. Íslenska ríkið neytir fullveldisréttinda sinna m.a. með þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, þar með í samstarfi Evrópuríkja, af frjálsum vilja. Þetta vill gleymast og ekki laust við að stjórnmálamenn á stundum noti áskilnað um fullveldi landsins til að ala á tortryggni gagnvart alþjóðlegu samstarfi og talað er um slíkar skuldbindingar, einkum eins og þær birtast í EES­samningnum, eins og um sé að ræða yfirgang og afskipti erlends valds af innanlandsmálum Íslendinga. Breytir litlu þótt reglurnar í raun færi borgurunum, þ.m.t. launþegum, og íslenskum aðilum í atvinnurekstri, aðallega réttindi. Samskiptin á innri markaðnum lúta reglum sem eiga sér rætur í samstarfi margra ríkja og sækja í reynd ekki beina löghelgan sína til þjóðríkisins. Hið fullvalda ríki er þannig í raun ekki eina uppspretta þess sem kalla má „stjórnskipulegt“ vald eins og hin hefðbundna fullveldishugmynd gerir ráð fyrir. Við þær aðstæður má það heita eðlilegt að gera ráð fyrir alþjóðlegum stofnunum sem hafa það hlutverk að standa vörð um hin lögvörðu réttindi sem einstaklingar og lögaðilar kunna að eiga óháð fullveldi ríkja. Þetta er á vissan hátt til þess fallið að grafa undan valdi þjóðríkja (ríkisheilda) og mögulega samstöðu um þá þætti sem venjulega eru taldir tengja saman þjóðir. Skilningur ráðamanna á fullveldishugtakinu á hverjum tíma þarf að uppfylla væntingar og kröfur borgaranna um velferð og vernd réttinda þeirra með aðild að þjóðréttarsáttmálum og alþjóðlegum stofnunum sem hafa vald til að taka bindandi ákvarðanir, ef því er að skipta. Frá sjónarhóli borgaranna, sem byggja rétt sinn og jafnvel afkomu á að EES­reglurnar virki, skiptir mestu að þeir fái notið réttinda sinna samkvæmt EES­reglum. Krafan um fullveldi íslenska ríkisins er gerð til að standa vörð um að borgarar þess fái notið sinna réttinda. Ef ekki er unnt að finna þeirri vernd stoð innan óbreyttrar stjórnarskrár blasir við að breyta þarf þeirri stjórnarskrá þannig að hinu fullvalda íslenska ríki sé mögulegt að taka fullan þátt í EES­samstarfinu og tryggja með því réttindi eigin borgara. Sjá einnig nánar eftir höfund þessarar greinar: ­ Fullveldi. Margeygt og margarma kvikvendi. Í ritinu Full- veldi í 99 ár. Hið íslenska bókmenntafélag 2107. ­ Fullveldi Íslands í samstarfi Evrópuríkja. Í ritinu Frjálst og fullvalda ríki 1918-2018. Sögufélag 2018. Andri Árnason, hrl. Edda Andradóttir, hrl., LL.M. Finnur Magnússon, hrl., LL.M. Halldór Jónsson, hrl. Lárus L. Blöndal, hrl. Sigurbjörn Magnússon, hrl. Simon David Knight, solicitor Stefán A. Svensson, hrl., LL.M. Vífill Harðarson, hrl., LL.M. Borgartúni 26 105 Reykjavík 580 4400 www.juris.is

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.