Lögmannablaðið - 2018, Síða 28

Lögmannablaðið - 2018, Síða 28
28 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 FÆRRI ÖÐLAST MÁLFLUTNINGS­ RÉTTINDI Þann 23. nóvember s.l. fór fram út­ skrift af námskeiði til öflunar réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómstól­ um, en um var að ræða seinna nám­ skeiðið af tveimur sem haldið var á árinu 2018. Á nýafstöðnu námskeiði þreyttu 15 lögfræðingar próf á fyrri hluta nám­ skeiðsins, í fyrsta sinn, en aðeins 4 þeirra luku prófrauninni með full­ nægjandi árangri eða 26,7%. Einnig stóðust 12 þeirra 18 þátttakenda sem skráðir voru í endurtektarpróf fyrri hluta námskeiðsins eða 66,7%. Af þeim 16 þátttakendum sem skráðir voru á síðari hluta námskeiðsins náðu 14 tilskyldum árangi, 10 karlar og 4 konur. Á fyrra réttindanámskeiði ársins 2018 útskrifuðust 23 þátttakendur, 15 karlar og 8 konur. Á þessu ári hafa því alls 37 lögfræðingar lokið prófraun til öflunar réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómstólum, 25 karlar og 12 konur. Hlutfall kvenkyns þátttakenda var það næst lægsta frá því núverandi kerfi réttindaöflunar tók gildi árið 2000. Lægst fór hlutfallið í 28,8% árið 2009 en hæst fór það í 66% árið 2016. Sé hlutfall kynjanna skoðað heildstætt má sjá að það er tiltölulega jafnt, en af þeim 1079 lögfræðingum sem lokið hafa öflun málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum, í núgildandi kerfi, eru 583 karlar eða 54% af heildarfjölda á móti 496 konum eða 46%. Grafið sýnir kynjahlutfall þátt takenda á námskeiði til öflunar málflutn ings­ réttinda á árabilinu 2000 – 2018. Við skoðun á tölulegum upplýsingum um fjölda þátttakenda vekur kannski mesta athygli að þeim sem sótt hafa réttindanámskeiðin hefur fækkað jafnt og þétt á síðustu árum. Að öllum líkindum má rekja þessa þróun til 59,5% 50,0% 55,9%51,8% 60,8% 54,2% 47,5% 58,5% 64,7% 71,2% 59,1% 50,6%46,1% 52,2%47,7%52,7% 34,0% 52,1% 67,6% 40,5% 50,0% 44,1%48,2% 39,2% 45,8% 52,5% 41,5% 35,3% 28,8% 40,9% 49,4%53,9% 47,8%52,3%47,3% 66,0% 47,9% 32,4% 0,0% 10,0% 20,0% 30,0% 40,0% 50,0% 60,0% 70,0% 80,0% 90,0% 100,0% 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Kynjahlutfall þátttakenda 2000 - 2018 Karlar % Konur % Grafið sýnir kynjahlutfall þátttakenda á námskeiði til öflunar málflutningsréttinda á árabilinu 2000 – 2018.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.