Lögmannablaðið - 2018, Page 30

Lögmannablaðið - 2018, Page 30
30 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 Það var létt yfir eigendum Sóknar lögmannsstofu þegar Lögmannablaðið tók á þeim hús. Starfsmenn stofunnar eru fjórir og er Eva Dís jafnframt framkvæmdastjóri. Auk fyrrnefndra lögmanna er þar lykilstarfsmaður hverrar stofu; skrifstofustjórinn sem að auki gegnir stöðu innheimtustjóra og aðstoðarmanns lögmanns. ,,Við stofnuðum Sókn lögmanns stofu árið 2010 en höfðum áður starfað saman hér á Egilstöðum undir merkjum annarrar stofu sem hafði starfsstöðvar á nokkrum stöðum á landinu. Síðan þá höfum við átt farsælt samstarf og reksturinn gengið vel,“ segir Hilmar Gunnlaugsson aðspurður um upphaf samstarfsins. ,,Ég hef verið starfandi lögmaður hér á Egilsstöðum síðan árið 1998 en við þrjú höfum starfað saman allt síðan í ársbyrjun 2004“ . Öll hafa þau víðtæka reynslu af hinum ýmsu sviðum lögfræð­ innar og eru sveitarfélögin á Austurlandi, Vestur landi og víðar meðal viðskiptavina stofunnar auk stéttarfélaga og annarra félaga enda sveitarstjórnarréttur, eignaréttar­ og fasteignamál, félagaréttur og mál er varða fjármálafyrirtæki og vinnuréttur meðal sérsviða lögmannastofunnar. Auk þess hafa þau unnið allnokkuð fyrir landeigendur og ýmis fyrirtæki. Eva: ,,Vitanlega er innbyrðis sérhæfing hérna innan stofunnar, Hilmar er sérfræðingur í orkurétti og Jón einnig, og ég er til að mynda mikið í vinnuréttarmálum.“ Nú blasir við að mun færri lögmenn starfa á þeirra svæði auk þess sem samfélagið er smærra og því nándin meiri. Því er eðlilegt að spyrja þau hvaða áhrif sú staðreynd hafi og hvort þau telji starfsskilyrði lögmanna sem starfa á landsbyggðinni eitthvað frábrugðin því sem við þekkjum sem störfum á höfuðborgarsvæðinu: Eva: ,,Í reynd er starfssvæðið mun stærra og tel ég 30­ 40% okkar vinnu utan þessa svæðis, við erum því tölu­ vert í Reykjavík og sinnum ákveðnum verkefnum s.s. nefndarstörfum og öðru sem oft má leysa með fjar fundar­ búnaði“. Svo hagsmunaárekstrar eru kannski ekki tíðir? Eva: ,,Það getur vissulega oft komið upp, við erum til að mynda að vinna fyrir stóra aðila, fyrirtæki og stéttarfélög, svo það segir sig sjálft að ef upp kemur gjaldþrot af stærri gráðu erum við oft vanhæf til að sinna skiptastjórn vegna fyrri aðkomu okkar að málefnum viðkomandi. Við tilkynnum vitanlega viðskiptavinum okkar, t.d. sem eru í atvinnurekstri, strax ef við getum ekki sinnt hagsmunagæslu þeirra vegna hugsanlegrar fyrri aðkomu, sem hefur einkum komið upp í vinnuréttarmálum.“ Jón: ,,Þetta er alltaf ákvörðun í hvert AÐGENGI AÐ LÖGMÖNNUM Í HEIMABYGGÐ MIKILVÆGT Sunnan við Lagarfljót hafa þrír lögmenn rekið lögmannsstofuna SÓKN allt frá árinu 2010. Starfstöðin er á Egilsstöðum en stofnendur stofunnar og eigendur eru hæstaréttarlögmennirnir Hilmar Gunnlaugsson, Eva Dís Pálmadóttir og Jón Jónsson. Lögmannablaðið fór í húsvitjun á dögunum þar sem lögmenn stofunnar sátu fyrir svörum um starfsskilyrði ,,dreifbýlis- lögmanna“. KATRÍN SMÁRI ÓLAFSDÓTTIR LÖGMAÐUR

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.