Lögmannablaðið - 2018, Qupperneq 37

Lögmannablaðið - 2018, Qupperneq 37
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/18 37 „In god we trust“.Á spjalli við dómara og lögmenn. Dómarinn bauð okkur að sitja með sér á „bekknum“ á meðan hann tók fyrir nokkur mál og sýndi okkur með hvaða hætti væri ákvarðað hvort að sett er lausnargjald eða viðkomandi sleppt gegn því að samþykkja að fara í meðferðarprógramm. Það var stórkostleg upplifun að fylgjast með hvernig ferlið er á þessu dómstigi auk þess sem við náðum aðeins að setja okkur í spor dómara við dómstólinn. Sakadómstóllinn í Bronx og áfrýjunardómstóllinn í Manhattan Við heimsóttum einnig sakadómstólinn í Bronx, þar var réttað yfir manni sem hafði ráðist á tvö börn og stolið af öðru þeirra síma. Maðurinn hafði setið í gæsluvarðhaldi í tvö ár vegna málsins og var loksins kominn fyrir dóm þar sem kviðdómur myndi ákveða örlög hans. Að lokum tók Darcel D. Clark aðalsaksóknari í Bronx á móti okkur á skrifstofu saksóknara og spjallaði við okkur. Þá var haldið til Manhattan þar sem Patricia Hennessey (lögmaður fyrrverandi tengdadóttur Donalds Trump) tók á móti okkur og við heimsóttum áfrýjunardómstólinn og vorum viðstaddar þinghald sem varðaði kyrrsetningu barna. Við áttum gott spjall við dómarann og það var áhugavert að sjá hversu ólík málsmeðferðin er hjá bandarískum dómstólum miðað við hina íslensku dómstólaframkvæmd. Eftir maraþon heimsókna í New York var haldið til Cooperstown í norður New York­fylki þar sem við tókum þátt í þriggja daga ráðstefnu á vegum Women´s Bar Association of the State of New York sem eru heildarsamtök félags kvenna í lögmennsku í New York­fylki. Á ráðstefnunni voru mörg áhugaverð erindi t.d um siðareglur lögmanna, #metoo og vinnuumhverfið og einnig var fjallað um innflytjendamál í ljósi nýrra tilskipana Bandaríkjaforseta og fleira. Þá var ekki síður skemmtileg dagskrá fyrir þátttakendur að loknum erindum dagsins þar sem fulltrúar FKL tóku m.a. þátt í keppni í kokteilagerð og fóru með sigur af hólmi. Ferðin var afskaplega vel heppnuð og hefur Félag kvenna í lögmennsku aflað nýrra og góðra tengsla við systurfélag okkar vestan hafs. Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður og formaður FKL

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.