Lögmannablaðið - 2019, Blaðsíða 20
20 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/19
Fanney er ásamt þremur öðrum starfsmönnum ríkislög-
manns í teymi sem tekur til varna fyrir hönd íslenska
ríkisins fyrir Mannréttindadómstólnum. Aðrir í teyminu
eru Einar Karl Hallvarðsson ríkislögmaður og hæstaréttar-
lögmennirnir Guðrún Sesselja Arnardóttir og María
Thejll. Embætti ríkislögmanns tók við hagsmunagæslu
Íslands fyrir dómstólnum í lok árs 2016 og sinnir þessum
málum nú samhliða öðrum verkefnum hjá embættinu, en
málaflokknum var áður sinnt af dómsmálaráðuneytinu.
Fanney segir að álag í þessum málaflokki hafi aukist
verulega hin síðari ár. Hún lýsir ferlinu þannig að kærur
þurfi að komast í gegnum „fyrstu síu“ dómstólsins áður
en dómstóllinn óskar eftir athugasemdum frá ríkinu.
Langflestar kærur komast ekki í gegnum þessa fyrstu
hindrun en á undanförnum árum hefur dómstóllinn þó
tekið mun fleiri kærur gegn íslenska ríkinu til meðferðar en
áður. Fanney segir erindin frá Mannréttindadómstólnum
alltaf í formi spurninga, dómstóllinn spyr hvernig hinum
og þessum atriðum er háttað í landsrétti og hvernig íslenska
ríkið telur að tiltekin atriði samrýmist Mann réttinda-
sáttmálanum. Dómstóllinn leggur sig reyndar fram um
að fá aðila til þess að sætta mál áður en mál gengur alla
leið til dóms. Ef sáttaferlinu líkur án árangurs ber aðilum
að skila greinargerðum þar sem spurningum dómstólsins
er svarað. Málsmeðferðin er almennt skrifleg og venjulega
skila aðilar tveimur greinargerðum í máli. Venjulega lýkur
málinu svo með dómi án þess að það hafi verið munnlega
Fanney Rós Þorsteinsdóttir útskrifaðist frá Lagadeild Háskóla Íslands
árið 2005, fékk réttindi til þess að flytja mál fyrir héraðsdómstólum
árið 2006 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 2013. Hún hefur unnið hjá
Embætti ríkislögmanns frá árinu 2012. Fanney, ásamt Geir
Gestssyni, var fyrst íslenskra málflytjenda til þess að flytja
munnlega mál fyrir Yfirdeild (Grand Chamber) Mannréttinda-
dómstóls Evrópu þann 9. október sl.
FYRSTU ÍSLENSKU
MÁLFLYTJENDURNIR
HJÁ GRAND CHAMBER –
FANNEY RÓS ÞORSTEINSDÓTTIR