Tölvumál - 01.01.2016, Page 11
11
• dreymdi risaeðlur, dreka, tröll og dverga í nótt… Hvað er það???
• Mér er svo illt í puttunum!!!!
Önnur aðferð við að leggja áherslu á einstök orð er sú að skrifa þau með
stórum stöfum:
• Næst þegar fokking þvottavélin fer að vera með læti, þá fer ég
og EYÐILEGG hana.
• Við erum svo klárlega LANGFLOTTUST
TILFINNINGAÞRUNGI :-)
Ritmálið býður upp á takmarkaða möguleika til að tjá tilfinningar með
öðru en orðum. Svipbrigði og líkamstjáning komast ekki til skila í ritmáli.
Netlenskan býður notendum upp á að gera ritmálið líkara talmáli með
alls kyns táknum. Þekktasta aðferðin er eflaust sviptákn eins og
broskallar, þ.e. myndræn tákn sem eru sett saman úr greinarmerkjum.
Til að fá rétta mynd út úr þeim þarf að halla höfðinu, yfirleitt til vinstri:
• góður dagur :) beituhlaup og 7ára ammli :D
• það á enginn að vera í svona stöðu :(
Frá því þetta var rannsakað er orðið sífellt algengara að sviptáknin séu í
formi grafískra tákna. Þess vegna er ekki lengur nauðsynlegt að skrifa
táknin með lyklaborðinu. Nú geta Fésbókarnotendur líka látið fylgja
sérstaklega með hvernig þeim líður þegar þeir skrifa stöðu upp færslur.
*GEISP* NENNESSEKKI!
Önnur aðferð við að tjá tilfinningar með netlensku er sú að skrifa leikhljóð
með stöðuuppfærslunni. Þá er líklega ætlast til þess að textinn sé lesinn
upphátt með leikrænum tilþrifum. Því mætti líkja við lýsingar í handriti,
sem gefa leikurum til kynna hvernig þeir eiga að bera sig að á leiksviðinu.
Orðin sem lýsa hljóðinu eru þá „römmuð inn“ með stjörnu eða öðru
tákni:
• ég er búin að vera með hiksta í allan dag! *hiksthiksthikst*
• *geisp* held það sé bara leggja með litlunni minni :)
HLJÓÐLÍKINGAR! HAHAHAHA!
Þriðja aðferðin við tjáningu tilfinninga er sú að skrifa ýmiss konar hljóð
með orðum. Þannig er reynt að líkja eftir hljóðum sem menn gefa frá sér
þegar ákveðnar tilfinningar brjótast fram. Í hverri hljóðlíkingu er aðeins
notaður einn sérhljóði sem endurtekinn er eftir þörfum. Líklega fer fjöldi
endurtekninga eftir því hversu mikla ánægju (eða vanlíðan) menn vilja
láta í ljós. Þekktastar eru ýmiss konar hláturrokur, en einnig má gefa frá
sér væluhljóð með þessum hætti:
• Ég er að fíla myndina með þessari frétt hahaha
• Vill enginn fá sófann minn í alvöru … búhú!
VIÐ HÖFUM EKKI ALLAN TÍMA Í HEIMINUM
Í samtölum sem fara fram í rauntíma á netinu þurfa þátttakendur að vera
sem fljótastir að tjá sig. Annars er hætt við því að viðmælendur þeirra
verði óþolinmóðir. Ef fleiri en tveir ræðast við gæti einhver annar orðið á
undan að svara. Þá gefst lítill tími til að skrifa fullmótaðar setningar og
því hafa notendur netlenskunnar þróað með sér ýmsar skammstafanir.
Flestar skammstafanir sem netlenskan notar eru styttingar á enskum
orðasamböndum og eru yfirleitt myndaðar með því að taka fyrsta staf
úr hverju orði:
• OMG!!! Nú verð ég að fara til Japan!!
• Lái samt engum að taka tl;dr á þetta!
Skammstöfunin OMG stendur hér fyrir upphrópunina Oh, my god. (Guð
minn góður). Skammstöfunin tl;dr er stytting á too long; didn’t read, og
merkir að texti hafi verið of langur til að notandi hafi nennt að lesa hann.
FRAMTÍÐIN
Hér hefur verið farið yfir helstu einkenni netlenskunnar, samskiptamáta
sem netnotendur hafa tileinkað sér. Mörg einkenni hennar hafa verið til
frá því hún byrjaði að þróast, sum einkenni hafa horfið og önnur komið
í staðinn eftir því sem tæknin hefur breyst. Þetta sýnir hvað netlenskan
er lifandi samskiptamáti sem lagar sig að breyttum aðstæðum. Hvernig
hún heldur áfram að þróast í framtíðinni veit enginn – tæknin og
kynslóðir framtíðarinnar leiða það í ljós.
ASK? (Þýðing: Aldur? staður? kyn?) Netlenskan teygir sig út fyrir tölvuheiminn
sé miðað við þetta veggjakrot í einni bygginga Háskóla Íslands. (MYND: ATÆ)
Nokkur algeng sviptákn (MYND: ATÆ/all-free-download.com)