Tölvumál - 01.01.2016, Blaðsíða 36
36
STAÐSETNINGAR – FRAMLEIÐNI EÐA
NJÓSNASTARFSEMI?
Hvernig getum við nýtt upplýs ingar
úr netkerfum til að auðvelda okkur
störfin í nútíma tækni umhverfi?
• Netkerfi í fyrirtækjum saman
standa af innri og ytri
netkerfum
• nnranet veitir aðgang á skjótan,
öruggan og skilvirkan máta.
• Upplýsingar úr kerfunum geta
hjálpað til við dagleg verkefni.
• Tökum dæmi um viðveru
starfsfólks. Hvernig er hægt að afla upplýsinga um viðveru í
rauntíma?
VIÐVERA Í RAUNTÍMA
Þessi grein sýnir fram á hvernig hægt er að nota upplýsingar úr
þráðlausa kerfinu til að sjá viðveru starfsfólks í rauntíma. Einnig sjáum
við hvernig þjónustufyrirtæki geta nýtt upplýsingar úr kerfinu í rekstri. Til
þess að ná þessu fram þarf ákveðinn grunnur að vera til staðar.
NETKERFI
Hægt er að skrifa aðra grein um netkerfi og hönnun þeirra. Hvert
fyrirtæki er í raun einstakt, þarfagreining og hönnun á netkerfum
endurspeglar það. Mikilvægast er að netkerfið sem undir liggur sé
traust, afkastamikið og öruggt. Staðarnetkerfið er grunnurinn að öllu því
sem á eftir kemur. Þráðlausir sendar tengjast staðarnetinu með vír og
sjá notendum fyrir þráðlausu sambandi við innranetið og Internetið.
Netkerfi eru grunnurinn í upplýsingatækni fyrirtækja og stofnana.
STAÐSETNING BÚNAÐAR
Til þess að fá upplýsingar um viðveru og staðsetningu notandans þarf
að staðsetja þráðlausa búnaðinn miðað við slíkar þarfir. Í stærri
fyrirtækjum eru þráðlaus netkerfi með mörgum þráðlausum sendum
sem tryggja samband við innra netið hvar sem er í fyrirtækinu.
Helsti tilgangur með þráðlausu sambandi hefur hingað til verið að flytja
gögn, tal og myndfundi. Upplýsingar um staðsetningu notenda gæti
orðið hagnýt viðbót við þetta.
Til að fá staðsetninguna sem nákvæmasta er nauðsynlegt að staðsetja
þráðlausa senda við jaðar þeirra svæða sem um ræðir. Með því næst
þríhyrnings miðun (e. Triangulation) á þá notendur sem staðsetja skal.
Dæmigerð uppsetning gæti litið út eins og á myndinni hér fyrir ofan.
Rauðu punktarnir tákna þráðlausa senda. Til að ná fram hagkvæmustu
virkni fyrir staðsetningu þurfa þráðlausu sendarnir að vera í loftinu og
snúa niður. Þetta tryggir einnig bestu nýtingu á hverjum sendi þegar
kemur að drægni og gagnaflutningi.
HVERNIG NÝTUM VIÐ
RAUNTÍMA-
UPPLÝSINGAR Í
NÚTÍMA NETKERFUM
TIL AÐ AUKA
FRAMLEIÐNI?
Kristján Ólafur Eðvarðsson og Finnur Eiríksson, netsérfræðingar hjá Sensa