Tölvumál - 01.01.2016, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.01.2016, Blaðsíða 20
20 Tölvueign íslenskra heimila eykst með ári hverju auk þess sem netnotkun Íslendinga færist sífellt í vöxt. Alls 97% þjóðarinnar notar netið reglulega sem er Evrópumet en meðaltalið er 75% í löndum Evrópusambandsins (Tölvu­ og netnotkun á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum 2014, 2015). Það er deginum ljósara að upplýsingatækni hefur sífellt meiri áhrif á íslensku þjóðina og þá ekki síst á íslenskt mál og málnotkun. Ómálga smábörn leika sér í smáforritum og börn kanna ævintýraheim veraldarvefsins áður en þau læra að reima skóna sína. Það er því ekki að undra að spjaldtölvuvæðing íslenskra grunnskóla hefur verið ofarlega á baugi undanfarin misseri. Langstærstur hluti þess efnis sem við nálgumst í gegnum tölvur og tækni er á ensku og leiðir það til töluverðar samkeppni ensku og íslensku í hinu hversdagslega málumhverfi okkar. Skoðanir eru vissulega skiptar, sumir óttast þessa þróun en aðrir fagna þeirri hagnýtingu og framþróun sem fylgir upplýsingatækni. Vissulega er margt gott um hana að segja en hún er líka tvíeggjað sverð, þá fyrst og fremst hvað varðar íslenska tungu, og því er nauðsynlegt að hafa varann á. Sumir líta reyndar svo á að íslenskan sé nú þegar svo lítið og veikbyggt tungumál að það séu óumflýjanleg örlög hennar að lúta í lægra haldi fyrir enskunni. Það hefur hins vegar verið sýnt fram á að í raun er það ekki stærð tungumáls sem skiptir meginmáli þegar litið er til lífslíkna þess. Virðing þjóðarinnar fyrir málinu og sú rækt sem lögð er við það ræður helst úrslitum í varðveislu sérhvers tungumáls. Með öðrum orðum, „ef móðurmálið er notað á öllum sviðum daglegs líf, [og] það á bæði vandað rit­ og talmál, stendur því engin hætta af utanaðkomandi málum þótt sterk séu.“ (Guðrún Kvaran, 2008) Við þurfum því í raun ekki að óttast tæknina eða áhrif hennar heldur aðeins að gæta þess að standa vörð um íslenska tungu í gegnum þennan stríða straum breytinga samhliða því að snúa vörn í sókn og tryggja stöðu íslenskunnar innan upplýsingatækninnar. Tæknin er komin til að vera en við getum til dæmis ekki boðið íslenskum grunnskólabörnum upp á enskt málumhverfi í skyldunámi sínu. Því er mikilvægt að leggja áherslu á hentugan íslenskan hugbúnað og okkar sterkasta vopn, íslenska máltækni. Máltækni (e. language technology) felur í sér samvinnu tölvutækni og tungumála. Hún miðar fyrst og fremst að því að þróa búnað sem getur bæði skilið og unnið með tungumál. Tilgangurinn er tvenns konar og felst annars vegar í því, sem hér skiptir mestu máli, að hagnýta tækni í þágu tungumála og hins vegar í notkun tungumálsins í þágu tækninnar (Eiríkur Rögnvaldsson, 2014). Íslensk máltækni stendur ekki vel að vígi þrátt fyrir að talsvert hafi áunnist frá aldamótunum. Samkvæmt skýrslu META­NET (Eiríkur Rögnvaldsson, Kristín M. Jóhannesdóttir, Sigrún Helgadóttir og Steinþór Steingrímsson, 2012) um stöðu evrópskra tungumála í hinum stafræna heimi stendur íslensk tunga verulega höllum fæti. Til að unnt sé að tryggja framtíð hennar er mikið starf óunnið. Hvað varðar grundvallarbúnað og málföng mætti segja að staðan sé nokkuð ásættanleg, t.d. hvað varðar textagreiningu og málheildir. Hið sama er þó ekki hægt að segja um flóknari svið en ekki er til háþróaður máltæknibúnaður og málföng fyrir íslensku (Eiríkur Rögnvaldsson o.fl., 2012). Grundvöllur þess að íslenskir málnotendur geti notað íslenska tungu á öllum sviðum daglegs lífs er að allur almennur hugbúnaður sé tiltækur á íslensku. Hér má nefna þýðingaforrit, leiðréttingarhugbúnað og að hægt sé að tala við tölvustýrð tæki á íslensku. Auk þess er mikilvægt að málnotendur hafi aðgang að hugbúnaði sem getur leitað í gagna­ og textasöfnum og unnið úr þeim flóknar upplýsingar (Eiríkur Rögnvaldsson, 2014). Tæknin spilar sífellt stærri hluta í lífi landsmanna og ljóst er að í náinni framtíð munu talandi, tölvustýrð tæki verða sífellt fyrirferðameiri og þá liggur ekki ljóst fyrir hvað verður ef við þurfum að tala við þau á ensku. Þó virðast ýmsar blikur vera á lofti og má meðal annars nefna að síðastliðið haust fékk Google til liðs við sig tuttugu íslenska sjálfboðaliða til að vinna með fyrirtækinu í íslenskri máltækni. Markmiðið er að mynda tvær íslenskar raddir, kvenmanns­ og karlmannsrödd, svo leitarvélin geti talað við notendur. Þetta gæti komið til með að verða einkar þýðingarmikið í kennslu, ekki síst fyrir þá sem læra íslensku sem annað mál (Sigríður Hagalín, 2015). En betur má ef duga skal og líkt og hér hefur komið fram er staða íslenskrar máltækni heldur bágborin. Það eru grundvallarmannréttindi íslenskra málnotenda að geta notað íslenska tungu á öllum sviðum daglegs lífs, og sér í lagi þegar um grunnskólabörn í skyldunámi er að ræða. Ef við viljum að íslensk tunga haldi velli í komandi framtíð má ekki sofna ekki á verðinum og efla þarf þróun íslenskrar máltækni verulega. Ráðamenn þjóðarinnar mega ekki sofa fljótandi að feigðarósi heldur verður að leggja fjármagn í íslenska máltækni og það strax. Okkur þykir ljóst að ef ekkert verður að gert sé íslenskri tungu voðinn vís. MIKILVÆGI MÁLTÆKNI: AF FRAMTÍÐ ÍSLENSKRAR TUNGU Steinunn Valbjörnsdóttir, Tinna Frímann Jökulsdóttir og Þorgerður Edda Eiríksdóttir

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.